Morgunblaðið - 26.05.2016, Side 34
34 ÍSLENDINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016
Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is
Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má
senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn
þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.
Unnið í samvinnu við viðmælendur.
Magnús Ingi Guðmundsson fagnar í dag 24 ára afmæli sínu.Deginum ver hann þó í vinnunni en hann starfar innan deild-ar sérhæfðra fjárfestinga hjá GAMMA. Kærasta Magnúsar
heitir Ingunn Fanney Hauksdóttir og nemur hún iðnaðarverkfræði
við Háskóla Íslands. Þá á hann soninn Guðmund Reyni sem verður sjö
ára í nóvember.
„Ætli maður fari ekki út að borða með vinnufélögunum í hádeginu,
svona í tilefni dagsins,“ segir Magnús og bætir því við að hann hafi það
fyrir reglu að koma með bakkelsi í vinnuna þegar hann á afmæli.
„Það er hrikalegt ef ég gleymi því á morgun [í dag], því þá er þetta
búið að birtast í blaðinu,“ segir Magnús og hlær við.
Spurður um eftirminnilegasta afmælisdaginn nefnir Magnús dag-
inn sem hann varð sautján ára. „Þá fékk maður bílprófið og það voru
auðvitað viss tímamót í lífinu, þó að ógleymdu tuttugu ára afmælinu.“
Aðspurður hvað hann geri utan vinnu segist Magnús leggja reglu-
lega stund á golf. „Forgjöfin mín er þó varla birtingarhæf í því ástandi
sem hún er. Ég neita að minnsta kosti að tjá mig frekar um það.“
Í sumar stefnir Magnús á að fylgjast með íslenska knattspyrnulið-
inu á Evrópumeistaramótinu í Frakklandi, sem fram fer í júní og júlí.
„Ég fer því miður ekki með þeim út en þá verður maður bara að
fylgjast vel með og sýna stuðning hérna heima. Við hljótum að taka
dolluna heim.“
Feðgar Magnús Ingi ásamt syni sínum Guðmundi Reyni á sólardegi.
„Forgjöfin varla
hæf til birtingar“
Magnús Ingi Guðmundsson er 24 ára í dag
net er m.a. umboðsaðili fyrir Happ-
drætti Háskóla Íslands, SÍBS og
Heimsferðir. Jafnframt starfrækir
Laufey bókunarþjónustu og upplýs-
ingaþjónustu fyrir erlenda ferða-
menn, ásamt því að hafa starfað í
leikskólanum Vesturbergi fyrir há-
degi í átta ár. Hún er nú að hætta í
leikskólanum og verður ritari Sam-
bands sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Söngur og íþróttir
Laufey æfði handbolta um skeið,
var einn stofnenda Fimleikafélags
L
aufey Auður fæddist á
Sjúkrahúsi Keflavíkur
26.5. 1956. Hún var í
Barnaskóla Keflavíkur
og er gagnfræðingur
frá Gagnfræðaskóla Keflavíkur.
Á unglingsárunum dvaldi Laufey
tvö sumur í Auðsholti Biskups-
tungum hjá Tómasi Tómassyni
bónda og Helgu Þórðardóttur kenn-
ara: „Ég var nýfermd þegar ég var
send í sveitina. Þarna tók maður
virkan þátt í bústörfunum hjá ynd-
islegu fólki sem ég hef verið í góðu
sambandi við allar götur síðan.“
Laufey stundaði síðan verslunar-
störf í nokkur ár og var búsett í Sví-
þjóð í tvö ár meðan eiginmaðurinn
lék knattspyrnu með TIF, knatt-
spyrnuklúbbnum í Trollhättan.
Eftir að þau komu heim starfaði
hún í 10 ár við Verslunarbanka Ís-
lands, vann við ræstingar, var dag-
mamma, vann við skóladagvistun,
var ritari Fjölbrautaskóla Suð-
urnesja í átta ár.
Laufey stofnaði umboðsfyrirtækið
Bergnet árið 2007 og hefur starfrækt
það síðan með öðrum störfum. Berg-
Laufey Auður Kristjánsdóttir framkvæmdastjóri – 60 ára
Skírnarveisla Hér eru Laufey og Sigurbjörn Svavar með börnunum sínum, tengdabörnunum og barnabörnunum.
Syngur og hlær með
Sönghópi Suðurnesja
Í veiðiferð Laufey, Sigurbjörn Svavar og tíkin Skotta í Veiðivötnum í fyrra.
Akranes Arney Kúld fæddist á
Akranesi 12. maí 2015 kl. 16:14.
Hún vó 4.450 g og var 52 cm að
lengd. Foreldrar hennar eru Arnór
Yngvi Hermundarson og María
Kúld Heimisdóttir.
Nýr borgari
Börn og brúðhjón
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af
brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar
eða á islendingar@mbl.is
Á opnunni „Íslendingar“ í
Morgunblaðinu er sagt frá
merkum viðburðum í lífi
fólks, svo sem stórafmælum,
hjónavígslum, barnsfæðingum
og öðrum tímamótum.
Stærsta uppboð ársins · Óvenju margar perlur gömlu meistaranna
sunnudaginn 30. maí, kl. 16
og mánudaginn 31. maí, kl. 18
Listmunauppboð
í Gallerí Fold
Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is
Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is
Forsýning á verkunum fimmtudag til mánudags
fimmtudag kl. 10–18, föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17,
sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17
Ásgrímur Jónsson