Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 26

Morgunblaðið - 26.05.2016, Síða 26
26 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 ✝ Pétur Sigur-jónsson fæddist í Reykjavík 30. júlí 1918. Hann lést á hjúkrunarheim- ilinu Droplaug- arstöðum 16. maí 2016. Pétur var sonur hjónanna Sigur- bjargar Ásbjörns- dóttur, f. 31.3. 1882, d. 8.6. 1975, og Sigurjóns Péturssonar iðn- rekanda og íþróttafrömuðar, oftast kenndur við Álafoss, f. 9.3. 1888, d. 3.5. 1955. Pétur átti tvö systkini: i) Sigríði, f. 21.3. 1916, d. 30.4. 1995, gift Bjarna Þorsteinssyni bónda að Hurð- arbaki í Reykholtsdal, f. 5.12. 1912, d. 18.12. 2005. Börn þeirra eru Gunnar, f. 21.11. 1953, og Þóra, f. 5.2. 1955. ii) Ásbjörn, f. 26.3. 1926, d. 7.7.1985, kvæntur Ingunni Finn- bogadóttur og er þeirra sonur Sigurjón, f. 21.6. 1954. Fóst- ursystir Péturs var Sæunn Jónsdóttir, f. 14.12. 1914, d. 26.3. 1990. Þann 14. júní 1947 kvæntist Pétur, Halldóru Ebbu Guðjohn- Árin 1943-1945 starfaði Pétur sem deildarstjóri hjá Den Kongelige Militære Klædefa- brik í Usseröd í Horsholm í Danmörku. Árin 1945-1960 starfaði Pétur sem verksmiðju- stjóri og tæknilegur fram- kvæmdastjóri við klæðaverk- smiðjuna Álafoss. Hann var yfirverkfræðingur og fram- leiðslustjóri Sementsverksmiðju ríkisins á Akranesi 1960-1965 en var skipaður forstjóri Rann- sóknarstofnunar iðnaðarins ár- ið 1965 og gegndi þeirri stöðu til 1978 þar til stofnunin var sameinuð nokkrum öðrum stofnunum og til varð Iðntækni- stofnun Íslands. Eftir það starf- aði Pétur um nokkurra ára skeið við rannsóknir hjá Iðntæknistofnun uns hann lét af störfum fyrir aldurs sakir. Pét- ur sat í stjórn Félags íslenskra iðnrekenda frá 1955-1958. Var fulltrúi iðnaðarráðuneytisins í svokallaðri Eiturefnanefnd frá 1967-1991. Hann ritaði greinar í tímarit Verkfræðingafélags Ís- lands og gaf út rit um ullar- vinnslu og ullariðnað og kenndi á fjölda námskeiða um trefja- iðnað. Útför Péturs fer fram frá Fossvogskirkju í dag, 26. maí 2016, og hefst athöfnin klukkan 13. sen, f. 7.4. 1921, d. 6.1. 2011. Halldóra var dóttir Halldórs Guðjohnsen og Lauru Larsen sem bjuggu í Dan- mörku. Pétur og Halldóra eignuðust þrjú börn en þau eru: i) Pétur, f. 15.8. 1948, hár- skerameistari og tónlistamaður, í sambúð með Báru Pétursdóttur og eiga þau eina dóttur, Eiri, f. 27.12. 1973. ii) Björn, f. 21.10. 1950, rafeindatæknifræðingur. iii) Anna María, f. 11.5. 1961, í sambúð með Arnari Bjarnasyni, rekstrarhagfræðingi, f. 20.4. 1958. Dætur Önnu Maríu með Guðbrandi Stíg Ágústssyni, eru María Björt, f. 10.9. 1987, og Dagbjört, f. 28.6. 1990. Dóttir Arnars er Inga Rán, f. 6.1. 