Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Innan bæjarmarka Tetelcingo í
Mexíkó fer nú fram uppgröftur í
fjöldagröf sem talið er að geymi yfir
100 lík. Var gröfin á sínum tíma graf-
in af stjórnvöldum sökum þess að
ekki var lengur hægt að geyma jarð-
neskar leifar fólks sem látist hafði
vegna ofbeldisglæpa, s.s. í átökum
glæpagengja, í líkhúsum vegna mik-
ils plássleysis. Almenningur komst
fyrst á snoðir um fjöldagröfina í
mars á seinasta ári.
Fréttaveita AFP greinir frá því að
fjölmargir ættingjar fólks sem sakn-
að er hafi safnast saman utan við ör-
yggisgirðingu sem reist hefur verið
við gröfina. Einn þeirra er Guillerm-
ina Sotelo sem leitar sonar síns sem
hvarf sporlaust fyrir nærri fjórum
árum.
„Þetta er algert óréttlæti. Það
hefði ekki átt að henda þessu fólki í
gryfju eins og um skepnur væri að
ræða,“ segir hann í samtali við AFP.
Tvær 10 m djúpar gryfur
Fjöldagröfin virðist skiptast í
tvær gryfjur sem báðar eru um 10
metra djúpar. Sú ákvörðun stjórn-
valda að koma líkum þar fyrir þykir
vera til marks um hve alvarlegt
ástandið er í Mexíkó þegar kemur að
ofbeldisglæpum og mannfalli þeim
tengdum.
Maria Concepcion Hernandez,
móðir ungs manns sem myrtur var í
maí 2013, er sú sem vakti athygli al-
mennings á fjöldagröfinni. Gerði hún
það eftir að hafa fengið upplýsingar
frá stjórnvöldum þess efnis að sonur
hennar hefði verið grafinn þar. Lík
hans var grafið upp í desember síð-
astliðnum og á myndbandsupptöku,
sem sýnir uppgröftinn, má sjá að lík
mannsins lá undir fjölmörgum öðr-
um líkum.
Minnst 28.000 eru horfnir
AFP greinir frá því að í fylkinu
Morelos, þar sem meðal annars má
finna áðurnefndan bæ, sé fíkniefna-
neysla sú mesta í landinu og fylgja
henni fjölmörg alvarleg afbrot á borð
við mannrán og morð.
Talið er að um 28.000 manns hafi
horfið sporlaust í Mexíkó á undan-
förnum tíu árum.
AFP
Uppgröftur Sérfræðingar fara nú yfir fjöldagröf sem fannst við bæinn Tetelcingo, en yfir 100 manns hvíla þar.
Telja yfir 100 lík vera
í fjöldagröf í Mexíkó
Þegar líkhús fylltust var líkum safnað í tvær gryfjur
Mawlawi Hibatullah Akhundzada er
nýr leiðtogi talibana í Afganistan.
Tekur hann við af Mullah Akhtar
Mansour sem nýverið var drepinn í
drónaárás Bandaríkjahers í suð-
vesturhluta Pakistans. Er það
breska ríkisútvarpið (BBC) sem
greinir frá þessu og vitnar til yf-
irlýsingar talibana.
Í valdatíð Mansours neituðu tal-
ibanar ítrekað að taka þátt í nokk-
urs konar friðarviðræðum við
stjórnvöld í Afganistan og segja
sérfræðingar í öryggis- og varn-
armálum, sem BBC ræddi við, afar
ólíklegt að breyting verði á þeirri
stefnu nú þegar Akhundzada er
tekinn við keflinu.
Hver er hinn nýi leiðtogi?
Akhundzada er á bilinu 45 til 50
ára gamall og kemur frá Kandahar,
einu helsta höfuðvígi talibana, í suð-
urhluta Afganist-
ans. Hann er
sagður vera
meiri trúarleið-
togi en herforingi
og hefur Ak-
hundzada lengi
verið áhrifamað-
ur innan víga-
sveitanna.
Samkvæmt
BBC hefur hann
t.a.m. verið æðsti yfirmaður dóm-
stóla talibana og næstráðandi á eft-
ir Mansour, fyrrverandi leiðtoga
talibana. Þá segja sérfræðingar
hann hafa náin tengsl við leiðtoga
talibana í borginni Quetta í ná-
grannaríkinu Pakistan.
Fram kemur í áðurnefndri yf-
irlýsingu að hann hafi einróma ver-
ið valinn leiðtogi samtakanna af
Shura-ráðgjafarráðinu. khj@mbl.is
Talibanar velja
nýjan leiðtoga
Var áður næstráðandi í samtökunum
Mawlawi
Akhundzada
Minnst sjö drukknuðu þegar bát
flóttafólks hvolfdi undan ströndum
Líbýu í gær. Fréttaveita AFP segir
bátinn hafa verið yfirfullan af fólki.
Ítalski sjóherinn segist hafa náð
að bjarga um 500 manns úr hafinu,
en þegar Morgunblaðið fór í prentun
var búið að finna lík sjö einstaklinga.
Björgunaraðgerðir stóðu hins vegar
enn yfir á svæðinu og eru því líkur á
að fleiri hafi farist í slysinu.
Eftirlitsskip ítalska sjóhersins var
fyrst til þess að sjá bát flóttafólksins
á siglingu undan ströndum Líbýu.
„Skömmu síðar hvolfdi bátnum sök-
um þess hve margir voru um borð.
Áhöfn eftirlitsskipsins, sem þá var
statt skammt frá, kastaði björg-
unarvestum og -bátum í hafið,“ hef-
ur AFP eftir sjóhernum, en annað
herskip, sem einnig var statt
skammt frá, sendi þegar í stað
björgunarþyrlu á vettvang.
Búið er að flytja um 40.000 flótta-
menn yfir til Ítalíu það sem af er
þessu ári, en fyrstu tvo daga þess-
arar viku var hátt í 6.000 manns
bjargað á hafinu. khj@mbl.is
AFP
Flóttafólk Ítalski sjóherinn náði þessari mynd þegar bátnum hvolfdi.
Um 500 var bjargað
úr sjávarháska
Frá
morgni
líkama
og sál
fyrir alla
fjölskylduna í
þínu
hverfi t i l kvölds
Sími: 411 5000 • www.itr.is
Fyrir
líkama
Laugarnar í Reykjavík
Laugavegi 99 – Sími 777 2281
(gengið inn frá Snorrabraut) aff.is
Concept store
Fallegt fyrir heimilið