Morgunblaðið - 26.05.2016, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 26.05.2016, Qupperneq 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. MAÍ 2016 Baðaðu þig í gæðunum Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • www.tengi.is • tengi@tengi.is Opið virka daga frá kl. 8-18 og laugardaga kl. 10-15 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Lykilverkið á efnisskránni er kant- atan La Lucrezia eftir G. F. Händel, en auk þess verða fluttar bæði aríur og hljómsveitarverk,“ segir Sigríður Ósk Kristjánsdóttir, mezzósópran og annar tveggja listrænna stjórnenda tónleika barokkhópsins Symphonia Angelica í Guðríðarkirkju í kvöld, fimmtudag, kl. 19.30. „Ég hef starfað mikið í Englandi og þar flutt mikið af barokktónlist með The Classical Opera Company í London,“ segir Sigríður Ósk sem söng Lucreziu með síðastnefnda tón- listarhópnum í Kings Place. „Ein- leikurinn Lucrezia er grípandi saga þar sem leikið er á stóran tilfinn- ingaskala bæði í texta og tónum. Händel færir frásögn Lucreziu fram á snilldarlegan hátt með fallegum laglínum, áköfu söngtali og mögn- uðum kólóratúr,“ segir Sigríður Ósk og rifjar upp að kantata Händel byggist á örlögum rómverskrar stúlku sem uppi var um 500 árum fyrir Krist. „Lucrezia var fögur og eftirsóknarverð stúlka af merkum ættum í valdatíð konungsins og harð- stjórans L. Tarquinius Superbus. Sonur hans, Sextus, nauðgaði Lucre- ziu sem framdi sjálfsmorð af skömm. Í kjölfarið fór af stað atburðarás sem olli byltingu, konungdæmið hrundi og rómverska lýðveldið var stofnað.“ Spuni tengir verkin saman Spurð um tilurð barokkhópsins Symphonia Angelica segist Sigríður Ósk hafa leitað til Sigurðar Halldórs- sonar sellóleikara. „Hann er algjör snillingur í barokkinu og fleiru. Hann tók að sér að smala saman framúrskarandi tónlistarfólki, en það skemmtilega við þennan hóp er að þátttakendur eru á öllum aldri og á mismunandi stað í sínum ferli,“ segir Sigríður Ósk, en Symphonia Ange- lica skipa auk Sigríðar Óskar og Sig- urðar þau Halldór Bjarki Arnarson semballeikari, fiðluleikararnir Hildi- gunnur Halldórsdóttir og Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Þóra Margrét Sveinsdóttir víóluleikari og Arngeir Heiðar Hauksson, gítar- og lútuleik- ari. „Við Sigurður og Halldór Bjarki byrjuðum að spila saman fyrir ári, en tónleikarnir í Guðríðarkirkju eru fyrstu tónleikar hópsins í núverandi mynd,“ segir Sigríður Ósk og tekur fram að hópurinn hafi það að mark- miði að nálgast viðfangsefnið á fersk- an og skapandi hátt. „Bæði í fram- setningu og flutningi, en markmiðið er að gera samband áhorfenda og flytjenda nánara,“ segir Sigríður Ósk og bendir á að notast verði við spuna milli verka til að tengja þau saman og ná fram sérstökum áhrif- um með því að gæða formið lífi. Aría samin fyrir gelding „Þessi spunanálgun er alveg í anda barokksins, því upphaflega ein- kenndist barokkið af miklum spuna og er þannig skylt djassinum.“ Auk Lucreziu eru á efnisskránni Sónata í g-moll eftir Henry Purcell, arían Scherza Infida úr Ariodante eftir G. F. Händel og Sinfónía í C-dúr eftir A. Vivaldi. „Til að lyfta áheyr- endum upp eftir dramatíkina um Lucreziu flytjum við aríuna „Or la nube procellosa“ úr óperunni Arta- serse eftir J. A. Hasse sem hann samdi fyrir Farinelli, síðasta geld- inginn, en geldingsröddin liggur á svipuðum stað og mezzósópran- röddin, kannski aðeins hærra,“ segir Sigríður Ósk og bendir á að N. Por- pora hafi lagt sitt lóð á vogarskál- arnar við gerð geldingsaríunnar. Kvenkyns barokktónskáld „Loks má nefna að við munum flytja tvö verk eftir franska tón- skáldið Élisabeth-Claude Jacquet de La Guerre sem nýlega var endur- uppgötvuð