Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 18.11.1999, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 18.11.1999, Blaðsíða 1
Tjamar Sjávarréttadd i á Mamma Mía^Q nfa Fantí tímmleaa í síma 121 1511 AgK £giU /7’fT‘PPv VEITINGASTAÐUR RESTAURANT HAFNARGÖTU 61 NALGAST! VIS svarar rangfærslum og ásökunum Morgunstundin gulls ígildi! Starfsmenn IAV hf. voru að sópa þjónustubyggingu Reykjaneshallarínnar í sjaldgætri morgunsól Heilbrigðisstofnun Suðurnesja: 70 milljön kröna tap Bæjarfulltrúar í bæjarstjórn Reykjanesbæjar lýstu allir yftr áliyggjum sínum af stöðu Heil- brigðisstofnunar Suðumesja á bæjarstjómarfundi í fyrrakvöld. Samkvæmt ársreikningi Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja fyrir árið 1998 er hallarekstur tæpar 24 milljónir kr. eftir 30 milljón kr. aukafjárveitingu vegna halla fyrri ára. Sam- kvæmt rekstaryfirliti fyrstu 7 mánaða ársins 1999 er rekstrar- tap rúmlega 70 milljónir kr. og er ljóst að óbreyttu verði halli stofnunarinnar vel yfir 100 milljónir króna. 1 bókun stjórnar HSS kemur fram að fjárveitingar til stofn- unarinnar séu ekki í neinu hlutafalli við sambærilegar stofnanir og ekki sé unnt að reka hana án halla nema að tek- in verði ákvörðun um lokun deilda, sem er óásættanleg nið- urstaða. Stjómin segir það vera ákvörðun ráðherra og ráðuneyt- is hvort komi til aukin fjárfram- lög eða lokun deilda. Skúli Þ. Skúlason (B) sagðist lengi hafa fylgst með málefn- um HSS en hann haft aldrei séð það eins svart og nú. „Þetta er hræðileg staða“, sagði Skúli. Kristján Gunnarsson (J) bætti því við að vonandi væram við ekki að byggja D-álmu til að loka henni. Björk Guðjónsdóttir (D) sagði þetta mál kalla á um- ræður og skoðun. „Tíminn er að hlaupa frá okkur“, Jóhann Geirdal (J) lagði fram bókun þess efnis að komið yrði á fundi með stjórn og fram- kvæmdarstjóm HSS og oddvit- um/fulltrúum allra stjómmála- afla sem í bæjarstjóm sitja, til að fara yftr stöðu mála. Jóhann lagði einnig til að aðrar sveitar- stjómir á Suðumesjum komi að þessum viðræðum með fulltrú- um stjómmálaflokka og fram- kvæmdarstjórum sveitarfélaga. Tillagan var samþykkt 11-0. SULU- málið ÍSALT Súlumáið fræga ætlar engan endi að taka. Til stóð að fjalla um úr- skurð úrskurðamefndar áfengis- mála á bæjarstjórnarfundi í fyrradag en vegna formgalla var því frestað um tvo daga. Málið verður tekið fyrir kl. 17. í dag. Úrskurður nefndarinnar er á þann veg að bæjarstjórn skuli veita Jóni fullt áfengisveitinga- leyft en ekki takmarkað. Jón M. Harðarson mætti á fund- inn og beið í tvær klukkustundir eftir að málið yrði tekið fyrir. Eftir alla biðina kom í ljós að úr- skurðurinn hafði ekki farið rétta boðleið. Hann hefði átt að berast bæjarstjóm Reykjanesbæjar með formlegum hætti en Böðvar Jónsson (D) fékk hann hins veg- ar sendan persónulega á faxi síð- degis á mánudaginn. Jóhann Geirdal (J) benti forseta bæjar- stjórnar Skúla Þ. Skúlasyni á þennan formgalla og ákveðið var að fresta málinu um tvo daga. Landa- sölumenn stöðvaðir Um síðustu lielgi stöðvaði lögreglan tvo 19 ára gamla pilta sem rúntuðu um Njarð- víkurnar með fullan bíl af landa. Þegar betur var að gáð fundust 16 lítrabrúsar al' landa í bílnum. Drengirnir voru handteknir og vistaðir í fangageymslum lögreglunn- ar. Málið er í rannsókn. BETRI SYN A NAMIÐ VIÐ SJAUM UM FJARMALIN 49. tolublað 20. argangur fimmtudagurinn 18. nóvember 1999

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.