Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 9

Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Karlmaður sem meiddist á hendi í vinnuslysi í janúar árið 2011 og stefndi ríkinu krafðist þess að fá 35 millljónir króna í skaðabætur vegna háttsemi læknis og nota á við- kvæmum persónuupplýsingum. Samkvæmt dómi héraðsdóms, sem féll síðastliðinn mánudag, ber ís- lenska ríkinu hins vegar að greiða manninum 100.000 krónur í skaða- bætur. Maðurinn leitaði til tveggja lækna vegna áverka sinna, annars vegar í Neskaupstað og hins vegar í Reykja- vík. Læknarnir voru ósammála um hvaða meðferð skyldi beita og fór málið fyrir siðanefnd Læknafélags- ins. Við meðferð þess sótti annar læknanna upplýsingar um manninn úr sjúkraskrá og notaði sér til varn- ar. Ríkið hefur viðurkennt bóta- ábyrgð og sneri ágreiningurinn því að fjárhæð skaðabótanna, sem varð mun lægri en maðurinn krafðist, líkt og fram kemur í úrskurði héraðs- dóms. erla@mbl.is Fær bætur vegna vinnuslyss  Krafðist 35 millj- óna en fékk 100 þús. Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir Neskaupstaður Slysið gerðist þeg- ar maðurinn var á leið til vinnu. Belgíska stórfyrirtækið Jan de Nul átti lægsta tilboðið í dýpkun við Bæjarbryggju í Siglufirði, en tilboð í verkið voru opnuð hjá Vegagerð- inni í vikunni. Jan de Nul hefur unnið að dýpk- un Landeyjahafnar undanfarin misseri. Belgíska fyrirtækið bauðst til að vinna verkið fyrir tæpar 51,3 millj- ónir. Er það tæpum 22 milljónum undir áætlaðum verktakakostnaði, sem var 73 milljónir. Björgun ehf í Reykjavík bauð tæpar 70 milljónir í verkið. Helstu verkþættir og magntölur í útboðs- lýsingu voru: Dýpkun á fínu efni framan við Bæjarbryggju og innsiglingu í Siglufjarðarhöfn og losun fínefna í sjó við Siglunes og grófara efni á fyllingarsvæði við enda Bæj- arbryggju. Dýpkun á fínu efni um 65.000 m3 og dýpkun á grófara efni um 15.000 m3 Verkinu skal lokið eigi síðar en 1. ágúst 2016. Belgíska fyrirtækið Jan de Nul komst fyrst í fréttirnar í ágúst 2015 þegar í ljós kom að það átti lægsta tilboðið í dýpkun Landeyjahafnar árin 2015 til 2017. Fyrr í þessum mánuði voru opnuð tilboð í svokall- aða haustdýpkun Landeyjahafnar árin 2016 til 2018. Þar átti belgíska fyrirtækið einnig lægsta tilboðið. Það hefur ekki boðið í önnur dýpkunarverkefni hér á landi þar til nú. Í flota Jan De Nul eru 75 skip og er fyrirtækið hið stærsta sinnar tegundar í heiminum. sisi@mbl.is Belgarnir lægstir enn á ný Ljósmynd/Landeyjahöfn Dýpkun Belgíska sanddæluskipið Galileo 2000 að störfum í Landeyjahöfn.  Jan de Nul átti lægsta tilboð í dýpkun í Siglufirði Almenna leigu- félagið sem keypti 450 íbúðir af Íbúðalánasjóði er ekki í eigu Gamma, eins og sagt var í frétt um leigumiðlara og leigumark- aðinn á blaðsíðu 4 í Morgunblaðinu í gær. Rétt er, samkvæmt upplýsingum frá Gamma Capital Management, að fyrirtækið stýrir sjóðum sem eiga Almenna leigufélagið. Almenna leigufélagið er hins vegar í eigu þriggja fasteignasjóða sem sjóð- félagar svo eiga. Það eru því í raun sjóðfélagar í umræddum fast- eignasjóðum sem keyptu Klett, dótt- urfélag Íbúðalánasjóðs, með þeim 450 íbúðum sem í eigu þess eru. Beðist er velvirðingar á mistök- unum. Almenna leigufélagið í eigu sjóðfélaga Hús Félagið er nú með 1000 íbúðir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.