Víkurfréttir - 20.07.2000, Síða 22
íris Edda og Eydís á Olympíuleika
Fyrir síðustu helgi ákvað
Sundsamband íslands að fara
fram á það að samræma lág-
markskröfur fyrir þátttöku á
Olympíuleikum kröfum Frjáls-
íþróttasambands Islands, þetta
var samþykkt af hálfu íþrótta og
Olympíusambands Islands.
Þessar fréttir eru einstaklega
gleðilegar fyrir okkur Keflvík-
inga því þær stöllur Eydfs
Konráðsdóttir og Iris Edda
Heimisdóttir hafa synt á tímum
sem eru töluvert betri en þessi
lágmörk segja til um og hafa
þess vegna tryggt sér þátttökurétt
á OL. í Sydney.
Töluverð umræða hefur verið um
það undanfama daga hvort þetta
sé rétta leiðin við val á
Olympíuliði Islands og þess
vegna ætla ég að setja hér fram
nokkrar staðreyndir.
ljFyrri lágmörk Sundsambands
íslands voru sett með fyrirvara
og miðuðu að því að þeir þátt-
takendur sem næðu tilsettum
skilyrðum ættu möguleika á að
komast í úrslit á Olympíu-
leikunum. Út frá þessu getur
hver sem er spurt sjálfan sig að
því hvort Jtað eigi að vera í
verkahring Islendinga að fylla 8 -
16 manna úrslit í Sydney, til
glöggvunar þá eru á bilinu 70 -
100 sundmenn í hverri grein.
Það er að sjálfsögðu óskastaða að
eiga sundmenn í úrslitum
Olympíuleika en við verðum
einnig að líta á það að senni-
legast er meira en helmingur
keppenda í hverri grein valinn á
sömu forsendum og Sundsam-
band fslands hefur kosið að gera
nú.
2) Þau lágmörk sem nú em notuð
eru nákvæmlega þau sömu og
Frjálsíþróttasamband íslands
notar þ.e. þær Iris Edda og Eydís
þurfa að ná og hafa náð sömu
lágmörkum og t.a.m. Jón Amar
Magnússon og Guðrún Arnar-
dóttir þurftu að ná til að tryggja
sér keppnisrétt á leikunum.
3) Alþjóða Olympíunefndin setur
upp ákveðin lágmörk fyrir
keppnisrétt á Olympíuleikun þ.e.
B - lágmörk sem leyfa hverri
þjóð að senda einn keppanda í
hverja grein og A - lágmörk en
þau em í raun og vem notuð til
að takmarka keppendur í hverja
grein því þau em strangari og ef
að þjóð ætlar að senda tvo
keppendur í einhverja einstaka
grein þurfa þeir báðir að hafa náð
árangri undir A - lágmörkum.
íris Edda og Eydís hafa báðar
náð B - lágmörkum Alþjóðlegu
Olympíunefndarinnar og þannig
tryggt sér keppnisrétt.
Þær íris Edda og Eydís munu nú
á næstu vikum ganga í gegnum
skemmtilegt en mjög svo
krefjandi undirbúningstímabil
þar sem æft verður í Keflavík,
Kópavogi, Reykjavík, Hvera-
gerði, Akranesi og Akureyri. Þær
munu halda utan föstudaginn 25.
ágúst til Ástralíu þar sem við
taka þriggja vikna æfingabúðir
rétt fyrir utan Sydney.
Leikamir sjálfir fara síðan fram
frá miðjum september fram í
byrjun október og mun Eydís
keppa í 100 metra flugsundi og
fris Edda í 100 og 200 metra
bringusundi.
Með sundkveðju jyrir hönd
Sunddeildar Keflavíkur
Eðvarð Þór Eðvarðsson,
Yfirþjálfari.