1988. Pétur lauk stúdentsprófi af stærðfræðibraut Menntaskólans í Reykjavík árið 1936 og Dipl- .Ing. prófi í efnaverkfræði frá Technische Hochschule í Dres- den í Þýskalandi 1941 og Text- .Ing í ullariðnaði frá Hochere Textilfachschule í Cottbus 1943. Elsku pabbi, það er komið að kveðjustund og mikið er það sárt að kveðja þig. Þrátt fyrir háan aldur hélstu þinni reisn og virðuleika. Faðir minn var einn af þeim einstakling- um sem skilja eftir sig stórt skarð í lífi okkar. Afi og amma, Sigurjón Péturs- son og Sigurbjörg Ásbjörnsdóttir sem kennd voru við Álafoss í Mos- fellsbæ, ráku þar klæðaverk- smiðju og íþróttaskóla. Í dalverp- inu við Varmá var stofnað heilt iðnaðarsamfélag og samfélag íþróttaiðkunar þar sem heilbrigt líferni bæði hugar og líkama var viðmið. Þetta var það umhverfi sem faðir minn ólst upp við frá blautu barnsbeini. Pabbi fór til náms 18 ára gamall til Dresden og lærði þar m.a. efnaverkfræði. Dvölin í Þýskalandi fjarri ættingj- um og vinum á tímum ófriðar markaði hann sem einstakling. Þessi ár kenndu honum nægju- semi og að gleðjast yfir hverjum degi og því sem lífið færði honum. Þessi lífssýn hans hefur kennt mér og börnum mínum mikið. Pabbi var heimsborgari sem lagði áherslu á mikilvægi mennt- unar. Hann var mikill náttúruunn- andi og kenndi mér snemma að bera virðingu fyrir náttúrunni. Mín fyrsta minning með honum var þegar hann hélt í hönd mína þar sem við löbbuðum saman eftir trjágöngum þar sem hann fræddi mig um hinar ýmsu trjátegundir sem á vegi okkar urðu. Pabbi var ekki mikið fyrir að fara á skemmtanir sem honum þótti tímasóun. Hann vildi heldur fást við vélar og stunda rannsókn- ir. Eitt sinn lét hann þó tilleiðast að mæta á Íslendingasamkomu sem haldin var í Kaupmannahöfn og þar varð hann þeirrar gæfu aðnjót- andi að kynnast móður minni sem var hans stóra ást í lífinu og giftu þau sig í Kaupmannahöfn 1947. Ég átti einstaka foreldra, ást- ríka og umhyggjusama sem vildu börnum sínum og barnabörnum allt hið besta. Móðir mín var þessi ástríka, umvefjandi móðir en faðir minn þessi ákveðni, kröfuharði faðir sem í fólst jafnframt mikil umhyggja. Æskuvinir mínir minn- ast hans oft þegar hann var að reka á eftir okkur vinkonunum að halda okkur við lærdóm og taldi að allt þetta pjatt og fjas í okkur myndi nú ekki skila neinu. Faðir minn var einstakur afi og tók mikinn þátt í uppeldi dætra minna og þegar fósturdóttir mín kom inní fjölskylduna tók hann henni sem sinni. Hann byggði kanínuhús, tók þátt í leit að hömstrum og fræddi þær um und- ur náttúrunnar. Hann var þeim fyrirmynd, stoð og umfram allt hinn umvefjandi afi sem er svo dýrmætt. Hann var það mikill þátttakandi í uppeldi þeirra, að þær fóru alltaf fyrst til hans ef þær þurftu að segja frá afrekum sínum. Eitt bros frá honum var sem dómur Róm- arkeisara. Faðir minn tók mikinn þátt í efl- ingu íslensks iðnaðar og gegndi mörgum trúnaðarstörfum á því sviði. Hann skrifaði einnig rit og greinar um mikilvægi þess fyrir ís- lenskt samfélag að hafa hér öflug- an iðnað. Elsku pabbi, ég vil þakka þér fyrir allt sem þú hefur gefið mér, þú munt ávallt lifa meðal okkar og halda áfram að leiðbeina okkur sem þú gerðir svo vel. Þín dóttir, Anna María. Ég undirritaður hitti Pétur Sig- urjónsson fyrst fyrir tæplega tutt- ugu árum, þegar ég fór að gera hosur mínar grænar fyrir glæsi- legri dóttur hans. Þá var Pétur tæplega áttræður og vel á sig kom- inn bæði líkamlega og andlega. Þótt ég fljótlega áttaði mig á því, að stjórnsemi Péturs væri nokkuð mikil