Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.11.2001, Page 12

Víkurfréttir - 22.11.2001, Page 12
Er matur vandamál í þínu lífi? OA-deild hefur stofnuð í Reykjanesbæ ætluð fólki sem er haldiö matarfíkn. Næsti fundur er í kvöld, fimmtudag kl. 18:15 í Kirkjulundi í Kellavíkur- kirkju. Allir eru hjartanlega velkomnir en frekari upplýs- ingar um starfscmi samtak- anna má finna á www.oa.is eða hringja í 421-7876. Möggu í síma Dugleg börn úr Reykjanesbæ afhentu Þroskahjálp Suðurnesja ný- lega dágóða fjárupphæð til styrktar starfseminni. Þessir herramenn á myndinni gáfu Þroskahjálp á Suðurnesjum kr. 3.136. Talið frá vinstri: Ingi Þór Reynisson, Hermann Bjarki Níels- son, Sigurjón Helgi Magnússon og Einar Már Sigurðsson. Þessar dömur héldu tombólu til styrktar NES - íþróttafélagi fatl- aðra á Suðurnesjum og söfnuðu kr. 2.025. Talið frá vinstri: Gísli H. Jóhannsson formaður NES er tók við gjöfinni, Eva Rún Helgadótt- ir, Margrét Lára Harðardóttir, Hafdís Hafsteinsdóttir og Heiða Hrönn Hrannarsdóttir. Á myndina vantar Söru Björg Björnsdóttur. Jóíagjafafiandbókin kemur út í mzstu viku Aiigfysirujasmúnn er 421 4717 Okkar innilegustu þakkirtil allra sem sýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð við veikindi, andlát og útför okkar ástkæru móður, tengdamóður, ömmu, frænku og systur Margrétar Jóhönnu Guðmundsdóttur, (Möggu á Melstað), Klapparstíg 16, Ytri-Njarðvík. Sérstakar þakkir færum við heimilisfólkinu á Melstað, æskuvinkonunum og starfsfólkinu á Sýslumannsembættinu í Keflavík. Ykkar styrkur er okkur ómetanlegur. Rúnar Sigtryggur Magnússon, Kristín Soffaníasdóttir Þórunn Magnúsdóttir, Heba Fridriksdóttir, Bjarni Þór Karlsson, Jóhann Bergmann Fridriksson, Jóhann Bergmann Gudmundsson, Þórhanna, Magna og Hrefna Gudmundsdætur og barnabörn. Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför elskulegrar móður okkar, ömmu og langömmu, Emmu Sigríðar Jóhannsdóttur, Suðurgötu 17, Sandgerði, börn, barnabörn og barnabarnabörn. ÁSGEIR EIRÍKSSON SKRIFAR UM BORGARHVERFI Af hverju vill folk ekki búa á Suðurnesjum ? Sveitarstjórnarmenn telja margir hlutverk sitt vera að skila frá sér stærra sveitarfélagi en þeir tóku við. Fólk sem á heima i lítilli nota- legri sveit vaknar allt í einu við það að búið er að skipuleggja stórt iðnaðarhverfi á svæði sem hingaö til hcfur verið einn af kostum þess að búa i litla sveitarfélaginu. Þetta opna notaiega svæði verður nó að andstæðu sinni með hávaða, hættu og sóðaskap. Er svo mik- il þörf fyrir „flugtengt” iðnað- arsvæði í Reykjanesbæ að nauðsynlegt er að fórna svæði sem lengi hefur verið notað til útisvistar? Þcgar hefur verið skipulagt flugtengt iðnaöar- hverfi við Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar og varla mikil þörf á öðru svæði undir svona starf- semi. Stærstur hluti tekna sveitarfélaga kemur frá útsvari einstaklinga. Sáralitlar tekjur stafa beint frá fyrirtækjum, en auðvitað væru engar útsvarstekjur að hafa ef engin væri atvinnan. Það er því eftirsóknarvert fyrir sveitarfélög að fá til sín fólk með háar upp- gefnar tekjur. Viða á Suðumesjum starfar fólk sem á heima á höfuðborgarsvæð- inu og er það hið besta mál. Í mörgum tilvikum