Morgunblaðið - 26.05.2016, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016
Maí er alþjóðlegur
fótverndarmánuður og
er hann tileinkaður ým-
iss konar málefnum
sem snerta fætur og
heilbrigði þeirra. Í ár er
maí tileinkaður krabba-
meini og fótum. Þú
hugsar kannski hvernig
getur krabbamein
tengst fótunum? Jú, það
er margt sem tengist
fótunum í sambandi við krabbamein.
Berð þú sólarvörn á iljarnar?
Eins og sólin er dásamleg þá getur
hún verið skaðleg. Við erum sem bet-
ur fer orðin meðvituð um skaðsemina
og almenningur farinn að nota sól-
arvörn daglega en við eigum það til að
gleyma að bera sólarvörn á fæturna,
sérstaklega undir iljarnar þar sem
húðin er berskjölduð. Sortuæxli geta
myndast á rist, milli táa, undir nögl-
um og á iljum. Því er mikilvægt að
muna eftir að bera sólarvörn á allan
fótinn, sérstaklega ef hann verður fyr-
ir mikilli geislun eins og
í sandölum og opnum
skóm.
Fótavandamál vegna
lyfjameðferðar
Þeir sem gangast
undir meðferð vegna
krabbameins geta feng-
ið ýmis fótavandamál.
Því er mikilvægt að
fylgjast vel með fót-
unum en eins og við er-
um mörg þá bregðumst
við mismunandi við
meðferðum. Með því að
hlúa vel að heilbrigði húðar og nagla
má koma í veg fyrir mörg vandamál.
Hér eru nokkur dæmi um fylgikvilla
sem krabbameinslyfjameðferð getur
haft á fætur:
- Breytingar á nöglum: Neglurnar
eiga það til að þorna og rifna auðveld-
lega sem getur leitt til sýkinga. Negl-
urnar geta líka þykknað og orðið
stökkar. Einnig hægist oft á vexti
þeirra sem hefur í för með sér ýmiss
konar vandamál sem ber að með-
höndla af fagaðila.
- Húðbreytingar: Algengt er að
húðin þynnist, þorni og jafnvel
springi, sem eykur hættu á sýkingum.
Því getur verið nauðsynlegt að að
næra og mýkja húðina með réttum og
viðeigandi efnum til að vinna gegn
þessum einkennum.
- Taugaverkir og skert tilfinning
eru ekki óalgengir kvillar eftir lyfja-
meðferð. Oft eru notaðir kælihanskar
og kælisokkar til að koma í veg fyrir
eða minnka líkur á þessum einkenn-
um og eins hafa ákveðin krem með
mentoli komið að góðum notum til að
draga úr einkennum.
-Bjúgur og bólgur í fótum eru oft
fylgifiskar veikinda og lyfjagjafa . Þar
hjálpar sogæðanudd oft til við að
halda einkennum í skefjum og til að
bæta líðan.
Hægt er að fá góð ráð varðandi um-
hirðu fóta hjá löggiltum fótaaðgerða-
fræðingum, Krabbameinsfélaginu og
Karítas heimahjúkrun til að forðast
vandamál og fá viðeigandi meðferð og
einnig á fotur.is.
Alþjóðlegur
fótverndar-
mánuður 2016
Eftir Ásdísi
Ingunni
Sveinbjörnsdóttur
» Sortuæxli geta
myndast á rist,
milli táa, undir nöglum
og á iljum.
Ásdís Ingunn
Sveinbjörnsdóttir
Höfundur situr í fræðslunefnd Félags
íslenskra fótaaðgerðafræðinga.
Frumvarp ráð-
herrans um hækkun á
kostnaði Íslendinga við
læknisþjónustu lýsir
þeirri kröfu ráð-
herrans að allir eldri
borgarar, sem orðnir
eru 67 ára, eigi að flýta
sér að koma sjálfum
sér sex fet í jörð til að
tryggja launakostnað
og eftirlaun ráðherra
og þingmanna.
Þessi veruleikafirring brýst út hjá
ráðherranum eftir svívirðilega ráns-
herferð þingmanna þegar þeir hirtu
af eftirlaunaþegum landsins lögvörð
réttindi á greiðslu sem kölluð var
grunnlífeyrir og var komið á lagg-
irnar árið 1946. Allir launamenn
þurftu að greiða svokallað trygg-
ingagjald sem átti meðal annars að
tryggja öllum sem næðu 67 ára aldri
ákveðna greiðslu sem lífeyrisupp-
bót.
Þegar laun og eftirlaun ráðherra
og þingmanna ásamt
æðstu starfsmönnum
ríkisins voru hækkuð
var nærtækast að ráð-
ast á þá sem minnsta
möguleika hafa til að
verja sig, en það er
eldra fólk og sjúkling-
ar. Því voru hæg
heimatökin hjá þing-
mönnum að afnema
ákvæði laga um grunn-
lífeyri til allra lands-
manna sem lögbundinn
var 1946.
