Víkurfréttir

Eksemplar

Víkurfréttir - 24.01.2002, Side 2

Víkurfréttir - 24.01.2002, Side 2
BREIÐÞOTA VIRGIN ATLANTIC LENTI í KEFLAVÍK VEGNA HÓTUNAR Á SPEGLI Frábærar mót- tökur íslendinga Það var ckki sagt að það væri sprengjuhótun en það niátti iesa úr tilkynn- ingu flugstjórans að þetta var meira en iítil bilun. Þetta var alvarlegt", sagði Neal Macarh- ur, enskur l'arþegi mcð Bocing vélinni sem lcnti í Keflavík. Ncal hrósar íslcnskum lög- gæslumönnum mikiö fyrir mótttökurnar. Neal vildi koma á framfæri kær- um þökkum til íslensku lög- gæslumannanna sem tóku á móti farþegunum 340. Farþegarnir þurftu að afhenda handfarangur sem fór í gegnum nálarauga ís- lensku tollgæslumannanna í skýli 2 á Keflavíkurflugvelli, skömmu eftir lendingu vélarinnar. „Það var ekki neitt uppistand um boró. Það voru allir rólegir. Þetta er hins vegar sérstök uppákoma og það hefur verið skemmtilegt og ánægjulegt að fylgjast með hvemig farið var með okkur far- þegana. Þið Isiendingar getið verið stoltir af því. Hvar sem við höfum komið höfum við fengið frábæra meðferð ef hægt er að segja svo. Allir svo vingjamlegir og hjálplegir. Mér finnst þetta al- veg sérstakt. íslendingar eiga heiður skilið og mikið hrós fyrir sína ffammistöðu í þessu máli “, sagð Neal sem var á leið til Or- lando. Aðrir farþegar úr vélinni tóku í sama streng og sögðu að allt hefði farið vel fram og hrósuðu einnig áhöfn flugvélar- innar. Farþegamir voru fluttir úr skýli 2 eftir leitina í farangrinum og i Leifsstöð þar sem þeir áttu að fá að borða. Óskar Þórmundsson, yfirlög- regluþjónn og Jóhann Benedikts- son, sýlsumaður sögðu að að- gerðir hefðu gengið mjög vel. Oskar sagði að bandariska leyni- þjónustan hefði fylgst með fram- gangi mála. Jóhann sagði að samvinna aðila í málinu hefði gengið vel og farþegar hefðu einnig verið rólegir og góðir í samskiptum. „Ég á ekki von á því að við finnum sökudólginn og ég á ekki von á því að við finnum neitt í flugvélinni. Það er ekki útlit fyrir annað en að þetta sé gabb“. Einhver farþeganna skrifaði á spegil á snyrtingu vél- arinnar, hótun til Bandarikjanna og góð orð um Bin Laden. Aðgerðir á flugbraut tókust vel og vélin var rýmd á mettíma. Myndir: Páll Ketilsson AllAmericans must die Ofögur orð um Banda- rikjamenn skrifuð nieö sápu á spegil í þotu Virg- in Atlantic urðu til þess að hún snéri inn til lendingar á Kefla- víkurflugvelli á sjötta tímanum á laugardagskvöld. bað var á- hafnarmeðlimur sem sá skila- boðin á speglinum og gerði flugstjóra viðvart. Meðal ann- ars stóð: „All Americans must die“. Þaö var haft cftir Jóhanni Benediktssyni sýslumanni á fréttavef CNN. Um borð í vélinni voru 357 manns en vélin var á leið frá Gatwick á Englandi til Orlando í Bandaríkjunum. Hótunarinnar varð vart um einum og hálfúm tíma áður en vélin lenti í Kefla- vík. Talsmaður Virgin Atlantic tjáði CNN að áhafnarmeðlimur hafi fúndið skilaboðin við venjubund- ið eftirlit. Hann sagði jafnffamt að þvi hafi aldrei verið trúað að vélin væri í hættu, heldur hafi flugfélagið verið að fara eftir ör- yggisreglum. Vélin tók á loft frá Gatwick kl. 11:00 á laugardags- morgun og lenti í Keflavik kl. 17:26 i —! -JOB iN Frá leit í farangri farþega vélarinnar. Eldur í ein- býlishúsi Eldur kviknaði í einbýl- ishúsi við Norðurtún í Sandgerði aðfaranótt þriðjudags. Lögreglunni í Keflavík var gert viðvart um brunann laust fyrir klukkan eitt um nóttina. Hjón sem búsett eru i húsinu vöknuðu upp við reyk- skynjara og voru komin út þegar slökkvilið kom á vett- vang. Þeim varð ekki meint af reyknum. Að sögn lög- reglu eru skemmdir á húsinu talsverðar. Þegar lögreglu og slökkvilið bar að var talsverður reykur en lítill eldur í eldhúsi. Talið er að kviknað hafi í út frá uppþvottavél. Greiðlega gekk að slökkva eldinn. UMFERÐIN Á SUÐURNESJUM Tvö umferðaróhöpp við Stekk Hálka varð til þess aö ung- ur ökumaður missti stjórn á bifreið sinni og missti hana upp á umferðar- eyju á gatnamótum Stekks og Njarðarbrautar. Ökumaðurinn sem er um tvítugt kvartaði undan cymslum í baki, eftir högg sem hann hlaut við að fara upp á umferðarevjuna. Jón þór Karlsson, hjá lögreglunni í Keflavík, segir bílinn vera illa farinn og var hann dreginn af vettvangi. Kvöldið áður varð árekstur 50 metrum frá þessum stað, hinu- megin í Stekk, þar sem hann tengist Reykjanesbraut. Öku- maður bíls kom akandi vestur Reykjanesbraut og annar eftir Stekk og ekki vildi betur til en að þeir skullu saman. Talið er að sá sem ók eftir Stekk hafi ekki séð bifreiðina á Reykjanesbrautinni og því ekið í veg fyrir hana, við þessi gatnamót er stöðvunar- skylda. Annar ökumannanna kvartaði unda eymslum í hálsi og kom sér sjálfur á sjúkrahús og draga þurfti annan bílinn af vett- vangi með dráttarbíl. 2

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.