þá varð mér brátt ljós sú staðreynd, að hún endurspeglaði fyrst og fremst ómælda umhyggju hans gagnvart fjölskyldu sinni. Þessi fágaði heimsborgari átti sér merkilega ævi. Átján ára gam- all, vorið 1936, útskrifast hann sem stúdent af stærðfræðibraut Menntaskólans í Reykjavík, með þriðju hæstu einkunn útskriftar- nema. Haustið 1936 hóf Pétur nám í efnaverkfræði við Tækniháskól- ann í Dresden. Ég hef oft minnt dóttur mína og fósturdætur á þær ólíku aðstæður sem Pétur, þá átján ára unglingur, tókst á við í Þýskalandi haustið 1936, í saman- burði við aðstæður þeirra nú í há- skólanámi erlendis. Á námsárum Péturs í Þýskalandi voru engar flugsamgöngur við Ísland, enginn Lánasjóður íslenskra námsmanna, enginn sími og ekkert Skype. Þeg- ar heimstyrjöldin síðari skall á, lokaðist fyrir allar bréfapóstsend- ingar. Í löngu samtali okkar Pét- urs sem ég hljóðritaði, með hans leyfi, veturinn 2011, lýsti hann ástandinu í Þýskalandi og aðstæð- um sínum þar sem ungur stúdent. Þó Pétur væri á námsstyrk öll skólaárin frá Alexander von Hum- boldt Institut, þá var fjárhagurinn mjög þröngur og eini munaður Péturs var að fara í óperuna í Dresden. Áhugi Péturs á óperum og klassískri músík hélst alla tíð. Árið 1942 þegar Pétur hafði lokið verkfræðinámi og ljóst var að hann var innilokaður í Þýskalandi, réð hann sig hjá ullarspunaverksmiðju í Grossenheim. Þar starfaði hann fram á sumar 1943, þegar danskur skólabróðir Péturs skrifaði honum og bauð honum vinnu í konunglegu dönsku ullarverksmiðjunni í Us- serröd, í Danmörku. Í fyrstu neit- uðu þýsk stjórnvöld að hleypa Pétri úr landi en eftir að hinn danski skólabróðir hans hafði haft samband við danska sendiráðið í Berlín og fengið þá til að gera Pét- ur að dönskum embættismanni, fékk hann brottfararleyfi. Árin í Danmörku urðu Pétri mikið gæfuspor. Þar kynntist hann sinni glæsilegu og góðu konu, Halldóru E. Gudjohnsen sem hann giftist árið 1947. Sumarið 1945 sigldi Pétur heim til Íslands og þá fyrst komst hann aftur í samband við fjölskyldu sína sem hann hafði ekkert heyrt af í tæplega sex ár. Á Íslandi átti Pétur farsælan starfs- feril. Fyrst hjá fyrirtæki fjölskyld- unnar, Álafossi, en síðar sem yf- irverkfræðingur Sementsverksmiðju ríkisins og að lokum sem forstjóri Rannsóknar- stofnunar iðnaðarins. Eitt af einkennum Péturs var hversu kurteis og þakklátur hann var öðrum fyrir jafnvel minnstu hluti sem þeir aðstoðuðu hann við eða veittu honum. Í hvert skipti sem Pétur kom t.d. í mat til okkar Önnu Maríu, kvaddi hann jafnan með þeim orðum að hann „hefði aldrei fengið eins góðan mat og nú“. Ég vil að leiðarlokum þakka Pétri fyrir þann ómetanlega tíma sem ég fékk að kynnast honum og njóta samveru með honum. Bless- uð sé minning Péturs Sigurjóns- sonar. Arnar Bjarnason. Að hitta manneskju á lífsleiðinni sem skilur eftir sig stórt pláss í hjartanu er dýrmætt. Ég fékk að hitta slíka manneskju daginn sem ég fæddist, og hún hefur leitt mig áfram og gert mig að þeirri mann- eskju sem ég er í dag. Afi var enginn venjulegur mað- ur. Hann fór ungur til náms í