Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 22

Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 22
Vorið 2004 útbjó ég blað fyrir með- mælanda til að mæla með mér sem forsetaefni, skrifa nafn sitt, kt. og lög- heimili með blokkstöfum og undirrita svo. Alls skrifuðu fjórir undir og sér- hver á A-4 blað. Þeir sem hafa skorað á einstakling til að bjóða sig fram til forseta á liðnum vetri, hefðu frekar mátt láta hann fá skrifleg meðmæli sín um að hann teljist hæfur sem for- setaefni. Þannig hefði vinur Þorgríms Þráinssonar betur mátt rétta Þor- grími skrifleg meðmæli sín, en að stofna fésbókarsíðu. Sömuleiðis hefðu þeir sem stofnuðu fésbókarsíðu til að hvetja Höllu Tómasdóttur til að bjóða sig fram, frekar átt að skrifa með- mæli sín á blað og afhenda henni. Slíkt var hins vegar gert þegar um 500 meðmælendur höfðu undirritað að sjúkrahúspresturinn teldist hæfur sem forsetaefni. Þeir rúmlega 6.000 manns sem hafa skorað á Guðna Th. mættu nú senda honum skrifleg með- mæli sín. Þeir sem hafa ritað grein um hæfni manna til forystu mættu nú sömuleiðis fylgja því eftir með með- mælum. Guðmundur Rafn Geirdal Bragason. Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12 velvakandi@mbl.is Áskorendur þurfa að senda meðmæli 22 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Í komandi alþing- iskosningum eiga kjósendur um tvennt að velja. Fjórflokkinn svokallaða, rúinn öllu trausti, eða önnur framboð. Í því sam- bandi er vert að vekja athygli á ný- stofnuðum flokki, Ís- lensku þjóðfylking- unni (ÍÞ). Þjóðfylking eða Píratar ? Ekki er hægt að hugsa sér eins gjörólíka flokka og þessa tvo, Ís- lensku þjóðfylkinguna og Pírata. Stjórnlyndi eða anarkisma. Meðan Íslenska þjóðfylkingin teflir fram skýrri og afgerandi stefnu til helstu þjóðmála í dag er stefnu- leysið aðalsmerki Pírata, enda skilgreina þeir sig sem anarkista, stjórnleysingja. Þegar ÍÞ segist standa vörð um fullveldi og sjálf- stæði Íslands, íslenska þjóðmenningu, tungu, þjóðleg gildi og kristna trú, boða Pí- ratar hið gagnstæða. Vilja þjóðríkið feigt, boða nánast „no bor- ders“-pólitík, og vilja nánast afnema allt skipulagsbundið vald, enda hafa anarkistar hvergi náð kosningu í heiminum frá upphafi ferils síns á 19 öld. Nema á Íslandi. At- hyglisvert! Þjóðfylkingin, flokkur fólksins Í grunnstefnu ÍÞ er lögð megin- áhersla á að vera flokkur fólksins, almennings á Íslandi. Málefni fjöl- skyldunnar, heimilanna, smærri og meðalstórra fyrirtækja í einka- rekstri, hornsteinar samfélagsins. Málefni aldraða og öryrkja setur Íslenska þjóðfylkingin ávallt í önd- vegi, svo og að berjast gegn fá- tækt. Málefni ungs fólks, fram- tíðar Íslands, eru einnig í brennidepli. Afnám verðtrygg- ingar, upptaka þjóðpeningakerfis og hækkun persónuafsláttar. Þá vill ÍÞ endurskoða fiskveiðistefn- una frá grunni og opna á frjálsar strandveiðar, er yrði mikil lyfti- stöng fyrir allar íslensku sjávar- byggðirnar. ÍÞ vill Landsvirkjun áfram í þjóðareigu, engan sæ- streng til útlanda og Reykjavík- urflugvöll áfram. Svo dæmi séu tekin. Þjóðfylking gegn spillingu Þá er í grunnstefnu ÍÞ sérstak- lega lögð mikil áhersla á að tekið verði af hörku á allri spillingu og fjármálamisferli. Við eigum að uppræta hverskyns skattaskjól og refsa þeim hart sem þau stunda. Þá á leynibox fyrrverandi vinstri- stjórnar til 110 ára tafarlaust að opna! ÍÞ vill „báknið“ birt! Þjóðaröryggi í fyrirrúmi Gagnstætt Pírötum og vinstri- sinnuðum róttæklingum leggur ÍÞ mikla áherslu á þjóðaröryggi ís- lensku þjóðarinnar. Styður NATO-aðild, uppsögn á Schengen og úrsögn úr EES, en tvíhliða við- skiptasamning við ESB, hert landamæraeftirlit ásamt eflingu lögreglu, tolls, Landhelgisgæslu og að Íslendingar taki aukinn þátt í eigin vörnum. Þá vill ÍÞ herta innflytjendalöggjöf og hafnar því þverpólitískri nefndartillögu Ótt- ars Proppés og félaga um nánast galopin landamæri. ÍÞ styður hins vegar öflugar aðgerðir til aðlög- unar þess ágæta fólks sem vill setjast hér að. – Hjá ÍÞ er ESB- aðild og TISA-samningar á bann- lista. Í ljósi upplausnar Schengen og íslamskrar hryðjuverkaógnar í Evrópu telur ÍÞ fulla ástæðu til að banna moskur á Íslandi eins og þegar er farið að gera í evrópsk- um borgum. ÍÞ hafnar íslams- væðingunni! Breiðfylking