Víkurfréttir

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkurfréttir - 30.12.1999, Qupperneq 10

Víkurfréttir - 30.12.1999, Qupperneq 10
20. öldin TuUu!>usta öldin er senn á enda oj> við tekur sú tuttugsta oj> fyrsta. Alduniót eru merkur at- burður oj> margar staldra við á slíkum tímamótum og líta yllr farinn veg. Eldra fólkið á Suðurnesjum hefur margs að minnast frá liðinni öld, lagningu hitaveitunnar, heimstyrjald- arinnar, stofnun lýðveldisins, hvalagiingu í Njarðvíkunum og hræðilegra sjóslysa og hetju- legra björgunarafreka. \\v Keflavíkurkirkja Gamlársdagur 1999. Aftansöngurkl. 18. Prestursr. Ólafur Oddur Jónsson. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Litanía Bjarna Þorsteinssonar veröur sungin. Organisti Eínar Örn Einarsson. Nýársdagur2000. Hátíöarguösþjónusta kl. 14. Prestur sr. Sigfús Baldvin Ingvason. Kór Keflavíkurkirkju leiðir söng. Organisti Einar Órn Einarsson. Starfsfólk Keflavíkurkirkju Njarðvíkurkirkja (Innri-Njarðvík) Gamlársdagur 1999. Aftansöngur kl.17. Einsöngur Bylgja Dís Gunnarsdóttir Ytri-Njarðvíkurkirkja Nýársdagur 2000. Hátíðarguðsþjónusta kl.14. Kirkjukór Njarðvikur syngur undir stjórn Steinars Guðmundssonarorganista. Baldur Rafn Sigurðsson Útskálakrikja Gamlársdagur 1999. Guösþjónusta kl. 16:30. Litur: hvítur. Hvalsneskirkja Gamlársdagur 1999. Aftansöngur kl. 18. Litur: hvítur. Kórar Útskála- og Hvalsnes- kirkna syngja. Organisti: Guðmundur Sigurðsson. Sóknarprestur: Björn Sveinn Björnsson Grindavíkurkirkja Gamlársdagur 1999. Aftanstund. kl.18:00. Nemandi við söngdeild Tónlistarskólans, Óðinn Arnberg, syngurein- söng. Kór Grindavíkurkirkju syngur. Stjórnandi og kórstjóri Dr. Guðmundur Emilsson. Kálfatjarnarkirkja Gamlársdagur 1999. Aftansöngur kl.18. Prestur séra Friðrik J. Hjartar. Kirkjukórinn leiðir söng undir stjórn Frank Herlufssen. Safnaðarheimili Aðventista, Blikabraut 2, Keflavík. Nýársdagur 2000. Nýárssamkoma kl. 14:00. Tómas Þorvaldsson í Grindavílc: Horfði á skip farast Tómas Þorvaldsson fæddist árið 1919 og hefur alla tíð verið búsettur í Grindavík. Hann starfaði um tíma sem sjómaður og stofnaði síðan út- gerðarfyrirtækið Þorbjöm hf. sem hann á nú með bömum sínum. Tómas hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörfum um ævina, hann var m.a. formaðy ur SÍF í 19 ár, sat í stjóm LIÚ í 32 ár, formaður björgunar- sveitarinnar í Grindavík í 32 ár og á þeim tíma björguðu björgungarsveitarmenn í Grindavík 116 manna. Tómas hefur því komið víða við um ævina og hefur margs að minnast frá öldinni sem senn er á enda. „Eftirminnilegast í mínum huga er þegar sjór gekk meira en 300 metra upp að Járn- gerðastaðabæjunum. Þetta var árið 1924 og ég sá þegar ald- an skall á bæjunum sem stóðu á túnunum fyrir neðan Velli og Vallarhús. Fjósið á öðmm bænum flaut upp um 200 metra með kúnum í. Það urðu sem betur fer engin slys á fólki en mannvirkin skemmd- ust mikið. Akurhús flaut t.d. upp af grunninum og fór 100- 200 metra upp á land. Þegar við krakkamir komum út var fiskur út um öll tún, karfi og keila og fleiri fisktegundir", segir Tómas og bætir við að hann eigi erfitt með að velja einn atburð því honum sé svo margt minnisstætt. „Þegar ég var sex ára, áriðl926, horfði ég á skip farast í innsigling- unni héma í Grindavík. Níu menn drukknuðu og þremur var bjargað en einn þeirra dó á leiðinni í land. Eg horfði á skipið í brimrótinu og heyrði hrópin og köllin. Eg gerði mér kannski ekki alveg grein fyrir hvað var að gerast og ég greindi ekki orðaskil. Annar mannanna sem lifði af, flutti eftir þetta til Grindavíkur og býr nú í Njarðvíkunum. Hann hét Guðmundur Kristjánsson og er faðir Einars Guðmunds- sonar sem var lengi skipstjóri á Kellvíkingi." Steinunn Sigurðardóttir í Garði: Sá danska kónginn Steinunn Sigurðardóttir hef- ur verið búsett á bænunt Brekku í Garðinum síðan árið 1938. Hún er fæddist árið 1917 á Snæfellsnesi en fluttist snemma til Reykja- víkur. „Mér er minnisstætt þegar danski kóngurinn kom til Reykjavíkur, Friðrik 8. Það hefur sennilega verið árið 1927. Eg fór með móður minni niður í bæ til að sjá kónginn og ég man að við vomm staddar á Hverfisgötunni og sáum hann úr fjarlægð. Þjóðhátíðin á Þingvöllum árið 1930 var líka óskaplegt upplivelsi þegar haldið var uppá 1000 ára afmæli íslandsbyggðar. Ég var þá tólf ára. Allt landið var á öðram endanum vegna þjóðhátíðarinnar 1930. Asgeir Asgeirsson og Dóra Þórhallsdóttir tóku þá á móti kóngafólk- inu“, segir Steinunn. Hún minnist þess einnig þega hún kom akandi árið 1974 frá Laugarvahii og ók yfir Lyngdals- heiðina í átt að Þingvöllum. „Þegar við komum yfir heiðina fengum við morgunsólina í fangið og Þingvellir blöstu við okkur. Þetta var sú fal- legasta sjón sem ég hef nokkra sinni augum lit- ið.“ Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu. Huldu Klöru Randrup Hátúni 30, Keflavík. Snæbjörn Adolfsson, Kristín Guðjónsdóttir, Sveinn J. Adolfsson, Sigríður Gunnarsdóttir, Pétur Aðalgeirsson, Agnes Adolfsdóttir, Sigurður Adolfsson Guðný Adolfsdóttir, Adolf Adolfsson, barnabörn og barnabarnabörn. Hjalti Heimir Pétursson, Jesús Krístur er svarið Samkoma öll fimmtudagskvöld kl. 20.00. Allir velkomnir. Bæna og lofgjörðasamkoma sunnudaga kl. 7 7.00. Hvítasunnukirkjan Vegurinn Hafnargötu 84, Keflavík. VEFSÍÐA: www.gospel.is

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.