Morgunblaðið - 26.05.2016, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 26.05.2016, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Hefja á byggingu þúsund fermetra þjónustumiðstöðvar við Skeiðavega- mót austan við Selfoss í sumar. Stefnt er að því að opna þjónustumiðstöðina í apríl á næsta ári. „Þarna verður flottur íslenskur veitingastaður þar sem fólk getur smakkað mat og bjór úr héraðinu. Við ætlum að leggja áherslu á að kynna íslensk matvæli og drykki,“ sagði Viggó Sigursteinsson, tals- maður fjárfesta verkefnisins. „Við stílum svolítið inn á ferðamenn og rúturnar. Þarna verður líka eldsneyt- is- og rafmagnssala.“ Viggó sagði að þjónustumiðstöðin ætti að falla vel inn í landið á vistvæn- an máta. Meðal annars myndu hraun- og grjóthleðslur setja svip sinn á byggingarnar og umgjörð þeirra. Byggingarreiturinn er sjö þúsund fermetrar og er sótt um leyfi til að byggja allt að fimm þúsund fermetra húsnæði. Viggó sagði að byggingar sem kynnu að rísa þarna í framtíðinni yrðu þjónustutengdar. Ekki væri ætlunin að byggja gistihús. Uppbyggingu skipt í áfanga Skipulags- og byggingarfulltrúi uppsveita bs. auglýsti 19. maí sl. deili- skipulag þjónustumiðstöðvarinnar, sem verður á lóð úr landi Bitru í Flóa- hreppi. Skipulagið er auglýst í sex vikur. Fyrirhuguð þjónustumiðstöð á að rísa á spildu úr landi Bitru við vega- mót Suðurlandsvegar og Skeiða- og Hrunamannavegar. Svæðið er um þrír hektarar. Á þessum stað er nú skoðunarplan Vegagerðarinnar og fjarskiptamastur. Á deiliskipulagsuppdrættinum kemur fram að uppbyggingu svæð- isins verði skipt í áfanga. Í fyrsta áfanga verður byggð fyrrgreind 1.000 fermetra þjónustumiðstöð. Þá er átt við þjónustu við ferðamenn og umferð um þjóðveginn auk nærsvæð- isins. Þjónustan nær til eldsneytis- sölu, matsölu, minjagripasölu og sölu annars varnings og þjónustu. Þar segir einnig: „Markmiðið er að skipuleggja þjónustumiðstöð, þar sem haft er að leiðarljósi að bygg- ingar falli vel að landslagi og styðji vel við þá starfsemi sem þarna fer fram. Fyrirhugað er að sækja um vínveitingaleyfi fyrir starfsemi sem rekin verður á svæðinu.“ Þjónustumiðstöð við Skeiðavegamót  Veitingastaður sem leggur áherslu á að kynna íslenskan mat og drykk  Eldsneytis- og rafmagns- sala fyrir farartækin  Sótt um að byggja allt að 5.000 m2 hús  Ekki stendur til að byggja gistihús Ný þjónustumiðstöð SELFOSS Suðurlands vegur Sk eið a- og Hr un am an na ve gu r ÞJÓRSÁ Loftmyndir ehf. Fyrirhuguð þjónustumiðstöð Ómar Friðriksson omfr@mbl.is Embætti landlæknis fékk í fyrra 34 andlát til skoðunar þar sem líkur eru á að dauðsföllin megi rekja til lyfjaeitrunar og leiddi athugun í ljós að í mörgum tilfellum höfðu hinir látnu ekki fengið lyfin ávísuð sjálfir. „Mikið af ávanabindandi lyfjum sem læknar ávísa ratar á svartan markað vegna þess að einstakling- ar gera sér upp veikindi til að fá lyf til að selja,“ segir Ólafur B. Einarsson, verkefnisstjóri lyfja- mála hjá landlækni, í umsögn til Alþingis við þingsályktunartillögu heilbrigðisráðherra um lyfjastefnu til ársins 2020. Ólafur segir í sam- tali við Morgunblaðið að menn horfi upp á annan veruleika hér á landi en í nágrannalöndunum ,,vegna þess að læknalyf eru tengd alvarlegri misnotkun í miklu meiri mæli hér en virðist vera annars staðar“. Í umsögn Ólafs til velferðar- nefndar þingsins segir hann að hér séu