Víkurfréttir - 11.04.2002, Page 11
STÆRSTI
fréttavefurinn
á Suðumesjum
vf.is
Kvennakór Suöurnesja:
Vortónleikar
) í kvöld og á
I þriðjudag
Kórinn hefur starfað af
krafti í vetur og stcndur
fyrir kóramóti fyrir
kvennakóra landsins í maín.k.
í Reykjanesbæ og eru 14 kórar
yæntanlegir til þátttöku.
Arlegir vortónleikar Kvennakórs
Suðumesja verða, fimmtudaginn
11. apríl og þriðjudaginn 16.
apríl n.k. í Y- Njarðvíkurkirkju
kl. 20.30 og er miðaverð kr.
1.200.
Efnisskráin er fjölbreytt m.a.
klassik gömlu meistaranna,
óperettulög, þjóðlög og dægur-
lög, innlend og erlend.
Stjórnandi er Sigurður Sævars-
son, tónskáld og undirleikarar
eru: Geirþrúður Bogadóttir, pí-
anó, Þórólfur Þórsson, bassagitar
og Þorvaldur Halldórsson,
trommur.
ATLI MÁR GYLFASON SKRIFAR UM FÉLAGSLÍFIÐ í SKÓLANUM
Erfjör á fjölbraut?
Fclagslífið er mikilvægur
hluti af öllu skólastarfi og
á það eftir að þroska ein-
—staklinginn og
Bk undirbúa liann
fyrir mannleg
• _ ■ samskipti þeg-
V ■* ^ 1 ar hann leggur
* af staö út í lífið.
Félagslíf er
d Pj ckki byggt upp
J heima
heldur er það
skapað í skólum landsins með
klúbbastarfsemi og dansleikj-
um.
Klúbbamir eiga að vera fjöl-
breyttir og á hver og einn að
eiga sitt tækifæri til að stofna
sinn eigin klúbb en ekki rná
gleyma dansleikjunum sem
setja skemmtilegan svip á fé-
lagslífið. Þegar ungmenni á
grunnskólaaldri koma að þeim
tímamótum í lífi sínu að þau
þurfi að velja framhaldsskóla er
off litið til félagslífsins. Sann-
leikurinn er sá að ungmenninn
hugsa um það hve lífið verður
ljúfl þegar dansleikimir lengjast
og þau fái að taka þátt í skipu-
leggingu á dansleikjum og
annarri starfsemi sem gmnn-
skólinn sá um áður fyrr.
Undirritaður var einu sinni á
þeim tímamótum að ltann þurfti
að velja sér skóla og endaði
hann með því að fara í Fjöl-
brautaskóla Suðumesja hér eftir
F.S. Hann og vinir hans höfðu í-
myndað sér kröftugt félagslíf og
góða klúbbastarfsemi en sú varð
raunin ekki. Nú er undirritaður
að klára sitt annað ár í
áðumefhdum skóla og hefur
hann gert sér grein fyrir því að
mikið verk er fyrir höndum ef
bæta á félagsh'fið í skólanum.
Til þess að það sé mögulegt
þurfa bæði nemendur og síðast
en ekki síst nemendaráð að
hrista af sér slenið og taka þátt í
félagslífinu, því öflugt félagslíf
byggist upp á hvetjandi nem-
endaráði og hressum nemend-
um. Oflar en ekki hefúr dregið
úr mætti nemenda í FS er þeir
horfa til íjölbreytts félagslífs í
skólum á höfúðborgarsvæðinu.
Málið er að við getum orðið
eins öflug og þau nemendafélög
ef við bara leggjum okkur fram.
Eg tek dæmi um Fjölbrautaskól-
ann í Garðabæ, hér eftir F.G.,
þar sem félagslíf þeirra var í
lamasessi fyrir ári siðan svipað
og hjá okkar nú. Fyrir átta mán-
uðum tók ný stjórn við hjá F.G.
og ætlaði stjómin sér stóra hluti
og ímyndaði sér eitthvað sem
enginn haföi áður þorað. Þaö
eina sem þurfti til að gera þessa
hluti var þáttaka nemenda i
skólanum. Það tókst og núna er
F.G. með öflugt félagslíf. Einn
af þessum stóm hlutum sem
F.G. hafði imyndað sér var að
setja upp leiksýningu sem átti
eftir að setja svip sinn á félags-
lífið.
Auglýst var eftir leikumm og
buðu sig svo margir fram að á-
heymarpróf þurfti að hafa fyrir
alla. Þessi sýning heitir nú Hárið
og byrjuðu þeir að sýna hana
fyrir rnánuði. Salurinn hjá þeim
tekur u.þ.b 500 manns og ennþá
em þau að fylla og hálffylla sal-
inn. Nemendafélag Fjölbrauta-
skóla Suðumesja, hér eftir,
N.F.S. er að reka klúbb sem
heitir Vox Arena og ákvað þessi
klúbbur að hefja samstarf við
Leikfélag Keflavíkur. Auglýst
var eftir leikurum hjá okkur
svipað og hjá F.G. og aðeins
u.þ.b 20 manns mættu. Vox
Arena og Leikfélagið ákvað þó
ekki að gefast upp og náði að
fjölga hópnum upp i þijátíu.
