Víkurfréttir - 20.07.2000, Side 21
Ná fordæmi til
Suðurnesja?
• •
ðruhverju berast
fréttir um að ríkið
hafi verið að selja
lendur eða heilar jarðir, eina
eða fleiri. I Morgunblaðinu
þann 8. júlí sl.birtist ein slfk,
þar var sagt frá sölu á Eiða-
stað með meiru til Austur-
Héraðs fyrir kr 27 milljónir.
Hér er um að ræða heima-
vistarskóla með öllu, þar á
meðal kennaraíbúðum og
heimavist fyrir yfir 100 nem-
endur, auk þess 6 jarðir og
eitthvað af veiðiréttindum.
Þetta hljóta að teljast góð
kaup, sem vonandi nýtast
þessu nýja sveitarfélagi vel.
Við hér í Keflavík og víða í
þéttbýli þekkjum vel hversu
mikils virði það er fyrir sveit-
arfélag að hafa eignarhald á
landi, sem nota á til bygginga
og annarra þarfa þéttbýlis,
það er því ástæða til þess að
óska þeim fyrir austan til
hamingju með þessi kosta-
kaup. En því miður njóta
ekki allir slíks velvilja af
hálfu stjórnvalda. Það má
segja að Keflvíkingar og
Njarðvíkingar, nú íbúar
Reykjanesbæjar hafi staðið í
stappi við ríkisvaldið um
skák sem nefnd er „Neðra-
Nikkel“, allar götur síðan um
1970, með litlum sem engum
árangri.
Nú er talið að hilli undir lausn
og væntanlega standa ráða-
menn Reykjanesbæjar í
ströngu við lið Halldórs As-
grímssonar um að fá eignar-
hald á spildunni þessa dagana,
ef marka má það sem frá þeim
hefir heyrst, en þar eru engin
kostakaup í boði. En ráðamenn
hér hafa sýnt að þeir geta náð
árangri ef þeim finnst mikið
liggja við, samanber þegar
kaupfélagið og fleiri þóknan-
legir fengu landið undir Sam-
kaup og síðast þegar þeir fengu
fótboltahallarfluguna.
Nefnt hefir verið að kostnaður
við að gera svæðið byggingar-
hæft muni verða allt að 62
milljónir króna. Þá upphæð er
okkur ætlað að greiða. En sam-
kvæmt vamarsamningi munu
stjómvöld ber fulla ábyrgð á
öllum spjöllum á landi sem
vamarliðið veldur. Olíufélagið
á skúrræksni á spildunni , sem
líklegt er að þeir hafi leigu-
samning um. Þarna eru ltka
rammgerðir sökklar sem áður
stóðu skemmur á. Miðað við
fyrri reynslu gæti eða einhver
talið sig Ióðarhafa umhverfts
þá. Hvort sem það reynist rétt
eða ekki, teljast þetta vart kost-
ir þegar að því kemur að
byggja á svæðinu. I stjómar-
skrá okkar munu ákvæði um að
þegnar þessa lands skulu njóta
jafnræðis. Bitur reynsla hefir
kennt okkur að misbrestur er á
því. Við getum ekki vænst þess
að njóta sömu kjara og þeir fyr-
ir austan, en við ættum að njóta
fordæmis sem fyrir er hér á
svæðinu, þar á ég við þegar
Keflavíkurbær fékk landið á
Berginu afhent, það land hafði
ríkið á sömu forsendum og
margnefnt „Nikkelsvæði “.
Ef ekki fæst lausn á þessu máli
fljótlega, mætti athuga hvort
ekki ætti að leita til Evrópu-
dómstólsins, það yrði ekki í
fyrsta sinn sem því ráði er beitt
til þess að fá stjómvöld hér til
þess að virða rétt þegnanna.
Olafur Björnsson
Laugardaginn 22. júlí eiga demantsbrúökaup hjónin
Gunnhildur Jónsdóttir og Guðmundur Pétursson frá Asgarði nú
til heimilis að Miðhúsum í Sandgerði. Þau eignuðust ellefu
börn og eru níu þeirra á lífi. Afkomendur þeirra eru orðnir 62.
Atvinna
Óskum eftir að ráða vélamann.
Upplýsingar í símum 893 7444 og 421 2130.
Höjgaard & Shultz íslandi ehf.
Húsnæði óskast
til leigu
Höjgaard & Shultz Islandi ehf., sem
er danskt/íslenskt verktakafyrirtæki
óskar erftir að taka á leigu húsnædi
fyrir starfsmenn sína.
Upplýsingar í síma 860-2274.
Elsku pabbi!
Til hamingju með 30 ára
afmælið 25. júlí.
Atli Már, Magnús Smári og
Aron Ingi.
Jæja gamli.
Nú erkomiðað
því. Boðið í
glösá
næstunni!
Bless og
séþig...
Sjénvarpsskáp ar
tir gegnheilli eik
Box-rum
tvöfalt gormakerfi
Stærðir
90x200sm.
105x200sm.
120x200sm.
140x200sm.
Smiðjuvöllum 6 Keflavík Sími 421 4490
Verslun og verkstæði
Daglega á Netinu • www.vf.is
21