Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 08.04.1999, Qupperneq 19

Víkurfréttir - 08.04.1999, Qupperneq 19
Vfí'SríTA'KEFPWÍNTKORFUKNATTrETK / I Nágrönnunum og efstu liðum DHL- deildarinnar tókst að brjóta á bak aft- ur mótspvrnu ísfírðinga og Grindvík- inga í fjórum leikjum og trvggja sér réttinn til að leika til úrslita unt Islands- meistaratitilinn á þessu síðasta ári aldarinn- ar. Báðar leikjahrinurnar voru spennandi og skemmtilegar en einbeitingu og þrek ís- fírðinga og Grindvíkinga þraut fvrr en hjá þrautrevndum og eldhertum liðum áratug- arins, Keflavík og Njarðvík, sem unnið hafa flesta titla síðustu 20 ára og í raun mjög við hæfí að þau berjist unt þennan síðasta titil tuttugusta aldarinnar. Einar Einarsson náði góðum árangri með Grindvfkurliðið eftir að hafa tekið við liðinu í erfiðri stöðu. Hann var ekki ánægður með að vera úr leik. „Þetta gekk ekki upp og því fór sem fór. Við byrjuðum mjög illa og lékum ekki eins agaðan leik og áður, sérstak- lega var vamarleiknum ábóta- vant. Keflvíkingar eru með of gott lið til að gefa 13 stiga for- skot. Eg held að tapið í þriðja leiknum í Keflavflc haft setið í mínum mönnum enda áttum við að vinna þann leik. Við sýndum þó að Grindvíkingar gefast aldrei upp og maður kemur manns stað þegar á bjátar." Herbert Arnarson lék frá- bærlega með Grindvfldngum á úrslitakeppninni og var óumdeilanlega besti leikmað- ur liðsins ásamt Bandaríkja- manninum Warren Peeples. „Það eru náttúrulega brjáluð vonbrigði að vera dottnir úr leik í fjómm leikjum eftir að hafa unnið fyrsta leikinn á úti- velli. Við töpuðum t.d. tveim- ur í röð á heimavelli sem er alveg ótækt. Ég er alls ekki sáttur við þessi úrslit en allir leikimir vom jafnir og sigur- inn getað fallið báðum liðum í skaut en heppnin er hluti af leiknum og að þessu sinni var hún Keflavíkurmeginn. Damon Johnson er eimreiðin í Keflavíkurhraðlestinni Sigurði Ingimundarsyni þjálfara Keflvíkinga tókst blása sjálfstrausti aftur í lið sitt eftir óvænt tap á heimavelli í fyrsta leiknum og var hann að vonum ánægður með þrjá sigurleiki í röð og sæti f úrslitunum. „Við náðum í fyrri hálfleik að leika á okkar hraða en hleyptum þeim of nærri okkur í seinni hálfleik. Ég er afar ánægður með að hafa náð að vinna Grindvíkinga tvisvar í röð á heimavelli því þeir eru með mjög gott lið og ekki auðsóttir heim. Nú eru draumaúrslitin framundan, sem er sannarlega skemmtilegt fyrir fólkið í bænum, og við ætlum okkur að vinna þá seríuna líka“ Fannar Ólafsson var að margra mati lykilniaður Keflvíkinga en hann stjóm- aði málum undir körfunni beggja megin á vellinum, hirti fjölda mikilvægra frá- kasta og varði skot. „í kvöld náðum við að spila á okkar hraða. Við lögðum upp með að stöðva Hebba og Warren og láta minni spámennina taka skotin og það gekk ekki upp hjá þeim, því miður fyrir þá. Okkar megin þá gekk boltinn vel manna á milli og opin færi sköpuðust sem við nýttum okkur vel. Nú eru Njarðvíkingarnir næstir og stefnum við að sigri í fyrsta leiknum á þriðjudaginn." Úrslitakeppni DHL deildin Þridjudaginn 13. apríl kl. 20 í íþróttahús Keflavíkur SALTVER HF Landsbankinn KEFLAVIK - NJARDVIK Lan&best&j*jþ Hafnargötu 62 • 230 Keflavík • Sími 421 4777 W f M / V íkurfréttir 19

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.