Eydís Konráðsdóttir
íris Edda Heimisdóttir
Birkir Már Jónsson
lirkir Már íslandsmeistari aðeins 13 ára
Keppnistímabilinu lauk með
eftirminnilegum hætti hjá
Sunddeild Keflavíkur á Sund-
meistaramóti fslands í kópavogi
um síðustu helgi. íris Edda
Heimisdóttir varð áttfaldur
íslandsmeistari, hún sigraði í
öllum sínum greinum í unglinga
og fullorðinsflokki. Þetta hefur
svo sannarlega verið glæsilegt
tímabil hjá Irisi sem sett hefur
aragrúa meta, orðið Norður-
landameistari, margfaldur ís-
landsmeistari og þar að auki
áunnið sér rétt á stærsta
íþróttamót veraldar, Olympíu-
leikana.
Eva Dís Heimisdóttir varð
íslandsmeistari í 100 metra
skriðsundi með glæsilegu sundi
þar sem hún bætti sinn fyrri
árangur um eina sekúndu, Eva
sannaði þama svo um munaði að
hún er búin að ná sínum fyrri
styrk í sundíþróttinni og gott
betur en það.
Birkir Már Jónsson aðeins 13 ára
að aldri sigraði með fáheyrðum
yfirburðum í 1500 metra
skriðsundi karla og bætti sinn
fyrri árangur um tæpar 40
sekúndur, Birkir Már er ennþá í
B - hóp sunddeildarinnar en
færist upp í A - hóp í haust og
verður fróðlegt að fylgjast með
þessu mikla efni á komandi
misserum.
Pilta og stúlknasveitir
Keflvíkinga sigmðu öll boðsund
á mótinu en í Piltasveitinni syntu
þeir Jón Gauti Jónsson, Birkir
Már Jónsson, Guðlaugur Már
Guðmundsson, Heiðar Hildiberg
Aðalsteinsson, Guðgeir Arn-
grímsson, Hafþór Ægir Sigur-
jónsson og Páll Ágúst Gíslason
en í stúlknasveitinni syntu þær
Dfana Osk Halldórsdóttir, Erla
Magnúsdóttir, Þóra Björg Sigur-
þórsdóttir, Berglind Þorsteins-
dóttir og Jóhanna Marsibil
Pálsdóttir.
Lang flestir sundmenn félagsins
vom í stórgóðri bætingu og fyrir
utan gullverðlaunin sem deildin
fékk á mótinu áunnust tugir silfur
og bronsverðlauna.
Það er svo sannarlega bjart yfir
framtíðinni hjá sunddeildinni og
fær hinn nýi þjálfari frá Kanada,
Paul Meronen fjöldan allan af
góðum og efnilegum sund-
mönnum til að moða úr.
Eg vill að lokum nota tækifærið
og þakka fyrir mig, ég hef starfað
hjá Sunddeild Keflavíkur meira
og minna síðastliðin 9 ár og
hefur þetta verið gríðarlega
skemmtilegur tími sem skilur
mikið eftir sig. Eg kem til með
að fylgjast með framgangi
Sunddeildarinnar með miklum
áhuga á komandi ámm.
Gangi ykkur vel. Líf og fjör.
Fyrir liönd Sunddeildar
Keflavíkur
Eðvarð Þór Eðvarðsson,
Yfirþjálfari.
\ Fnabæn anangur hja |
í sundfolhi Reykjanesbæjar í
! Sundfólk úr Reykjanesbæ fór
! 30 sinnuni á verðlaunapall
J um síðustu helgi þegar
■ sundmeistaramót Islands var
I haidið í Kópavogi.
I Iris Edda Heimisdóttir,
| Keflavík, vann til átta gull-
I verðlauna á mótinu eða í öllum
I sínum greinum í unglinga- og
I fullorðinsflokki.og systir
I hennar Eva Dís, vann eitt gull.
J Iris Edda æfir stíft um þessar
[ mundir og telur sig vera á réttri
[ leið, en hún æfir 11 sinnum í
■ viku u.þ.b. 2 klst í senn, enda er
I hún á Ieið á Evrópumeist-
I aramót unglinga í Frakklandi í
I lok þessa mánaðar og á
I Olympíuleikana í Sidney ásamt
I Eydísi Konráðsdóttur í haust.
I Yngsti íslandsmeistarinn á
I mótinu var Birkir Már Jónsson,
I Keflavík, en hann aðeins
I____________________________
þrettán ára gamall. Hann [
sigraði með yfirburðum í 1500 [
metra skriðsundi á mótinu.
