Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 20.07.2000, Síða 15

Víkurfréttir - 20.07.2000, Síða 15
Myndarlegar golfstelpur úr Happasæls-fjölskyldunni! Begga, Heiörún Rós og Gerða Halldórs. Orn Ævar Hjarlarson fagnar a viöeigandi hatt eftir síöasta púttið á 72. holu. Örn Æuar lék sannkallað meistaragolf og var 3 hringi af fjórum á undir pari. Örn var aðeins 2 högg frá vallarmeti sem liann setti sjálfur 1998. Bestir í 4. flokki. Að ofan f.v. Adolf Sveinsson, Sigurbjartur Guðmundsson og Skúli Þ. Skúlason. Til hliðar má sjá Jón Eðvaldsson og Jón Sigurðsson,tvo efstu menn í 2. flokki karla. Verðlaunahafar í kvennaflokki 50 ára og eldri, Hulda Guðmundsdóttir, Valgdís Valgeirsdóttir og Elsa Lilja Eyjólfsdóttir með Einari Magnússyni formanni GS. Boltakapparnir Þórarinn Kristjánsson og Ragnar Ragnarsson höfðu ástæðu til að fagna góðum árangri. Tveir nýbyrjaðir strax komnir á verðlaunapall, Jóhannes Sigurgíslason og Sigurður Garðarsson. Meistaramótspunktar... Níu manns úr þremur ættliðum Ijöt- skyldu Guðmundar Rúnars Hall- grímssonar og Gerðu Halldórsdóttur tóku þátt í meistaramóti Golfklúbbs Suðurnesja. Guðmundur eldri, Gerða og barna- barn þeirra Heiðrún Rós Þórðardóttir komust öll á vcrðlaunapall. Sá fjórði datt út fyrir ótrúleg mistök. Guðmundur Rúnar Hallgrímsson, yngrí var nokkuð öruggur með að vinna til verðlauna og var í 3. sæti eftir 3 hringi af fjórum í meist- araflokki karla. Þá kom í Ijós að hann hafði undirritað skorkort sitt með rangri tölu á 8. holu annan daginn. Hafði skrifað 3 en átti að vera 4 högg. Það þýðddi frávísun úr mótinu. Sárgrætileg mistök hjá Guðmundi sem hafði leikið mjög gott golf. Guðmundur mun án efa ekki gleyma þessu meistaramóti en svipað atvik henti Irann Patraig Harrington í atvinnumannamóti á evrópsku móta- röðinni í vor. Þá gleymdi hann að undirrita skorkort sitt og það þýddi einnig frávísun. Harrington var með 5 högga forskot fyrir síð- asta hringinn... Knattspyrnu- og körfuboltamenn létu ljós sitt skína á meistaramóti GS. Þeir Ragnar Ragnarsson, körfubolta- maður úr UMFN (bróðir Friðriks Ragnarssonar) og Þórarinn Kristjánsson, „bjargvætturí' Keflavíkur í knattspyrnunnni voru í tveimur efstu sætunum í 3. flokki. Ragnar var höggi betri en Þórarinn. Annar fótboltamaður úr Keflavík, Adolf Sveinsson sigraði í 4. flokki karla. Þar var í 3. sæti forseti bæjarstjórnar Reykjanesbæjar, Skúli Þ. Skúlason sem er kominn með svakalega golfdellu eins og reyndar félagi hans í framsókn, Kjartan Már Kjartansson sem lék einnig í 4. flokki. í 2. flokki var einnig knattspyrnumaður í toppsætinu, Jón Halldór Eðvaldsson en hann er markvörður Víðismanna í Garði og reyndar einnig þekktur körfuknattleiksdómari... Lögreglan á Keflavíkurflugvelli er með marga snjalla kylfinga innan- borðs. Þrír þeirra lentu í verðlauna- sætum í meistaramóti GS. Fyrst ber að nefna Oskar Halldórsson sem sigraði í 1. flokki og lék sannkallað meistaragolf, m.a. annan hringinn á tveimur undir pari, 70 höggum. Annel Þorkelsson varð annar í sama flokki og Rut Þorsteinsdóttir varð klúbbmeistari kvenna... Metþátttaka var í mótinu en 178 kylfingar tóku þátt og slógu rúmlega SS þúsund högg, mörg góð en auðvitað mörg slæm. Bergvíkin heitir frægasta golfhola á ÍÖfe't ísland, sú þriðja á Hólmsvelli í Leiru. i w í' Hggur meðfram sjónum og er slegið yfir víkina. Holan er sú erfiðasta að niargra mati á Islandi og ófáir lenda í því að slá bolta sína í sjóinn en hún er par 3. I öðrum hring mótsins fengu til að mynda bræðurnir Arnar og Þröstur Astþórssynir báðir 10 högg á holuna en daginn áður fékk Sigurður Lúðvíksson 15 högg án þess þó að slá út í sjó. Flest höggin voru slegin í sandgryfju við flöt- Daglega á Netinu • www.vf.is 15

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.