efna- verkfræði við háskólann í Dres- den. Á þessum tíma var ekki algengt að fara svona ungur í nám, hvað þá alla leið til Þýskalands. Þar bjó hann einn í sex ár og stundaði skóla og vann. Hann hef- ur alltaf kennt mér að eltast við draumana og sjá hvað menntun er mikilvæg og dýrmæt. Hann var ákveðinn og ekki hræddur að láta í sér heyra og segja sína skoðun. Hann gerði allt fyrir alla og var alltaf til staðar að hjálpa öllum í kringum sig. Hann var mikill lífskúnstner og hafði gaman af lífinu og lét alla hlæja í kringum sig. Hann var handlaginn og vildi laga allt sjálfur og ef hann kunni það ekki þá lærði hann það. Man ég ekki eftir honum öðruvísi en með hausinn ofan í húddinu á Lödu sport-jeppanum sínum, fyrir framan Ásvallagötu 1. Ég vil meina að hann hafi byggt þann bíl upp frá grunni og eftir allar viðgerðirnar var þetta Lada Péturs Edition. Þegar ég var þriggja ára kenndi hann mér að mæla sýrustigið í fiskabúrinu þótt ég skildi nú ekki alveg hvað pH-gildi var á þeim tíma. Hann kenndi mér hvað kvikasilfur í hitamælum gerði og hvernig smásjár virkuðu. Ég fékk mína eigin smásjá sex ára gömul og fór út um allt hverfið að leita að skordýrum og plöntum til að skoða. Ég með mína smásjá og hann sína bárum við saman bækur okkar yfir litlu hlutunum sem birtust okkur. Við horfðum alltaf saman á Dav- id Attenborough á RÚV og allar þær söguheimildarmyndir sem við gátum fundið. Þar strax kviknaði áhugi minn á dýrum, undrum mannslíkamans og þeirri merku sögu sem heimurinn okkar býr yf- ir. Þegar ég var tíu ára varð ég áskrifandi að National Geographic og Lifandi vísindum og hef ég verið það síðan. Allt frá því ég sagði við afa yfir einni heimildarmyndinni um mannslíkamann, í stofunni á Ás- vallagötunni, að ég ætlaði að verða læknir hefur afi verið helsti stuðn- ingsmaður minn í mínu námi. Hann hvatti mig til að fara til út- landa að læra, því þar er maður ekki einungis að stunda hina al- mennu læknisfræði heldur einnig að öðlast sjálfsmenntun í að standa á eigin fótum erlendis og kynnast nýrri þjóð og menningu. Vera sinn eigin gæfusmiður, stoð og stytta. Ég hef alltaf verið heimakær og tengd móður minni. Að fara í nám erlendis fannst mér mikið og stórt skref, en ef ég treysti ráðlegging- um einhvers, þá var það afi. Ég er honum ævinlega þakklát fyrir að hafa haft trú á mér. Ég væri ekki hér ef það væri ekki fyrir afa minn. Ég vildi óska þess við hefðum 100 ár í viðbót saman, til að læra af honum afa og sjá hvað heimurinn er magnaður. Það eru forréttindi að hafa haft afa okkar öll þessi ár og að því munum við búa alla ævi. Við munum halda áfram að læra um heiminn, mennta okkur og horfa forvitnum augum á allt. Elska þig, afi. Dagbjört. Í dag kveðjum við góðan og traustan vin. Pétur hafði allt til að bera sem prýða má góðan mann. Hann var glæsilegur, skarp- greindur, víðlesinn, heilsteyptur og skemmtilegur en fyrst og fremst vinur vina sinna. Pétur kunni líka vel að njóta líðandi stundar og ein- hvern veginn fannst okkur að hann yrði alltaf hér hjá okkur. Við viss- um að sjálfsögðu betur en það var bara