Víkurfréttir - 20.01.2000, Síða 18
&
£
Leiðbeinandi:
Hulda Lárusdóttir
^ sími 4216303.
Tilvalið til
afmælisqjafa.
Nýtt kennslumyndband eftir konuna
sem hefur verið lengur í bransanum en
jane ■ €>rsii>yv
Frábærar æfingar við göngugrindina.
þorsbíbEot
Hið árlega og vinsæla þorrablót
Knattspyrnudeildar Keflavíkur,
verður haldið þann 28. jan.
í KK salnum við Vesturbraut.
Hljómsveitin SÍN
leikur fyrir dansi.
Davíð Þór skemmtir.
Happdrætti.
Húsið opnar 19:30
Miðaverð 2.900,-
Miðasala í K-vídeó við Hringbraut.
Miðapantanir
í síma 893 444, Grétar
og 852 8058, Þorsteinn.
Gerðahreppur
íbúd til sölu
Húsnædisnefnd Gerðahrepps
auglýsir til sölu íbúð að Lindartúni 5
í Garði. Allar nánari upplýsingar
á skrifstofu Gerðahrepps,
sími 422 7108.
Húsnæðisnefnd Gerðahrepps
Stóriejkii* í KeflavÉ
en frestað í NjarM
Langar þig
að leika!
Æfingar eru að hefjast hjá
Leikfélagi Keflavíkur eftir jóla-
leyfi, en eins og flestir vita sýndi
félagið söngleikinn um Oliver
Twist fyrr í vetur og gengu
sýningar mjög vel. Nú hefur
verið ákveðið að setja á svið
revíu sem fjallar á skemmtilegan
hátt um hin ýmsu mál og málefni
sem svo margar manneskjur ættu
að þekkja nokkuð vel.
Verkið er samið af nokkrum
félögum LK, þeim Huldu Ólafs-
dóttur, Júlíusi Guðmundssyni,
Ómari Ólafssyni og Hjördísi
Ámadóttur. Við óskum eftir hres-
su og áhugasömu fólki sem lan-
gar að leika eða taka þátt í
uppsetningunni á einhvem hátt.
Við ætlum að hittast í
Frumleikhúsinu nk. fimm-
tudagskvöld 20. janúar ki. 19:30.
Fullorðnir velkomnir!!!
Leik Njarðvíkinga og Hauka í
EPSON deildinni, sem fram
átti að fara í kvöld, hefur verið
frestað um óákveðinn tíma
vegna aðstæðna. Keflvíkingar
mæta Grindvíkingum í kvöld
kl. 20 í íþróttahúsinu við
Sunnubraut í leik sem skiptir
heimamenn miklu máli. Með
hverjum ósigrinum minnka
möguleikar liðsins á því að
komast aftur í toppbaráttuna og
spurning hvort Sigurður
Ingimundarson, þjálfari þeirra,
er búinn að finna leið til að
toga betri frammistöðu út úr
bakvörðum liðsins. Leikurinn
verður sýndur beint á Sýn. I
kvennaboltanum mættust
topplið 1. deildar í Keflavík í
gærkveldi er Islandsmeistarar
KR komu í heimsókn. Því
miður var VF farið í prentun
áður en úrslit réðust.
Hjúkrun
Ég ætla að fjalla um hjúkrun
og sögu hjúkmnar í tilefni
þess merka áfanga að undir-
ritað var samkomulag um
háskólanám á Suðumesjum
29.desember s.l. á milli
Háskólans á Akureyri og
Miðstöðvar símenntunar á
Suðumesjum um fjamám í
hjúkrunaifræði haustið 2000.
Heilbrigðisstofhun Suður-
nesja er einnig aðili að samn-
ingi þessum að hluta.
Fjamám í
hjúkrunarfræðum er
mjög mikil lyftistöng
fyrir Suðumesin og
hoifi ég björtum augum
til ffamtíðar í þeim
málum og vona að
skortur á hjúkmnarfræð-
ingum á svæðinu heyri
sögunni til eftir nokkur ár.
Upphaf hjúkmnar hefur verið
rakið til Florens Nightingale
1820-1910. Florens var
langt á undan sinni samtíð
með hugmyndir. Hún lagði
áherslu á umhvetfi, hreinlæti,
næringu, heilbrigðisfræðslu,
fyrirbyggingu sjúkdóma og
að sjúklingar næðu sínum
fyrri styrk. Hún lagði mikið
upp úr því að byggja upp
hjúkrunarmenntun.
María Pétursdóttir (1969)
rekur sögu hjúkrunarmála á
íslandi og talar um fátæklegar
heimildir, þar sem sennilega
hafi ekki þótt í frásögur
færandi að konur fengjust við
hjúkmn. Talið er að hjúkmn
sé afsprengi þeirrar móður-
legu umhyggju, sem konur
veittu innan veggja heimil-
anna hér áður. Konur ólu
böm sín heima, umönnun
sjúkra fór fram heinta og fólk
lá banaleguna heima.
Fyrstu hjúkmnarkonumar
komu til starfa á
Islandi um
aldamótin 1900, stórhuga
konur sem þurftu að sækja
sitt nám á erlenda gmnd
a.m.k. að hluta, þar til Hjúkr-
unarkvennaskóli Islands var
stofnaður 1931. Eftir það fór
allt nám fram hér heima. Frá
upphafi gerðu hjúkmnar-
konur miklar kröfur til
menntunar og hefur hjúkr-
unamámið tekið miklum
breytingum gegnum árin,
samfara breyttri heilbrigðis-
þjónustu. Hjúkmn er nú orðin
fræðigrein, hún er kennd á
háskólastigi og hjúkmnar-
fræðingar leggja stund á
rannsóknarstörf, sem þróa
aukna þekkingu, sem síðan
leiða til betri hjúkmnargæða á
öllum sviðum í heilbrigðis-
kerfinu.
Starfsheitinu hjúkmnarkona
var breytt árið 1975 í hjúkr-
unarfræðingur. Árið 1986 var
allt hjúkmnamám flutt yfir á
háskólastig og Hjúkrunar-
skóli íslands lagður niður.
Haustið 1987 hófst
hjúkmnamám við
Háskólann á Akureyri.
Hjúkmnarstarfið byggir
á þekkingu og skilningi
á eðli mannsins og
beinist að því að gera
einstaklinginn hæfan á
ný og efla bjargráð
hans. Hjúkrað er undir
formerkjum til lífs og vonar.
Einkunarorð Félags íslenskra
hjúkmnarfræðinga er: Hugur
- Hjarta ? Hönd.
Ég vil að lokum hvetja alla þá
sem hafa áhuga á hjúkrun að
skoða þann námsmöguleika
sem í boði er hjá Miðstöð
símenntunar á Suðumesjum
með fjamámi í hjúkmnafræði
ffá HA núna á haustmisseri
2000 ef lágmarksfjöldi nem-
enda næst, en það em sex
nemendur.
Góðar stundir,
Erna Björnsdóttir
hjúkrunarforstjóri
Stórleikur í úrvalsdeild meistarflokki karla
I kvölcJ kL 20
Fjölmennum í íþróttahúsið í Keflavík
Saltver
Utgerð - rækjuvinnsla