Njarðvíkingurinn Sigurbjörg ■
Gunnarsdóttir komst þrisvar |
sinnum á verðlaunapall. Hún |
sigraði í 200 metra flugsundi, |
varð í öðru sæti í 100 metra I
flugsundi og því þriðja í 200 I
metra skriðsundi. Þá vann I
Njarðvíkingurinn Jón Oddur •
Sigurðsson í 200 metra 1
bringusundi, en hann náði j
einnig lágmarki í 50 metra j
bringusundi fyrir Norðurlanda- .
mót unglinga sem fer fram í ■
Svíþjóð í desember.
Samtals fóru Reykjanes- |
bæingar 30 sinnum á verð- |
launapall á mótinu og er það I
glæsilegur árangur hjá sund- I
fólki bæjarins.
____________________________I
Gpindavíkupstúlkup
enn á toppnum
Grindavíkurstúlkur gerðu
góða ferð til Isafjarðar á
sunnudaginn er þær unnu Bí
5-1. Leikurinn byrjaði hálf
rólega fyrir utan eitt færi sem
Bí átti á fyrstu mínútum
lciksins en Sara markmaður
varði vel.
Fyrsta markið skoraði svo Erla
Ósk Pétursdóttir eftir fínt samspil
upp völlinn. Bára Karlsdóttir
bætti svo öðru marki Grinda-
víkur við í fyrri hálfleik. Erla
Ósk skoraði svo þriðja markið úr
vítaspymu.
Heimastúlkur náðu að klóra í
bakkann með því að skora eftir
að Sara markmaður gaf beint í
fætur andstæðinganna rétt við
teiginn. Fjórða mark Grind-
víkinga skoraði Ólína Viðars-
dóttir eftir að hún fylgdi vel eftir
góðu skoti að marki BI. Fimmta
og síðasta markið skoraði Heiða
Sólveig Haraldsdóttir eftir góða
stungusendingu.
Bí stúlkur mega teljast heppnar
að fá ekki á sig fleiri mörk og var
það markmanninum að þakka
sem var þeirra allra besti maður.
M.a. var einu skoti bjargað á
línu, einnig áttu
Grindavíkurstúlkur tvö sláarskot
og eitt skot í stöng.
Grindavíkingar skiptu um
markmann þegar 20 mínútur
voru eftir af leiknum en kom
hann aldreivið boltann og sýnir
það kannski hvernig seinni
hálfleikur spilaðist.
Með þessum sigri halda Grinda-
víkurstúlkur toppsætinu í 1. deild
kvenna. Næsti leikur hjá
Grindavík verður grannaslagur
við RKV en sá leikur fer fram
þriðjudaginn 25. júlí á Grinda-
víkurvelli klukkan 20:00.
RKV í annað sæti
RKV vann góðan sigur á BÍ
ntiðvikudaginn 12. júlí, 0-4 í 5.
untferð A-riðilsl . deildar
kvenna í knattspyrnu, en
leikurinn fór frant á ísafirði.
RKV-stúlkur vom mun betri allt
frá upphafi leiks til enda, en
fyrsta mark leiksins kom á 15.
mínútu og var það markaskor-
arinn mikli, Lilja íris Gunn-
arsdóttir sem þar var að verki.
Gestimir náðu að bæta við öðm
marki í fyrri hálfleik þegar Lóa
Björg Gestsdóttir skoraði.
í síðari hálfleik léku RKV-
stúlkur enn betur og gjörsamlega
yfirspiluðu lið BI, sem átti varla
marktækifæri í leiknum. Þrátt
fyrir fjölda dauðafæra af hálfu
RKV í síðari hálfleik, náði liðið
ekki að skora úr nema tveimur
þeirra. Hrefna Magnea Guð-
mundsdóttir skoraði fyrra markið
beint úr hornspyrnu og Sara
Smart gulltryggði svo sigurinn
með marki af markteig.
Með sigrinum í gær komst RKV
upp í annað sæti riðilsins með
níu stig, eins og Þróttur sem er í
þriðja sæti með lakara marka-
hlutfall. Grindavík vermir topp-
sæti riðilsins með 13 stig.
22