Víkurfréttir - 20.06.2002, Page 10
Fimmtudagurinn 20. júní 2002
LÖGREGLAN
Atvinna í boði
Fjölskyldu- og félagsþjónusta Reykjanesbæjar auglýsir eftir
starfsmanni í ræstingar við Dagdvöl aldraðra frá 1. júlí n.k.
Um er að ræða 30% starf og er vinnutími eftir kl. 16:00.
Laun skv. kjarasamningum Reykjanesbæjar og viðkomandi
stéttarfélags.
Umsóknarfrestur er til 26. júní n.k. Upplýsingar gefur
forstöðumaður Elísabet Þórðardóttir í síma 421 4669
millikl. 10:00 og 14:00.
Dagdvöl aldraðra er eitt af stuðningsúrræðum Reykjanesbæjar
fyrir aldraða sem gerir fólki kleift að búa sem lengst heiina.
Dagdvölin er staðsett við Suðurgötu 12 í Keflavík og er
aðgengi frá skrúðgarðinuin. Við Dagdvölina starfa 4
starfsmenn og daglega geta 20 einstaklingar fengið
jijónustu hver við sitt hæfi.
Öldrunarfulltrúi Reykjanesbæjar
REYKJANESBÆR
TJARNARGÖTU 12
230 KEFLAVlK
Byggingarnefnd Saltfiskseturs íslands, Grindavík, óskar
eftir tilboðum ífrágang lóðar við nýbyggingu
Saltfiskseturs í Grindavík.
Helstu magntölur:
Grjóthleðsla 1.235 m3
Trépallar 260 m2
Hellulögn 275 m2
Malbik 500 m2
Gögn verða afhent á skrifstofu bcejartcekni-
frceðingsins í Grindavík frá 26. júní. nk.
Tilboð verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 9. júlí.
Byggingamefnd Saltfiskseturs íslands
Dópaður á stolnum bíl lenti í árekstri
Harður árekstur varð fyrir helgi á gatnamótum Reykjanesbrautar
og Grindavíkurvegar. Onnur bifreiðin sem lenti í árekstrinum var
eftirlýst eftir að hafa verið stolið af bílasölu í Reykjavík. Ökumað-
ur hennar er grunaður um fikniefrianeyslu.
Þorvaldur Benediktsson, varðstjóri lögreglunnar í Keflavík, sagði í
samtali við Víkurfréttir að maðurinn hafi ekki reynt að komast
undan vörðum laganna, þrátt fyrir slæma samvisku og ólöglegt at-
hæfi. Engin slys urðu á fólki en báða bílana varð að fjarlægja með
kranabifreið.
Minniháttar eldur í Leifsstöð
Eldur kom upp í ruslatuntiu í Flugstöð Leifs Eíríkssonar um ell-
efuleytið á laugardagskvöld. Að sögn lögreglunnar á Keflavíkur-
flugvelli var eldurinn minniháttar og var hann slökktur hið snarasta
með handslökkvitæki.
Ekki var nein hætta á ferðum en sjálfvirkt viðvömnarkerfi stöðvar-
innar fór þó í gang þar sem ekki var búið að endurræsa kerfið í
tíma eftir að eldurinn kom upp.
Ölvaður hestamaður tekinn á Reykjanesbraut
Lögreglan í Reykjanesbæ afstýrði slysi þegar hún stöðvaði drukk-
inn hestamann á Reykjanesbraut seint að kvöldi um þarsíðustu
helgi. Hestamaðurinn var á hrossum sínum á vegöxl hraðbrautar-
innar og fór mikinn.
„Lögreglumenn óku manninn uppi þar sem þeim þótti reiðlagið
einkennilegt," segir Jóhannes Jensson rannsóknarlögreglumaður i
Reykjanesbæ. „Létu þeir hann blása í blöðm og kom þá í ljós að
hann var vemlega undir áhrifum. Þetta er að sjálfsögðu stórhættu-
legt.“
A meðan hestamaðurinn blés í blöðm lögreglunnar fældist einn
hestanna og hljóp út á hraðbrautina. Náðist hann fljótt og urðu
engin slys. í framhaldinu var haft samband við aðstandanda
mannsins sem tók að sér hross og knapa með loforði um að ekkert
yrði af frekari útreiðum mannsins þann daginn.
,^Ég vil þó taka ffarn að hestamenn em almennt famir að haga sér
betur nú en áður var þegar við sátum oft uppi með heilu hópreið-
amar vegna ölvunar," segir Jóhannes Jensson.
Leikskólinn Garðasel í Keflavík hélt sumarhátíð sína á
sólríkum degi I um 20 stiga hita fyrir stuttu. Fjöidi
barna skemmti sér vel í slagtogi með trúði sem heim-
sótti hátíðina á sama tíma og foreldrarnir flatmöguðu úti í
sólinni. Það sem þótti athyglivert við hátíðina var það að
sumarhátíð Garðasels var haldin á leikskólanum Heiðar-
seli! Nú er unnið að endurbótum á Garðaseli og því var
notast við aðstöðuna á næsta leikskóia.
Útkallssími blaðamanna
og Ijósmyndara allan sólarhringinn
42 000
10