Víkurfréttir - 09.09.1999, Qupperneq 15
Jórunn Tómasdóttirskrífar:
Enskukennsla
í fimmta bekk
Sainkvæmt nyrri náms-
skrá grunnskólanna
skal hefja ensku-
kennslu í finunta bekk.
Mikil varð því undrun mín
þegar ég sá að engin ensku-
kennsla var inná stundatötlu
dóttur minnar sem er að
hefja nám í finunta hekk í
Holtaskóla.
Þegar ég leitaði skýringa tjáði
aðstoðarskólastjóri mér að þar
sem grunnskólamir haft tvegg-
ja ára aðlögunartíma til að
hrinda í framkvæmd ensku-
kennslu í fimmta bekk hefði
verið ákveðið að nýta sér það
ákvæði þar sem kennsluefni
væri ekki tilbúið og erfm hefði
reynst að manna skólann rétt-
indakennurum. Því skyldi
enskukennslunni frestað um
eitt ár. Ég leyft mér að gera at-
hugasemdir við þessi rök. Ég
held því fram að það þurfi
ekki ákveðið, fyrirfram tilbúið
námsefni til að geta hafið
enskukennslu hjá tíu ára böm-
um. Þau þurfa engar kennslu-
bækur. Auðvitað þyrfti kenn-
arinn að undirbúa og útbúa
kennsluefni við hæfi og af
nógu er að taka. Einnig má
spyrja; hvernig fara þá hinir
skólamir að sem hefja ensku-
kennsluna nú í haust? Mætti
ekki leita í smiðju til þeirra?
Ég get því alls ekki tekið skýr-
inguna um að námsefni vanti
fullgilda. Með tilliti til slakrar
frammistöðu nemenda úr
Reykjanesbæ á samræmdum
prófum undanfarin ár tel ég al-
gert ábyrgðarleysi af hálfu
skólayfirvalda í Holtaskóla að
nýta sér ákvæðið um tveggja
ára aðlögunartíma og fresta
þannig enskukennslunni um
eitt ár XXog hver veit, kanns-
ki um tvö. Aðlögunartíminn er
jú tvö ár og hver er kominn til
með að segja að aðstæður hafi
breyst til batnaðar haustið
2000? - Það er alkunna að
erfitt hefur reynst að manna
skólana réttindakennurum. í
Holtaskóla eru tveir fimmtu-
bekkir og em kennarar beggja
án réttinda. Það stoðar ef til
vill lítið að ergja sig yfir því
eins og ástandið er enda ekkert
náttúmlögmál að leiðbeinend-
ur séu verri kennarar en þeir
sem réttindin hafa. En ef leið-
beinendum er treyst til að
kenna börnunum íslensku,
náttúmfræði, stærðffæði, dön-
sku og önnur skyldufög þá
hlýtur þeim einnig að vera
treystandi fyrir byrjunar-
kennslu í ensku. Rök skólans
falla því um sjálf sig.
Grunnskólarnir heyra undir
sveitafélagið og ég hafði því
haldið í einfeldni minni að
unnið væri samkvæmt sam-
ræmdri skólastefnu. Ég hafði
haldið að allir sambærilegir
skólar sveitafélagsins ættu að
veita nemendum sínum sömu
þjónustu, sama námsframboð,
sömu möguleika. Þar skjátlað-
ist mér hrapalega.
Skólastjóramir sjálfir virðast
geta ráðið því hvort þeirra
skóli hrindi ákvæðum nýrrar
námssrkrár í framkvæmd eða
nýti sér rammann um tveggja
ára aðlögunartíma t.d. hvað
varðar enskukennsluna í
fimmta bekk. Skólamálastjóri
Reykjanesbæjar virðist ekki
hafa nokkra lögsögu í málinu.