læknalyf stór hluti af alvarlegri misnotkun en aðrar þjóðir glími við vandamál vegna misnotkunar ólög- legra efna. Í umsögninni segir hann sum þessara lyfja mjög hættuleg ef þau séu misnotuð. ,,[...] árið 2015 voru 34 andlát til skoðunar hjá EL [embætti landlæknis] en skoðun leiðir í ljós að í mörgum tilfellum höfðu hinir látnu ekki fengið ávísað lyfjunum sjálfir. Í 9 af þessum 34 fannst methylfenidat (t.d. lyfið Rí- talín) en aðeins einn hafði fengið lyfinu ávísað,“ segir í umsögn hans um þingmálið. Hundruð innlagna á bráðadeild Á hverju ári séu hundruð ein- staklinga lögð inn á bráðadeild Landspítala vegna lyfjaeitrana en embætti landlæknis hafi ekki skýrt leyfi til að skoða markvisst ávísanir til þessara einstaklinga. Ólafur segir landlæknisembættið geta kallað eftir upplýsingum „en við getum ekki skoðað markvisst hverju þetta fólk er að fá ávísað áður en það leggst inn og spítalinn er ekki í nokkurn stakk búinn að tilkynna þeim læknum sem ávísa lyfjunum,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið. „Ef við ætlum að taka á þessum málum verður að gera eitthvað rót- tækt. Það þýðir ekkert að vera að berjast með hendurnar bundnar fyrir aftan bak,“ bætir hann við. Í umsögninni bendir Ólafur einn- ig á að mörg lyf séu gerð upptæk af lögreglu en ábendingar berist sjaldan til Embættis landlæknis svo að ekki hægt sé að stöðva ávís- anir til þeirra sem selji. Engin lög eða reglugerðir gefi leyfi fyrir því að slíkar upplýsingar berist frá lögreglu til landlæknis og öfugt. Skoðar dauðsföll vegna lyfjaeitrunar  Læknalyf eru tengd alvarlegri misnotkun í mun meiri mæli hér á landi en annars staðar  Ávana- bindandi lyf rata á svarta markaðinn  „Verður að gera eitthvað róttækt“ segir landlæknisembættið Morgunblaðið/Ómar Landspítalinn Hundruð einstak- linga eru lögð inn á bráðadeild vegna lyfjaeitrana á hverju ári. Laugarnesskóli í Reykjavík held- ur upp á 80 ára afmæli sitt á laugardag í samstarfi við árlegu hverfishátíðina Laugarnes á ljúf- um nótum. Börnin hafa í vikunni undirbúið afmælishátíðina með ýmsum hætti. Sigríður Heiða Bragadóttir, skólastjóri Laugarnesskóla í tæp- lega 10 ár, segir skólann hafa sérstæð einkenni. „Það sem ein- kennir Laugarnesskóla er að hann hefur sterkar rætur. Við höfum haldið í morgunsöngshefð- ina og komum saman á hverjum einasta degi og syngjum tvö lög. Hann er einnig framsækinn að því leyti að við leitum stöðugt leiða til að bæta starfið.“ Skólinn hefur einnig sérstöðu meðal ís- lenskra grunnskóla vegna þeirra listaverka, sem í honum standa og hanga. Forsalurinn var skreyttur af Ásmundi Sveinssyni og ganga skólans prýða mörg málverk eftir Jóhann Briem. Skólinn verður opinn gestum og gangandi á laugardag milli 13 og 16. Dagskráin er fjölbreytt og alls kyns sköpunarverk nemenda verða til sýnis, þar á meðal mósa- ík-veggmynd sem allir nemendur lögðu stein í. Skólablöð frá árinu 1945 til dagsins í dag verða til sölu í fjáröflunarskyni fyrir skólaselið. tfh@mbl.is Morgunsöngur sunginn hvern skóladag í áttatíu ár Stórafmæli í Laugardalnum Sjálfsmyndir Nemendur og kennarar hafa í vikunni teiknað sjálfsmyndir með hjálp spegla og verða þær sýndar á laugardag. Morgunblaðið/Ófeigur Sungið Nemendur Laugarnesskóla sungu í gær morgunsöng eins og þeir hafa gert á hverjum morgni í áttatíu ár.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.