Víkurfréttir - 20.01.2000, Qupperneq 19
Fráfall Örlygs Sturlusonar:
Áfall fyrir körfuknattleikinn á íslandi
Körfuknattleiksíþróttin á
Islandi varð fyrir alvarlegu
áfalli um síðustu helgi þegar
landsiiðsmaðurinn ungi,
Njarðvíkingurinn Örlygur
Sturluson, féll frá með
sviplegum hætti aðeins 18
ára að aldri. Örlygur sem
var einn efnilegasti leik-
maður Islands og fyrirmynd
nýrrar kynslóðar körfu-
knattleiksmanna var aðeins
á sínu öðru ári í úrvalsdeild.
Hann var einn lykilleik-
manna Islandsmeistara
Njarðvíkur 1998 og gerði
tilkall til titilsins “besti
íslenski leikstjórnandinn”
með leik sínum það sem af
er þessu tímabili. Iþrótta-
deild VF vottar nánustu
fjölskyldu Örlygs, Njarð-
víkingum samúðar.
Minningabólc
Þeir sem vilja minnast Örlygs Sturlusonar, geta skrifað
nöfn sín í minningabók sem liggur frammi í anddyri
Iþróttamiðstöðvar Njarðvíkur.
Undanúrslit Renault-
bikarsins á sunnudag
Stjörnu-
leikurinn
Njarð-víkinga
Arlegur stjömuleikur KKI var
leikinn í Hafnarfirði síðastliðinn
laugardag og sigraði Spritelið
Friðriks Inga Rúnarssonar 154-
124. Fjölmargir Suðurnesja-
menn léku listir sýnar og fór svo
að okkar menn fóru heim með
alla titlana nema troðslu-
kóngstitilinn sem fór til Eiríks
Sigurðssonar úr 1. deildarliði
Stjörnunnar. Bandaríkja-
maðurinn Keith Veney (43 stig,
12 3gja stiga) í liði Njarðvíkinga
var útnefndur maður leiksins og
stórskyttan Teitur Örlygsson
sem stal senunni með ótrúlega
góðri hittni í þriggja stiga
skotkeppninni.
Stúlknakórinn
okkar
Stúlknakórinn okkar (áður
Stúlknakór Tónlistarskóhms
í Keflavík) getur bætt við sig
félögunt. Ahugasamir hafi
samband við Gróu Hreins-
dóttur í síma 557-2826 eða
6991886.
Njarðvíkingar þurfa að taka aftur
fram skóna á sunnudag kl. 20 en
þá mæta Olafur Jón Ormsson og
félagar hans í KR til að kljást við
okkar menn í undanúrslitum
Renaultbikarkeppninnar. Engar
fregnir hafa borist þess efnis að
leiknum verði frestað og því rík
ástæða til að hvetja Njarðvíkinga
og aðra áhangendur körfuknatt-
leiksins til að fjölmenna og
styðja Njarðvíkinga í þessum
leik. A sama þurfa Grindvíkingar
að takast á við fyrrum félaga
sína, þá Guðmund Bragason og
Marel Guðlaugsson, í Haukum.
Hafnfirðingar hafa leikið vel að
undanförnu og þurfa Grind-
vfldngar á toppleik að halda til að
komast í úrslitaleikinn eftir-
sóknarverða.
í kvennaboltanum mætast í
bikarnum toppliðin KR og
Keflavík öðru sinni á örfáum
dögum og má segja að hér sé á
ferð úrslitaleikur bikarkeppn-
innar. Leikurinn fer frá á sunnu-
dag í KR-húsinu og hefst kl.
17:30.
Iförn bannorð
Hátt skor stjömuleiksins er
ósköp eðlilegt. Eðlilega er
lögð meiri áhersla á sókn en
vöm í svona leik en fyrr má
nú ref kryfja en öldung dænia
gagnslausan. Ahorfendur
hafa einnig skemmtan af
vamarleik og örlítilli baráttu.
Þá þykir blm. einnig afturför
að erlendir háloftafuglar
íslenskra liða sjá sér ekki fært
að taka þátt í þess til gerðum
troðslukeppnum.
MANI s*-
Aðalfundur
Aðalfundur Hestamannafélagsins
Mána verður haldin í félags-
heimilinu á Mánagrund
föstudaginn 28. janúar kl. 20.
Venjuleg aðalfundastörf.
Stjórnin.
t
i
SAMKAUP HF. Á
ATVINNA t
Verslunarmenn:
Getum bœtt við okkur
verslunarfólki í ýmis
v erslunarstörf.
Hentarfólki á öllum aldri.
KJÖTSEL
Óskum eftir að ráða
verkamann til starfa í
fullt starf
Nemi í kjötiðn:
Getum bœtt við okkur
nema í kjötiðn. Kjötsel er
rótgróin kjötiðnaðarstöð.
Kjötiðn er viðurkennd
iðngrein með góðum
framtíðarhorfum.
Upplýsingar gefur
starfsmannastjóri
í síma 421 5400
og á skrifstofu Samkaupa
að Hafnargötu 62.
SAMKAUP
NJARÐVÍK • GRINDAVÍK
I
I
I
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t
t