Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 09.09.1999, Blaðsíða 15

Víkurfréttir - 09.09.1999, Blaðsíða 15
Jórunn Tómasdóttirskrífar: Enskukennsla í fimmta bekk Sainkvæmt nyrri náms- skrá grunnskólanna skal hefja ensku- kennslu í finunta bekk. Mikil varð því undrun mín þegar ég sá að engin ensku- kennsla var inná stundatötlu dóttur minnar sem er að hefja nám í finunta hekk í Holtaskóla. Þegar ég leitaði skýringa tjáði aðstoðarskólastjóri mér að þar sem grunnskólamir haft tvegg- ja ára aðlögunartíma til að hrinda í framkvæmd ensku- kennslu í fimmta bekk hefði verið ákveðið að nýta sér það ákvæði þar sem kennsluefni væri ekki tilbúið og erfm hefði reynst að manna skólann rétt- indakennurum. Því skyldi enskukennslunni frestað um eitt ár. Ég leyft mér að gera at- hugasemdir við þessi rök. Ég held því fram að það þurfi ekki ákveðið, fyrirfram tilbúið námsefni til að geta hafið enskukennslu hjá tíu ára böm- um. Þau þurfa engar kennslu- bækur. Auðvitað þyrfti kenn- arinn að undirbúa og útbúa kennsluefni við hæfi og af nógu er að taka. Einnig má spyrja; hvernig fara þá hinir skólamir að sem hefja ensku- kennsluna nú í haust? Mætti ekki leita í smiðju til þeirra? Ég get því alls ekki tekið skýr- inguna um að námsefni vanti fullgilda. Með tilliti til slakrar frammistöðu nemenda úr Reykjanesbæ á samræmdum prófum undanfarin ár tel ég al- gert ábyrgðarleysi af hálfu skólayfirvalda í Holtaskóla að nýta sér ákvæðið um tveggja ára aðlögunartíma og fresta þannig enskukennslunni um eitt ár XXog hver veit, kanns- ki um tvö. Aðlögunartíminn er jú tvö ár og hver er kominn til með að segja að aðstæður hafi breyst til batnaðar haustið 2000? - Það er alkunna að erfitt hefur reynst að manna skólana réttindakennurum. í Holtaskóla eru tveir fimmtu- bekkir og em kennarar beggja án réttinda. Það stoðar ef til vill lítið að ergja sig yfir því eins og ástandið er enda ekkert náttúmlögmál að leiðbeinend- ur séu verri kennarar en þeir sem réttindin hafa. En ef leið- beinendum er treyst til að kenna börnunum íslensku, náttúmfræði, stærðffæði, dön- sku og önnur skyldufög þá hlýtur þeim einnig að vera treystandi fyrir byrjunar- kennslu í ensku. Rök skólans falla því um sjálf sig. Grunnskólarnir heyra undir sveitafélagið og ég hafði því haldið í einfeldni minni að unnið væri samkvæmt sam- ræmdri skólastefnu. Ég hafði haldið að allir sambærilegir skólar sveitafélagsins ættu að veita nemendum sínum sömu þjónustu, sama námsframboð, sömu möguleika. Þar skjátlað- ist mér hrapalega. Skólastjóramir sjálfir virðast geta ráðið því hvort þeirra skóli hrindi ákvæðum nýrrar námssrkrár í framkvæmd eða nýti sér rammann um tveggja ára aðlögunartíma t.d. hvað varðar enskukennsluna í fimmta bekk. Skólamálastjóri Reykjanesbæjar virðist ekki hafa nokkra lögsögu í málinu. Enda kemur í ljós að bæði Myllubakkaskóli og Heiða- skóli ætla að veita fimmtu- bekkingum enskukennslu strax í haust meðan Holtaskóli og Njarðvíkurskóli fresta mál- inu a.m.k. um eitt ár. Hvers eiga nemendur þessarra tvegg- ja skóla að gjalda? Þetta er með öllu óviðunandi þar sem nemendur eru skikkaðir í skól- ana miðað við búsetu. Þeir hafa ekkert val. Ef skólastefna sveitafélagsins byggir á því að skólamir séu mismunandi og bjóði upp á mismunandi námsúrval og kennslu þá hefði átt að kynna það f upphati og veita foreldrum þann sjálf- sagða rétt að fá að velja þann skóla fyrir bömin sín sem þeir treysta best fyrir menntun þeirra. Þar sem slíkt val var ekki fyrir hendi hlýtur það að vera krafa foreldra að allir gmnnskólanemendur í sveita- félaginu sitji við sama borð hvað varðar námsframboð. Sveitafélagið rekur gmnnskól- ana og hlýtur að bera skylda til að sjá til þess að algert sam- ræmi ríki í starfsemi þeirra. Misvitrir skólastjórnendur eiga ekki að ráða því hvað kennt er og hvað ekki. Þeir eiga í raun eingöngu að fram- fylgja skólastefnu sveitafé- lagsins sem byggir á námsskrá og lögum um gmnnskóla. Ég get ekki sætt mig við þetta misræmi og tel okkur hafa verið hlunnfarin. Ég krefst þess að bæjarmálayfirvöld taki málið í sínar hendur og gæti jafnræðis þegna sinna sem stunda grunnskólanám, að þeir njóti allir sama náms- framboðs og sömu möguleika til náms Vonandi láta fleiri foreldrar sig málið varða. Jórunn Tóniasdóttir foreldri og forniaður félags íslenskra tungumálakennara. REYKJANESBÆR Menningar- og safnaráð Reykjanesbæjar auglysir eftir umsóknum um styrki til menningarstarfsemi í sveitarfélaginu Samkvæmt samþykktum ráðsins auglýsir rádið eftir umsóknum um styrki í apríl og október ár hvert og veitir þá eins fljótt og hægt er eftir það. Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem fást á bæjarskrifstofunum að Tjarnargötu 12 og Hafnargötu 57, 2. hæð. Umsóknir skulu hafa borist Menningar- og safnaráði Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 57, 230 Keflavík fyrir 15. október 1999 Éfe Sandgerðisbær íþrótta- og tómstundaráð Sandgerðisbæjar auglýsir eftirtalin störflaus til umsóknar: Starfbað- og sundlaugarvarðar í íþróttamiðstöðirmi, um erað ræða 100% stöðu. Unnið er á vöktum. i starfinu felstm.a. klefavarsla í karlaklefa. Umsækjendur þurfa að standast kröfur sem eru gerðar til sundvarða samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum. Starfbað- og sundlaugarvarðar í íþróttamiðstöðinni, um er að ræða 72,5% stöðu. Unnið erá vöktum. ístarfinu felstm.a. klefavarsla í kvennaklefa. Umsækjendur þurfa að standast kröfur sem eru gerðar til sundvarða samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum. Staða starfsmanns í félagsmiðstöðinni Skýjaborg, um erað ræða 30% stöðu. Vinnutími erseinni hluta dags og á kvöldin. Athygli er vakin á því að íþróttamiðstöðin og Félagsmiðstöðin og Félagsmiðstöðin Skýjaborg eru tóbakslausir vinnustaðir. Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum S.F.S.B. Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofum Sandgerðisbæjar og ber að skila þeim á sama stað. Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. september n.k. Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma 423 7966 Iþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerðisbæjar Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.