er um að ræða hátekjufólk sem akkur væri í að fá til að flytjast hngað. Eg nefhi sem dæmi lækna á Heilbrigðis- stofnun Suðurnesja, flugvirkja hjá Flugleiðum, lögfræðinga hjá sýslumanni, lögmenn sem reka lögmannsstofur á Suðurnesjum, flugumferðarstjóra á Keflavíkur- flugvelli, yfirmenn hjá verktök- um og hemum á Keflavíkurflug- velli, flugstjóra og flugliða, kenn- ara hjá Fjölbrautaskóla Suður- nesja og þú þekkir eflaust fleiri dæmi. Hvað höfum við að bjóða þessu fólki og hvers vegna vill það ekki flytja hingað? Einn bæjarstjórn- armaður taldi ókost við svæðið vera þann að Suðumes væri ljótt og hallærislegt nafn og réttast væri að skipta í eitthvað fallegra. Mér finnst það ekkert hallæris- legra en Amames eða Seltjamar- nes og sætti mig alveg við að vera áfram Suðumesjamaður. En hvað höfum við að bjóða fólki hér í sveitarfélaginu Reykjanes- bæ? Skóla? Hér er búið að lyfta grett- istaki í skólamálum og aðstaða er öll að verða hin besta. Skólafólk kemur hvaðanæva af landinu til að skoða aðstöðuna. Kennarar em einnig almennt vel menntaðir og hægt er að fá góða menntun ef vilji, geta og hvatning í foreldra- húsum er fyrir hendi. Veóur? Veður er mjög milt á Suðurnesjum, en vindasamt. Veðurathugun á Keflavíkurflug- velli gefúr þó ekki rétta mynd af veðrinu í Keflavík og Njarðvík. Mælingar fara fram á hábung- unni á Keflavíkurflugvelli, við Garðskagavita og Reykjanesvita þar sem hvergi nýtur skjóls. Ekki myndu Reykvikingar sætta sig við að veðurathuganir á Seltjam- amesi og i Breiðholti væri réttur mælikvarði fyrir veður á höfuð- borgarsvæðinu. A þessu ári vom 11 dagar í Reykjavík þar sem hiti fór yfir 15°C, en 8 dagar á Kefla- víkurflugvelli. Hér bráðvantar því veðurstöð á skjólsælum stað í bæjarfélaginu. Atvinna? Hér er næg atvinna á svæðinu og atvinna fyrir mun fleiri heldur en hér búa. íþróttaaðstaða? Aðstaðan er yfir- leitt til fyrintyndar, en þó vantar einn góðan hól fyrir vetrariþrótt- ir. Heiðargarðsfell annar ekki lengur fjöldanum og er heldur i lægra lagi. Skipulag bæjarins? Er þetta að- laðandi bær? Hér er ljótum iðn- aðarsvæðum raðað hringinn í kringum sveitarfélagið og nú á að fæla þá í burtu sem vom svo vitlausir að kaupa eða byggja húsnæði við opið svæði ofan Keflavikur. Eg vil þvi leggja til við það ágæta fólk sem leggur fram tíma sinn og hugvit til sveit- arstjórnarmála að það setji sér það markmið í skipulagsmálum að gera bæinn eftirsóknarveröan fyrir fólk. Asgeir Eiríksson, Heimavöllum 13, Keflavík. Fundur Vinstri grænna á Suðurnesjum Stofnað hefur verið svæðisfélag Vinstrihreyf- ingarinnar græns framboðs (VG) á Suður- nesjum. Félagið er opið öllum Suðurnesja- búunt sem stvðja stefnumál flokksins og ekki eru skráðir í annan stjórnmálaflokk. Félagiö licldur sinn fyrsta opna stjórnmálafund á Hafn- argötu 15 (fyrir ofan Úrval-Útsýn) á fimmtudag- inn 22. nóv. klukkan 20. Gestur fundarins verð- ur Ögmundur Jónasson alþingismaður. Sjá greinina í heild sinni á www.vf.is og þeir sem hafa áhuga á frekari upplýsingum um starfsemi og stefnu VG á Suðurnesjum geta haft samband við Þorvald Öm Amason í síma 424-6841 og netfang: valdur@isl.is 12

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.