þjóðhollra borgaralegra afla Hér hefur aðeins verið vakin at- hygli á ÍÞ, breiðfylkingu þjóð- hollra borgaralegra afla. Frekar um ÍÞ má finna á fésbókarsíðu ÍÞ, en Helgi Helgason stjórnmála- fræðingur er talsmaður ÍÞ fram að flokksþingi í maí þar sem end- anlega verður gengið frá málum. Hvetjum því allt þjóðhollt, heið- arlegt og borgarasinnað fólk að koma til liðs við ÍÞ nú í kjölfar al- þingiskosninga. Landi og þjóð til heilla! Íslensk þjóðfylking eða Píratar Eftir Guðmund Jónas Kristjánsson Guðmundur Jónas Kristjánsson »Ekki er hægt að hugsa sér eins gjör- ólíka flokka og þessa tvo. Íslensku þjóðfylk- inguna og Pírata. Stjórnlyndi eða anarkisma. Höfundur er bókhaldari og situr í bráðabirgðastjórn Íslensku þjóðfylkingarinnar. Meðvitund um mik- ilvægi þess að brugðist sé við aðsteðjandi hættu vegna loftslags- breytinga er sem betur fer að aukast hér á landi. Stór framleiðslu- fyrirtæki eins og það sem ég starfa hjá þurfa að ganga á undan með góðu fordæmi. Hjá Vífilfelli er umhverfisstefnan hluti af grundvallargildum okkar. Við vinnum stöðugt að því að draga úr áhrifum okkar á umhverf- ið, m.a. með því að auka endur- vinnslu. The Coca-Cola Company gerir til okkar afar strangar kröfur en einnig höfum við innleitt al- þjóðlega umhverf- isstjórnunarstaðalinn ISO 14001. Þá hefur Vífilfell undirritað samkomulag við Reykjavíkurborg og Festu, miðstöð um samfélagsábyrgð, þar sem við skuldbindum okkur til að draga úr losun gróðurhúsa- lofttegunda, draga úr sorpi og skila skýrslu um árangur okkar. Skýrsluna fyrir síðasta ár má finna á vifilfell.is. Einnig höfum við skrifað undir Global Compact-yfirlýsingu Sameinuðu þjóðanna og eru tíu grundvallarviðmið þeirra höfð í heiðri í framleiðslu okkar. Stefnum á 90% endurvinnsluhlutfall Eitt af forgangsverkefnum okkar er að tryggja rétta losun úrgangs á vinnusvæði okkar og að þjálfa allt starfsfólk í meðhöndlun úrgangs. Við ætlum að leggja aukna áherslu á flokkun sorps inni á skrifstofum Víf- ilfells með því að innleiða einfalt flokkunarkerfi með aðstoð Gáma- þjónustunnar, sem sér um að hirða sorpið okkar. Við erum einnig í sam- starfi við Gámaþjónustuna um hvernig megi koma í veg fyrir sorp í landfyllingum. Allar vörur Vífilfells eru í dag í endurvinnanlegum umbúðum og við hvetjum viðskiptavini okkar til að endurvinna. Á undanförnum árum hefur endurvinnsluhlutfall okkar hækkað jafnt og þétt og það sem af er þessu ári er heildarendurvinnslu- hlutfallið 85%. Betur má ef duga skal og höfum við sett okkur það markmið að auka hlutfallið um eitt prósentustig á ári til ársins 2020, þegar það verður orðið 90%. Einn og hálfur fótboltavöllur af áli endurunninn Sem dæmi um áhrifin sem bætt vinnubrögð við endurvinnslu geta haft þá skilaði endurvinnsla bylgju- pappa frá Vífilfelli árið 2015 minni losun koltvíoxíðs sem samsvarar út- blæstri 75 bíla. Endurunnið ál, flatt út í sömu þykkt og gosdós, myndi þekja tæplega einn og hálfan fót- boltavöll. Einnig endurunnum við timbur sem samsvarar yfir 3.000 Euro-vörubrettum og plastflöskur sem endurvinna má í polyesterþræði til að búa til 120.000 flíspeysur. Enn má gera betur og stefna Vífilfells er að vera eitt umhverfisvænasta fram- leiðslufyrirtæki landsins. Öll þessi mikilvægu verkefni sem hleypt hefur verið af stokkunum á Íslandi og á alþjóðavísu hafa verið okkur mikil hvatning og vonandi getur þessi litla grein orðið til þess að forsvarsmenn fleiri fyrirtækja hér á landi fari að skoða hvernig þeir geti dregið úr óæskilegum áhrifum á umhverfið sem er sameign okkar allra Endurvinnsla framleiðslufyrirtækja og loftslagsbreytingar Eftir Sveinbjörn Jónsson »Vífilfell stefnir á 90% endurvinnsluhlutfall árið 2020 og að vera um- hverfisvænasta fram- leiðslufyrirtæki landsins Höfundur er gæða-, öryggis- og umhverfisstjóri Vífilfells. Sveinbjörn Jónsson Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð og samþykkt af Mannvirkjastofnun. Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna og léttir þrif. Stigahúsateppi Mikið úrval! Mælum og gerum tilboð án skuldbindinga og kostnaðar Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888 www.parketoggolf.is Sérverslun með teppi og parket

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.