Ráðherra heilbrigð-
ismála leggst svo lágt í sinni veru-
leikafirringu að með hækkun lækn-
iskostnaðar ellilífeyrisþega er
fundin auðveld leið fyrir stjórnvöld
til að koma gömlu hróunum sem
fyrst sex fet í jörð. Það er vitað að
fyrir þessa fyrirhuguðu hækkun
ráðherrans á sjúkrakostnaði ellilíf-
eyrisþega þá leitaði fólk ekki læknis
vegna bágrar fjárhagsstöðu fyrr en
ástandið var orðið svo slæmt að lítið
var hægt að gera fyrir það. Við-
urkennt hefur verið að margt fólk
hafi leitað læknis of seint vegna þess
að fjárhagur leyfði það ekki.
Þrátt fyrir þessa vitneskju ráð-
herrans um slæma fjárhagsstöðu
eldra fólks skal enn og aftur ráðist á
þetta fólk með nýjum skattaálögum.
Fyrirhuguð gjaldskrárhækkun er
ekkert annað en skattaálagning.
Fjárhagsstaða ríkissjóðs hefur
verið það góð að ástæðulaust er að
misþyrma eldra fólki á kostnað am-
lóðanna í stólum Alþingis.
Ef þörf er á að spara væri skyn-
samlegast að byrja á réttum enda.
Fækka má alþingismönnum niður í
sjö og láta þá vinna fyrir kaupinu
sínu. Þingmenn hafa ekki skilað
eðlilegri vinnu ef miðað er við vinnu-
framlag almennings. Hinir svoköll-
uðu þingfundir einkennast af bulli
þingmanna sem ekkert á skylt við
störf að setningu laga og reglna fyr-
ir þegnana að fara eftir. Störf þing-
manna einkennast af skömmum og
svívirðingum úr ræðustól hver á
annan sem ekkert hefur með velferð
þegnanna að gera. Eftir að farið var
að sjónvarpa frá þingfundum hefur
komið skýrt fram að þingfundir eru
tómur leikaraskapur enda hefur Al-
þingishúsið hlotið nafnið Leikhús fá-
ránleikans.
Rétt þykir að geta þess að fjöldi
þingmanna á Alþingi Íslendinga er í
engu samræmi við fólksfjölda ef
hann er borinn saman við aðrar
þjóðir. Ef borinn er saman þing-
mannafjöldi á Íslandi og í Banda-
ríkjum Norður-Ameríku þá ættu
þingmenn á þingi USA í hlutfalli við
fjölda kjósenda að vera sem næst
4.000 en eru fimm hundruð. Þessi
samanburður réttlætti sjö heið-
arlega þingmenn á hinu íslenska Al-
þingi.
Störf Alþingis og kostnaður við
þau, með 1.000 til 1.500 fermetra
húsnæði á mörgum stöðum í
Reykjavík, er yfirlýsing að um sé að
ræða atvinnubótavinnu en ekki
nauðsynleg störf. Starfsemi sem er í
eðli sínu sýndarmennska í ætt við
Parkinsons-lögmálið.
Það hefur verið stefna lands-
manna síðan 1936 að jafna kostnaði
á alla landsmenn er varðar heil-
brigðismál með skattgreiðslum. Í tíð
þessarar ríkisstjórnar á að breyta til
og skattleggja eldra fólk og þá sem
þurfa á læknishjálp að halda. Þetta
gerist á sama tíma og ráðamenn
þjóðarinnar lögbinda sjálftöku launa
til handa þingmönnum og mönnum í
stöðum sem taldar eru æðri stöður í
þjóðfélaginu.
Enn er við lýði hjá ráðamönnum
þjóðarinnar sá hugsanaháttur sem
ríkti á öldum áður að ofbeldismenn
sem telja sig vera æðri öðrum þegn-
um landsins eigi að njóta gæða lífs-
ins. Þessir ráðamenn lifa ennþá í
anda þeirra sem kallaðir voru kóng-
ar, hertogar, barónar, landshöfð-
ingjar og fleiri titlar og krefjast
þess að hafa það betra en þeir sem
foringjarnir líta á sem þræla.
Til þess að stöðva veruleikafirr-
ingu ráðherrans þarf öfluga sókn af
hálfu samtaka aldraðra gegn þessari
skattaáþján.
Veruleikafirring
Eftir Kristján S.
Guðmundsson »Er ráðherra heil-
brigðismála á Ís-
landi veruleikafirrtur?
Kristján S.
Guðmundsson
Höfundur er fv. skipstjóri.
fjölslípi-/fræsisett
MFW 228
beltaslípivél
BT 75
handfræsari
OBF 1200
bandsög - tré
HBS 245HQ
rennibekkur D460FXL
11.662,-
19.568,- 15.615,-
75.390,-
68.982,-
IÐNVÉLAR ehf. | Smiðjuvegi 44-46 | 200 Kópavogur | Sími 414 2700 | idnvelar@idnvelar.is | idnvelar.is
V O
flísar fyrir vandláta
PORCELANOSA
Skútuvogi 6 - Sími 568 6755