Víkurfréttir - 29.12.2000, Blaðsíða 15
»
I
Bergás orðið bíú!
Nýr sýningarsalur
Nýja Bíós í Keflavík
var tekinn í notkun í
síðustu viku. Salurinn er í
kjallara hússins þar sem
skemmtistaðurinn Bergás
var áður. Framkvæmdir
gengu hratt og vel en þær
stóðu aðeins yfir í um tvo
mánuði.
Nýi salurinn tekur áttátíu
manns í sæti og er með stóru
tjaldi og nýjum glæsilegum
stólum.
„Nýja Bíó er upphafið okkar
og því er það okkur mikið
ánægjuefni að bæta þjónustu
okkar hér í Keflavík. Þessi nýi
salur gefur okkur miklu meiri
möguleika en þegar við
höfðum aðeins einn“, sagði
Bjöm Amason. Aðsókn fjórfal-
daðist þegar við breyttum
bíóinu fyrir tveimur árum og
vonumst til að Suður-
nesjamenn taki þessum nýja sal
vel“.
Boðsgestum gafst tækifæri á að
skoða nýja salinn við opnun-
ina, sem er hinn glæsilegasti.
Veitingar vom í boði og síðan
var fólki boðið að horfa á bíó-
myndina The Family Man með
Nicholas Cage Tea Leoni í að-
alhlutverki. Myndin verður
frumsýnd 5. janúar nk.
Frá formlegri opnun nýja salarins. Á myndinni til vinstri má sjá
hluta Sam-fjölskyldunnar þau Björn Árnason, Guðný Ásberg og
Árni Samúelsson. Að ofan má sjá Einar Júlíusson á tali við
Elísabetu Ásberg, Björn Árnason og son Björn.
Atvinna
Áfyllingarfólk
Starfsfólk við áfyllingar.
Um er að ræða kvöld-
og helgarvinnu.
Nánari upplýsingar gefur
verslunarstjóri á staðnum.
HAGKAUP nbhmmihi
Meira úrval - betri kaup
a armu scm cr
Leigubflar og sendibílar • Sími 421 1515
Á R
GLEDILEGT
N Ý T T
15