Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 10

Víkurfréttir - 25.02.1999, Blaðsíða 10
RúnarJóhannesson hlaut verðlaun fyrir bestu sviðsframkomu. Fyrsta karaokekvöld Stapans var haldiö um síöustu helgi. Þrjii lið mættu til keppni en það fjórða hoðaði forföll á síöustu stundu. Lið frá Víkurási, H. Péturssyni og Garðvangi kepptu. Lið Víkuráss fór með sigur af hólmi en söngvarar kvöldsins voru þeirTorfi (íunnþórsson ,og Arni Brynjólfur Hjaltason. Kúnar Jóhannesson hlaut verðlaun fvrir bestu sviðsframkomu. Skemmtiatriöi kvöldsins voru í höndum Birtu Rósar Arnórsdóttur og Fimleikadeildar Kefla- víkur. Pað xar síðan Snorri Snorrason sem var tæknistjóri kvölds- ins. Næsta karaokekvöld verður 5. mars nk. | Hjálpaðu barninu þínu að fk ! hætta áður en það byrjar vJ/ i í þessari viku stendur yfir í Holtaskóla forvamaverkefni fyrir 9. og 10. bekk um vamir gegn útbreiðslu fíkni- efna. Verkefnið er á vegum U Lögreglunnar í Keflavík, Félagsmálastofnunar Reykjanesbæjar og Marita forvarna- og hjálparstarfs. Unglingar horfa á kvikmynd um skaðsemi og atleiðingar fíkniefnaneyslu, fyrrverandi fíkill segir sögu sína og lögreglan kynnir starf sitt. Þegar allir 9. og 10. bekkir í Holtaskóla hafa farið á fyrir- lesturinn er komið að okkur foreldrum í Reykjanesbæ. Mánudagskvöldið I. mars nk. kl. 20:00 verður haldinn l'undur í Holtaskóla fyrir foreldra nemenda 9. og 10. bekkjar í Holtaskóla. Foreldrafundurinn er á svipuðum nótum og fræðsla unglinganna en auk þess mun Félagsmálastofnun Reykjanesbæjar kynna starf sitt. Um miðjan mánuðinn verður unglingum í 9. og 10. bekk í Njarðvíkurskóla kynnt verkefnið sem og foreldrum þeirra en foreldrafundur fyrir foreldra 9. og 10. bekkjar í Njarðvíkurskóla veröur þriðjudaginn 16. mars kl. 20:00 í Njarðvíkurskóla. Vid viljum tala vid ykkur, þid verðid að ræða við börnin ykkar Ég vil hvetja foreldra til þess að mæta. Fræðsla sem þessi virkar best ef við foreldrar tökum virkan þátt og tölum við unglingana um þessi mál. Virkasta forvömin er sú sem byrjar inni á heim- ilunum. Auk þess að tala við unglinginn um þessi mál og önnur. þá er mikilvægt fyrir foreldra að láta sig skipta máli hverjir umgangast unglinginn, hverjir eru vinir hans og kærasti/kærasta. I stuttu máli; ekki missa sam- band við unglinginn. Nú á síðustu missemm hafa enn fleiri kannanir og skýrslur komið fram um samskipti foreldra og bama sem styðja hin algildu sann- indi að aukin samvera bams og foreldra er besta leið foreldra til þess að skila heil- steyptum einstaklingi í þjóðfélagið. Með forvarnakveðju, Eysteinn Eyjólfsson verkefnisstjóri Reykjanesbæjar á réttu róli Rannsóknarnefnd sjóslysa hefur sentfrá sár ú\ Gnæðgi. i kænuleysi Skipstjórar Særúnar GK-64 og Gau ja Gísla GK-103 eru sekir um vítaverða ofhleðslu og vanþekkingu á stöðugleika bátanna skv. nýútkominni skýrslu Rannsóknarnefndar sjóslysa fyrir árið 1995 og þannig ábyrgir fyrir báts- töpununi. Særún GK-64 sökk á leið til Grindavíkur þann 27. mars 1995 og Gaui Gísla GK-103 hvolfdi á sömu slóðum á sama tíma eftir að hafa reynt að aðstoða Særúnu. Bátarnir voru báðir ofhlaðnir, lentu í árekstri innbyrðis auk þess sem Eyjólfur Ólafsson NK-9 rakst á Særúnu er verið var að færa afla á milli bátanna. Öll- um var b jaraað um borð í Far- sæl GK-162. I skýrslu rannsóknarnefndar- innar kemur fram að Særúnin var gróflega oflilaðinn um a.m.k 3 tonn, sjór komst í olíugeyma bátsins (vélin stöðvaðist) án þess að kannað væri hvers vegna og að skip- Langar þig að syngja! / Ihverju sönglagi sem við syngjum býr kraftur, seni lirífur okkur og örvar. Á þessu námskeiði fáunt við tækifæri til að konia saman, opna hjörtu okkar og eyru, og SYNGJA! Við sameinumst í líflegum kór og syngjum lög af ýmsum toga. Með því að dýpka skilning á því hvernig öndun og innri orka stvður \ ið og styrkir röddina, þjálfum > ið og þroskum sönggetu okkar, frumkvæði og samhljóm. Námskeiðið stendur yfir frá föstudagskvöldi til eftimiðdags á sunnudegi. Fjörið byrjar strax og seinni part Iaugardags, verður hópurinn orðinn að líflegum kór, þar sem liver og einn gegnir mikilvægu hlutverki. Þetta námskeið er sett upp með það í huga að allir sem elska að syngja geti verið með. Allir eru velkomnir, og engin reynsla er nauðsynleg. Esther Helga Guðniundsdóttir lauk prófi í söng- og tónlistar- fræðum frá háskólanum í Indiana árið 1989. Hún stofnaði og stjómaði Söngsmiðjunni frá 1990-1997. í Söngsmiðjunni lagði hún sérstaka áherslu á námskeið fyrir hinn almenna borgara undir nafninu; “ Söngnámskeið fyrir unga sem aldna, laglausa sem lagvísa”. Þá stofnaði hún og stjórnaði Sönghóp Móður Jarðar og íslandsbankakómum. 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.