svo fræðandi og skemmtilegt að vera nálægt honum og ræða við hann um allt milli himins og jarðar. Pétur kunni svo vel að njóta stund- arinnar og kom það vel í ljós þegar hann var með okkur hér í Hofgörð- um um síðustu áramót. Hann hélt uppi fjörinu allt kvöldið þar sem hann sat með áramótahatt og flaut- aði reglulega í glimmerflautu þeg- ar honum þótti fjörið vera að dala. Þarna sat hann 97 ára maðurinn og við hin þurftum að hafa okkur öll við til þess að halda í við hann. Hann var okkur góð fyrirmynd og skilur eftir sig ótal skemmtilegar minningar. Nú, þegar hann kveð- ur, erum við fyrst og fremst þakk- lát fyrir að hafa fengið að kynnast honum og njóta samvista við hann. Við eigum eftir að sakna hans sárt. Megi góður Guð vera með börn- um hans og barnabörnum og gefa þeim styrk í þeirra sorg. Við kveðjum Pétur með þessari bæn: Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hönd, síðast þegar ég sofna fer sitji Guðs englar yfir mér. (Hallgrímur Pétursson) Ása Björk Matthíasdóttir og fjölskylda. Pétur Sigurjónsson Ævinlega með luktum lófum, lof ræðandi á kné sín bæði, skepnan öll er skyld að falla, skapari minn, fyrir ásjón þinni. (Eysteinn Ásgrímsson) Margrét móðursystir mín var fædd í Kirkjuvogi í Höfnum, dótt- ir Vilhjálms Ketilssonar, óðals- bónda, og Valgerðar Jóakims- dóttur, eiginkonu hans og kennara. Margrét varð sérstakt yndi foreldra og eftirlæti eldri systur og alls frændliðs. Hún átti langa og viðburðaríka ævi og var stoð og stytta fjölda fólks á lífs- leiðinni. Það er auðvelt fyrir nákominn ættingja að skrifa um mannkosti hennar, gjafmildi og hugprýði, en þar sem ég kann ekki að setja það í ljóðstafi, gríp ég til þeirrar að- ferðar stærðfræðinga að láta þögnina skýra það sem á vantar. Margrét var heitin eftir móð- urömmu sinni, bóndadóttur úr Dölum, sem ein neitaði að stíga á skipsfjöl, þegar foreldrar og systkin fluttust öll til nýrra heim- kynna í Norður-Dakóta. Móðir Margrétar, Valgerður, var lík- lega fyrsta alþýðukona á Íslandi, sem fékk að ljúka æðri menntun í skóla og varð kennari. Margrét stundaði sjálf menntaskóla- og háskólanám. Börn hennar hafa hlotið mjög ýtarlega háskóla- menntun og teljast til sérfróð- ustu vísindamanna þjóðarinnar, hvert á sínu sviði. Margrét var gift þeim menntamanni, sem þjóðin þekkti bezt, að rödd og nafni, Andrési Björnssyni. Hann var skáld gott, en afburða þekk- ing hans á skáldmenntun þjóðar- innar var aðalsmerki hans sem fyrirlesara í þeirri stofnun, sem hann síðar lengi stýrði sem út- varpsstjóri. Ættbogi Margrétar lýsir í hnotskurn sögu þjóðarinnar og þá sérstaklega kvenna, frá ör- birgð ísáranna í lok 19. aldar til umsvifa og hreystiverka nýja tímans. Margrétar er sárt saknað í Elkins Park í Pennsylvaniu. Við Úrsula og börn okkar sendum öllu frændfólki á ættlandinu og hinum megin við hafið innilegar samúðarkveðjur. Ketill Ingólfsson. Þegar ég var tíu ára fluttumst við fjölskyldan frá Kaupmanna- höfn þar sem móðir mín var við nám í tónlistarfræðum og faðir minn stundaði rannsóknir á hin- um íslensku handritum okkar í