Enda kemur í ljós að bæði
Myllubakkaskóli og Heiða-
skóli ætla að veita fimmtu-
bekkingum enskukennslu
strax í haust meðan Holtaskóli
og Njarðvíkurskóli fresta mál-
inu a.m.k. um eitt ár. Hvers
eiga nemendur þessarra tvegg-
ja skóla að gjalda? Þetta er
með öllu óviðunandi þar sem
nemendur eru skikkaðir í skól-
ana miðað við búsetu. Þeir
hafa ekkert val. Ef skólastefna
sveitafélagsins byggir á því að
skólamir séu mismunandi og
bjóði upp á mismunandi
námsúrval og kennslu þá hefði
átt að kynna það f upphati og
veita foreldrum þann sjálf-
sagða rétt að fá að velja þann
skóla fyrir bömin sín sem þeir
treysta best fyrir menntun
þeirra. Þar sem slíkt val var
ekki fyrir hendi hlýtur það að
vera krafa foreldra að allir
gmnnskólanemendur í sveita-
félaginu sitji við sama borð
hvað varðar námsframboð.
Sveitafélagið rekur gmnnskól-
ana og hlýtur að bera skylda til
að sjá til þess að algert sam-
ræmi ríki í starfsemi þeirra.
Misvitrir skólastjórnendur
eiga ekki að ráða því hvað
kennt er og hvað ekki. Þeir
eiga í raun eingöngu að fram-
fylgja skólastefnu sveitafé-
lagsins sem byggir á námsskrá
og lögum um gmnnskóla.
Ég get ekki sætt mig við þetta
misræmi og tel okkur hafa
verið hlunnfarin. Ég krefst
þess að bæjarmálayfirvöld
taki málið í sínar hendur og
gæti jafnræðis þegna sinna
sem stunda grunnskólanám,
að þeir njóti allir sama náms-
framboðs og sömu möguleika
til náms Vonandi láta fleiri
foreldrar sig
málið varða.
Jórunn Tóniasdóttir foreldri
og forniaður félags íslenskra
tungumálakennara.
REYKJANESBÆR
Menningar- og
safnaráð Reykjanesbæjar
auglysir eftir umsóknum um styrki til
menningarstarfsemi í sveitarfélaginu
Samkvæmt samþykktum ráðsins auglýsir rádið eftir
umsóknum um styrki í apríl og október ár hvert
og veitir þá eins fljótt og hægt er eftir það.
Umsóknum skal skilað á sérstökum eyðublöðum sem
fást á bæjarskrifstofunum að Tjarnargötu 12
og Hafnargötu 57, 2. hæð.
Umsóknir skulu hafa borist Menningar- og safnaráði
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 57, 230 Keflavík
fyrir 15. október 1999
Éfe
Sandgerðisbær
íþrótta- og tómstundaráð Sandgerðisbæjar
auglýsir eftirtalin störflaus til umsóknar:
Starfbað- og sundlaugarvarðar í íþróttamiðstöðirmi, um erað ræða
100% stöðu. Unnið er á vöktum. i starfinu felstm.a. klefavarsla í
karlaklefa. Umsækjendur þurfa að standast kröfur sem eru gerðar
til sundvarða samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum.
Starfbað- og sundlaugarvarðar í íþróttamiðstöðinni, um er að ræða
72,5% stöðu. Unnið erá vöktum. ístarfinu felstm.a. klefavarsla í
kvennaklefa. Umsækjendur þurfa að standast kröfur sem eru gerðar
til sundvarða samkvæmt reglugerð um öryggi á sundstöðum.
Staða starfsmanns í félagsmiðstöðinni Skýjaborg, um erað ræða
30% stöðu. Vinnutími erseinni hluta dags og á kvöldin.
Athygli er vakin á því að íþróttamiðstöðin og Félagsmiðstöðin og
Félagsmiðstöðin Skýjaborg eru tóbakslausir vinnustaðir.
Laun eru greidd samkvæmt kjarasamningum S.F.S.B.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á bæjarskrifstofum
Sandgerðisbæjar og ber að skila þeim á sama stað.
Umsóknarfrestur er til föstudagsins 17. september n.k.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður í síma 423 7966
Iþrótta- og tómstundafulltrúi Sandgerðisbæjar
Víkurfréttir