Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 02.12.1999, Page 5

Víkurfréttir - 02.12.1999, Page 5
Skyja- kljúfur í Keflavík Skipulags- og byggingar- nefnd Reykjanesbæjar hafn- aði umsókn Húsaness ehf. um að fá úthlutað lóðunum Framnesvegur 20 og 22 til að byggja allt að 10 hæða fjöl- býlishús. Þetta var ákveðið á fundi nefndarinnar þann 18. nóvember s.l. á grundvelli þess að núverandi deiliskipu- lag geri ekki ráð fyrir svo hárri byggingu. Halldór Ragnarsson, eigandi Húsaness ehf., sagðist ætla að hafa samband við skipulags- yfirvöld á næstu dögum og ræða við þau um breytt deiliskipulag. Hann sagðist jafnframt hafa fulla trú á að málið yrði rætt í bæjarstjórn á næstunni og tekið til endur- skoðunar. „Eg veit að það eru skiptar skoðanir um hvort reisa eigi háhýsi í Reykjnesbæ en það eru margir sem vilja háhýsi og lyfta þar með byggðinni að- eins uppúr flatneskjunni“, sagði Halldór. 50 % söluaukn- ing á fasteignum í Grindavík Atvinnulíf í Grindavík er mjög gott um þessar mundir og fasteignaviðskipti hafa því gengið vel á þessu ári. Asgeir Jónsson, hjá Faseignasölunni Lögbók í Grindavík, segir að þau væm búin að selja n'flega 60 eignir á þessu ári og þeim vantaði fleiri eignir á söluskrá. Til samanburðar má geta þess að í fyrra seldust um 30 eign- ir. „í Grindavík er óvenju mikið af einbýlishúsum en okkur vantar raðhús á söluskrá. Nú emm við aðeins með eitt til tvö raðhús á skrá hjá okkur“, segir Asgeir. Hann segir að ýmsir byggingaraðilar séu að fara að byggja hús af öllum stærðum og gerðum í Grindavík til að mæta þess- ari auknu eftirspum. Hvernig skýrir þú þessa miklu söluaukningu? „Tals- vert mikið af fólki hefur ver- ið að flytjast til Grindavíkur á undanförnum mánuðum. Ég held að fjölgun íbúa megi fyrst og fremst skýra með breytingum á atvinnulífinu. Bláa lónið er t.d. orðinn mjög stór vinnustaður og Þorbjörn hefur verið að stækka við sig. Önnur fyrir- tæki á svæðinu hafa einnig verið að sameinast utanbæj- arfyrirtækjum og út af þeim sameiningum hefur fólk flutt með fyrirtækjunum í byggð- arlagið. Utgerðin hefur mik- ið að segja í Grindavík og þegar hún gengur vel þá vex öll þjónusta í kringum hana og skapar störf‘, segir Asgeir og bætir við að bærinn sé líka orðinn mjög huggulegur. Asgeir segir verð á eignum í Grindavík vera gegnumsneitt örlítið lægra en í Reykjanes- bæ en vinsælustu eignimar hjá honum em minni eignir í verðflokknum 6-8 milljónir. „Þessar eignir em vinsælast- ar hjá unga fólkinu sem er að byrja og eldra fólki sem er að minnka við sig.“ \ :i Afmælismatseðill 2 fyrir 1 frá fimmtud. 2/12 til sunnud. 5/12 frá kl. 18-22. Tveir stórir öl á verði eins frá kl. 18-23. Barnamatseðill 2 fyrir 1 MMbru úlsijnt DOO>S Jólafötin á dömuna Pallíettutoppar, samkvæmiskjólar Allt til jólanna Sparisjóðsins býður þér aðstoð við hlutabréfakaup til skattafsláttar. Þeir einstaklingar sem kaupa hlutabréf í fyrirtækjum geta nýtt hluta af fjárfestingunni til frádráttar á skatttekjum líkt og fyrri ár. 60% af hlutabréfakaupum nýtast til frádráttar, þó að hámarki kr. 80.000 hjá einstaklingum. Til þess að fá hámarksfrádrátt þarf fjárfestingin því að nema kr. 133.333. Skattendurgreiðslan getur þá orðið kr. 80.000x38,34% = kr. 30.672 Sérfræðingar okkar veita þér ráðgjöf við val á fjárfestingarvalkostum. Einnig veitum við allar aðrar upplýsingar er varða skattafrádráttinn. n SPARISJÓÐURINN í KEFLAVÍK - fyrirþig og öllþín fjdrmál

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.