Árnastofnun. Um haustið byrjaði ég í ellefu ára bekk í Melaskóla og var mér fljótlega boðið í fyrsta afmælið, hjá bekkjarsystur minni Möggu. Þar hitti ég foreldra hennar, Andrés Björnsson útvarpsstjóra og konu hans, Margréti Helgu, í fyrsta sinn að ég hélt. Svo reynd- Margrét Helga Vilhjálmsdóttir ✝ Margrét HelgaVilhjálmsdóttir fæddist 22. maí 1920. Hún lést 7. maí 2016. Útför Margrétar Helgu fór fram 18. maí 2016. ist þó ekki vera því fljótlega kom í ljós að þó ég þekkti þau ekki fyrir þekktu þau foreldra mína og höfðu hitt okkur fjölskylduna í Kaupmannahöfn á meðan við bjugg- um þar. Með okkur Möggu Birnu, yngstu dóttur þeirra, tókst góð vinátta sem hefur haldist æ síðan og höfum við margt skemmtilegt brallað saman gegnum tíðina. Foreldrar Möggu voru því með þeim fyrstu sem ég kynntist eftir heimkomu mína til lands ísa, en ég varð fljótt heimagangur þar. Magga á þrjú eldri systkini, þau Völu, Villa og Óla, sem ég kynnt- ist auðvitað einnig vel og hefur ávallt verið kært á milli. Nú og ekki má svo gleyma börnum þeirra allra sem ég tel einnig mörg hver til minna vina. Á barns- og unglingsárum vörðum við Magga mörgum stundum uppi í risherberginu hennar. Lærðum þar saman stöku sinn- um, en oftast var bara einhver fíflagangur í gangi hjá okkur og ekki leiddist okkur, svo mikið er víst. Mamma hennar Möggu Birnu var ljúfasti töffarinn. Hún tók manni ávallt opnum örmum og dekraði við okkur á sinn skemmtilega máta. Andrés pabbi hennar var hæglátur, en afar ljúf- ur maður. Hann kvaddi mig með ljúfum orðum og bað ávallt fyrir kveðju til foreldra minna. Þegar við Magga vorum að fara út kom mamma hennar jafnan fram í gættina og sagði: Magga mín, ætlar þú ekki að greiða þér áður en þú ferð út? Ætlar þú að fara út í þessu? Af hverju getur þú ekki verið svolítið fín eins og hún Svala? Þetta var auðvitað algjör- lega óverðskuldað hrós í minn garð þar sem það var yfirleitt Magga sem var flottari í tauinu. Við uxum úr grasi og foreldrar Möggu fluttu af Hagamelnum og byggðu hús neðst á Hofsvalla- götu. Þau hjónin bjuggu uppi, en í kjallaranum var íbúð sem flest börn og barnabörn hafa haft af- not af. Börnin hafa notið góðs af og Margrét Helga líka. Þegar ættmóðirin varð áttræð var mér boðið til veislu, enda nánast ein úr fjölskyldunni þó engin séu blóðböndin. Gestirnir yfirgáfu samkvæmið og var ég ein eftir ásamt nánustu fjölskyldu afmælisbarnsins sem fór nú að opna gjafir sínar. Hver gjöf á fætur annarri opnuð með þessum orðum: Mikið er þetta fallegt. Hún/hann hefði nú ekki átt að vera að þessu. Síðan orðum beint til dætranna og sagt: Getið þið ekki notað þetta? Já, svona var hún Margrét Helga. Henni þótti ávallt sælla að gefa en þiggja og var eins og fyrr segir ofurtöffari. Þetta tel ég mann- kosti mikla og kveð hana vinkonu mína með miklu þakklæti. Það voru forréttindi að fá að vera hluti af hennar lífi. Innilegar samúðarkveðjur sendi ég Völu, Villa, Óla og loks Möggu Birnu, vinkonu minni, og fjölskyldum þeirra. Með ljúfri kveðju, Svala Jónsdóttir. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.