Samþykkt var að sýna söngleik-
inn Gretti sem hafði verið sýnd-
ur hér i Reykjanesbæ árið 1989.
Mikil vinna var lögð í þetta af
hálfu nemenda og átti útkoman
eftir að verða frábær. Uppselt
var á fyrstu sýningu enda um
frumsýningu að ræða. Nemend-
umir sem stóðu að leiksýning-
unni horfðu björtum augum á
framtið leikritsins og væntu þess
að allir í F.S. kæmu að sjá. Svo
varð raunin ekki. U.þ.b 50
rnanns af 700 sem sækja þennan
skóla hafa séð þessa sýningu og
er það til svo mikillar skammar
og sýnir einmitt stemninguna og
áhugann í F.S.
Ekki má svo gleyma bæjarbúum
sem einnig hafa látið þessa sýn-
ingu falla í gleymsku og er það
dálítið sárt að horfa upp á þetta
allt saman. Loksins þegar nem-
endur taka sér stórt fyrir hendur
þá hrynur það bara beint fyrir
ffaman andlitið á þeim. Ég vona
að við getum í framtíðinni átt
öflugt félagslíf þar sem öllum
líður vel og fólk hlakkar til að
geta tekið þátt í starfseminni
sem er á bakvið hvem einasta
klúbb, hvert einasta ball og
hveija einustu sýningu sem
skólinn og nemendafélagið
stendur fyrir. En raunveruleik-
inn er sá að áhugaleysi og kraft-
leysi heijar nú á meirihluta
nemenda í F.S. en hver gæti á-
stæðan verið. Gæti það verið
nemendaráðið?
Gæti það verið nemendumir
sjálfir? Gæti það verið stjóm
skólans? Nú þegar önnin er á
enda og félagslífið leggst í dvala
vill ég biðja alla að líta i eigin
barm og koma með ferskar hug-
myndir um hvemig hægt er að
bjarga þessu litla félagslífi
næsta haust, þvi ég held að við
þurfúm þess.
Atli Már Gylfason
Nemandi í Fjölbrautaskóla
Suðurnesja
Klúbburinn og Bugsy
Malone í Myllubakka
Nemendur ásamt kennur-
um Myllubakkaskóla
hafa undanfarið verið að
sýna leikritið
Bugsy Malone
við mjög góðar
móttökur.
Stjórnendur
sýningarinnar
er Díana, Gunn-
heiður, Iris
Dröfn og Lilja
Kristrún en þær
kenna allar við skólann.
Það em rúmlega 40 nemendur
sem taka þátt í sýningunni og í
þeim hóp er mikið að góðum
söngvumm, dönsumm og leikur-
um. Sýningin ber það með sér að
mikill metnaður hefúr verið lagð-
ur í hana. og leynist engum sem
séð hefúr sýninguna að um mik-
ið þrekvirki er að ræða. Eitt af
því sem ég tók sérstaklega eftir
og fannst setja mikinn brag á, var
hvað allir þátttakendumir og
kennaramir höfðu gaman af.
Gerði það sýninguna enn betri og
hreyf mig með sem áhorfenda.
Ég veit að allir söngvamir hafa
verið sungnir inn á geisladisk og
hefúr verið til sölu hjá skólanum.
Ég vil þakka stjómendum, þátt-
takendum og öllum öðmm sem
að sýningunni korna fyrir frá-
bæra skemmtun og vel heppnaða
sýningu.
Að síðustu langar mig að þakka
stjómendum skólans fyrir lista-
klúbbinn sem starfað hefúr í
skólanum í vetur í tenglum við
50 ára afmæli skólans. Lista-
klúbburinn er búinn að vera góð
viðbót við tómstundarval fyrir
nemendur og vil ég hvetja ykkur
til að halda áfram því góða starfi
í ffamtíðinni.
Ólöf K. Sveinsdóttir, móðir,
skipar 4-sæti Framsóknar-
manna í næstu bæjarstjórnar-
kostningum.
Allir kjósa
Víkurfrétiir!
LEIKFEUG KEFtflVfMIR
vox
ARENA
SÝNA SÖNGLEIKINN
GRETTIR
SÍÐUSTU
SÝNINGAR
í Frumleikhúsinu.
Höfundar: Egill Ólafsson, Ólafur Haukur
Símonarson og Þórarinn Eldjórn.
Leikstjóri: Jón Póll Eyjólfsson.
Næstu sýningar:
13. sýning fimmtudaginn 11. apríl
14. sýning föstudaginn 12. apríl-
ÖRFÁ SÆTI LAUS
16. sýning laugardaginn 13. apríl
17. sýning sunnudaginn 14. apríl
Sýningar hefjast kl. 20.
Miðasala opnar kl. 19 sýningardagana.
Miðaverð kr. 1.500,- fyrir fullorðna
og kr. 1.000,- fyrir skólafólk
Miðapantanir í síma 421 2540.
Daglegar fréttir frá Suöurnesjum á www.vf.is
11