Víkurfréttir - 11.10.2001, Qupperneq 14
3ABN--------
NÝ SJÓNVARPSRÁS
Er þetta eitthvað íyrir þig?
Nú getur þú nálgast einstaklega vandað
og uppbyggilegt efhi á nýrri sjónvarpsrás!
Þeir, sem tengdir eru kapalkerfinu
í Reykjanesbæ, geta stillt þessa stöð
inn á rás 15.
Eigir þú gervihnattadisk getur þú stillt
þessa stöð inn á Eutelsat Hot Bird 5,
Channel 156 eða þú getur tengst
netinu á slóðinni www.3abn.org
Meðal efnis:
• Mataræði og heilbrigði
• Uppeldis- og fjölskyldumál
• Barna- og unglingadagskrá
• Kristileg tónlist og samkomur
• Vistvæn garðyrkjustörf
• Okeypis tilboð og margt fleira
• Engin fjáröflun!
NJÓTIÐ HEIL!
Ahugahópur um betra mannlíf.
D-álmusamtökin
hoða til fuIHúaráðs
fímmtudaginn 18. októher 2001
kl. 20.30 að Hólagötu 15, iVjíú8®8
Dagskrá:
Ráðstöfun Qármagns samtakanná
til D-áhmmnar.
Skorað er á fulltrúa
aðildarfélaganna að mæta.
Stjómin.
Verkalýðs-og sjómannafélag Sandgerðis
Húsnæði til leigu
Til leigu húsnæði að
Tjarnargötu 8 í Sandgerði.
Upplýsingar í símum
896 5950 eða 423 7725.
„Ætlnm að bæta þjónustu
við bæjarbna enn frekar"
■segir Dagný Gísladóttir skjalastjóri
Dagný Gísladóttir hóf
störf sem skjalastjóri
Reykjanesbæjar árið
1998 og var það hennar fyrs-
ta verkefni að innleiða raf-
rænt hópvinnu- og skjalavist-
unarkerfi hjá Reykjanesbæ.
Silja Dögg Gunnarsdóttir
hafði samband við hana og
fékk örlitla innsýn í hvað felst
í starfí skjalastjóra.
Auðveldara að miðla rafræn-
um upplýsingum
Reykjanesbær var íyrst sveitar-
félaga til þess að taka upp raf-
rænt hópvinnu- og skjalavist-
unarkerfi og vann því ákveðið
brautryðjendastarf en mikil-
vægt þótti að huga að skjala-
stjóm til framtíðar.
„Form upplýsinga verður
stöðugt fjölbreyttara og um leið
flóknara að halda utan um þær
og tryggja varðveislu þeirra.
Kröfur almennings um aðgang
að upplýsingum hefur aukist
samhliða enda er kveðið á um
slíkt í lögum, sbr. upplýsinga-
lög sem gera stjórnvöldum
skylt að skrá mál sem koma til
meðferðar hjá þeim á kerfis-
bundinn hátt og varðveita mál-
gögn þannig að þau séu að-
gengileg. Öll skjalastjórn hjá
Reykjanesbæ er því raffæn sem
mun auðvelda okkur til muna
að miðla þessum upplýsing-
um“, segir Dagný.
Þar má finna gersemar
Skjalasafn Reykjanesbæjar er
staðsett í kjallara Bókasafns
Reykjanesbæjar og er ætlað að
geyma skjöl sem orðið hafa til
vegna starfsemi bæjarins. Þar
eru geymd skjöl Hafnahrepps,
Njarðvíkur og Keflavíkur frá
því fyrir sameiningu auk skjala
Reykjanesbæjar. Einnig eru þar
geymd skjöl frá félagasamtök-
um og stofnunum Sambands
sveitarfélaga á Suðumesjum.
„I safninu má líka finna ger-
semar líkt og verslunarbækur
Norðfjörðs og Duusverslunar-
innar ffá því á 19 öld. Skjala-
safnið festi kaup á ljósmynda-
safhi Heimis Stígssonar og hef-
ur verið unnið mikið starf í
skráningu þess en auk þess
geymum við safn gamalla
kvikmynda frá Suðumesjum“,
segir Dagný til upplýsingar en
Skjalasafn Reykjanesbæjar
gegnir bæði varðveislu- og
upplýsingaskyldu. Ekki er
hægt að veita aðgang að skjöl-
um sem em óflokkuð og hafa
ekki verið skráð, að sögn Dag-
nýjar. „Samt sem áður reynum
við að aðstoða þá sem leita til
safnsins eins og kostur er.“
Hver er staöan í skjalavörslu-
málum þessa daga?
„Nú er unnið að gerð heildar-
stefnu um safnamál hjá
Reykjanesbæ þar sem hlutverk
safnanna og verkefni þeirra
verða skilgreind. Til þess að
skjalasafnið þjóni hlutverki
sínu þarf að bæta þar við stöðu-
hlutfalli til að sinna skráningu
en bæjarstjóm Reykjanesbæjar
hefúr vísað tillögu þess efnis til
fjárhagsáætlunar árið 2002. Þá
verður jafhffamt tekin afstaða
til þess hvort skjalasafnið verði
gert að héraðsskjalasafhi.“
Nýtt fundargerðarkerfi
Fundargerðir bæjarráðs og bæj-
arstjómar em nú orðnar mjög
aðgengilegar, en fólk getur
nálgast þær á upplýsingavef
Reykjanesbæjar fljótlega eftir
að fundum lýkur. Ritari bæjar-
stjóra hefur umsjón með fund-
argerðum og sér um að setja
þær á vefinn eins fljótt og auð-
ið er.
„Þetta er mögulegt þar sem
vefhrinn er unnin miðlægt þ.e.
öll svið geta sjálf sett upplýs-
ingar á Netið. Hlutverk mitt er
að ritstýra þeim upplýsingum.
Við viljum bæta þessa þjónustu
enn frekar með nýju fundar-
gerðarkerfi sem við tökum í
notkun fljótlega en þá verður
unnt að setja fundargerðir á
vefinn um leið og fundi lýkur.“
Hefur þjónusta við bæjarbúa
batnað eftir að nýr upplýs-
ingavefur var tekin í notkun?
„Hún hefur tvímælalaust gert
það - og á eftir að gera það enn
frekar eftir því sem vefurinn
þróast og gagnvirkni hans verð-
ur meiri. Við bjóðum nú þegar
upp á rafrænar umsóknir á
vefnum í samvinnu við
Form.is, umræðuvettvang fyrir
bæjarbúa og skoðanakönnun í
hveijum mánuði. Auk þess má
nefna upplýsingar um helstu
svið stjórnsýslunnar, fundar-
gerðir nefnda og ráða, gjald-
skrá og starfsmenn auk frétta af
því helsta sem er á baugi hjá
Reykjanesbæ.“
Nýr vettvangur
Við gerð vefsins var lögð áher-
sla á einfalt útlit og skýrt leið-
arkerfi til þess að tryggja
hraða, óháðan aðstöðu notenda
og auðvelt aðgengi að upplýs-
ingurn. Að sögn Dagnýjar
munu viðbrögð bæjarbúa og
hvernig þeir nýta sér þessa
þjónustu, ráða framhaldinu.
„Nýjustu kannanir sýna að
rúmlega 80% íslendinga hafa
aðgang að Netinu. Þetta er því
nýr vettvangur fyrir stjómsýsl-
una og Reykjanesbær hyggst
nýta sér hann eins og kostur er
til þess að mæta auknum kröf-
um íbúa um þjónustu.“
14