sem tónskáld. Ég mun syngja gullfallega aríu úr óperunni Cephale et Procris sem nefnist „Non, vivez, je le veux“ auk þess sem hljómsveitin leikur forleikinn úr þessari sömu óperu sem og verk sem nefnist Chacconna. Það er mjög sér- stakt að vera með tónlist eftir konu frá barokktímanum á efnisskránni,“ segir Sigríður Ósk að lokum. Ljósmynd/Jóhanna Helga Þorkelsdóttir Listafólkið Sigurður Halldórsson, Halldór Bjarki Arnarson, Þóra Margrét Sveinsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir, Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Sigríður Ósk Kristjánsdóttir og Arngeir Heiðar Hauksson. „Leikið er á stóran tilfinningaskala“  Symphonia Angelica leikur barokkverk á Listahátíð Daginn sem leikhópurinnBlink frumsýndi leikritiðSími látins manns eftirbandaríska leikskáldið Söruh Ruhl í Tjarnarbíói birtist á vef mbl.is umfjöllun um splunkunýja rannsókn útskriftarnema í félags- og fjölmiðlafræði við Háskóla Íslands sem sýndi fram á neikvæð áhrif snjallsíma á samskipti, samveru og samlíf í ástarsamböndum. Þessar rannsóknarniðurstöður ættu auðvit- að ekki að koma á óvart, enda lengi verið varað við þessari skuggahlið snjallsímanna. Á yfirborðinu virðist fyrrnefnt leikrit Söruh Ruhl, sem frumsýnt var vestanhafs fyrir tæpum áratug, vara við snjallsímavæðingunni. Leikritið fjallar um Nínu sem aldrei hefur átt farsíma vegna þess að hún vill ekki alltaf vera í sambandi því „ef það er kveikt á símanum á maður víst alltaf að vera í sambandi. Stund- um vil ég bara vera ótengd, hverfa. En það er eins og þegar allir eru með kveikt á símanum, sé enginn í sambandi. Eins og við séum öll að hverfa því meira sem við tengj- umst,“ segir hún um miðbik verks. Í upphafi leikritsins ákveður Nína, þar sem hún er stödd á kaffi- húsi, að svara í farsíma ókunnugs manns sem hringt hefur án afláts og kemst fljótlega að því að ástæða sinnuleysis símaeigandans er sú að hann er látinn. Í framhaldinu kemst hún að því að látni maðurinn, Hjört- ur, hugsaði aðeins um sjálfan sig og skildi eftir sig óhamingjusama eigin- konu, bitra móður, bældan yngri bróður og svikna hjákonu. Nína virðist sjálf þjást af ótrúlegri með- virkni með látna manninum, því hún fer furðufljótt að ljúga að aðstand- endum hans hinu og þessu sem Hjörtur á að hafa sagt og gert til að fegra ímynd hans og láta eftirlif- endum líða betur, en Nína virðist af óskiljanlegum hvötum leggja ofurást á látna manninn. Hægt hefði verið að skrifa bæði áhugavert og beitt leikrit um þetta efni eitt og sér, en í miðju kafi ein- hendir höfundurinn sér yfir í aðra og alls óskylda hugmynd sem snýr að svartamarkaðsbraskinu í kringum alþjóðlega líffærasölu með tilheyr- andi predikunartón. Vissulega getur verið spennandi að tengja saman tvær mjög ólíkar hugmyndir þar sem núningurinn eða samruninn getur leitt til spennandi og óvæntrar útkomu, rétt eins og þegar ólíkum hráefnum í matseld er blandað sam- an á nýstárlegan hátt. En sú er því miður ekki raunin hér og þannig birtist innleggið um líffærasöluna satt að segja eins og skrattinn úr sauðarleggnum. Einn helsti styrkur Söruh Ruhl felst í því hvernig hún beitir markvisst svörtum húmor en lausbeisluð hugmyndaauðgin á það til að hlaupa með hana í gönur. Ruhl leggur meira upp úr flóknu plotti en dýpt í persónusköpun og fyrir vikið verða allar persónur verksins býsna ýktar og á mörkum skopstælingar. Leikstjórinn Charlotte Bøving nálgast þennan vandasama efnivið af mikilli fagmennsku og tekst að búa til býsna heilsteypta sýningu úr efni- viðnum. Umgjörðin öll, hvort heldur snýr að lýsingu Arnars Ingvars- sonar, frábærri tónlist Ragnhildar Gísladóttur eða búningum, leikmynd og flottri grafík Fanneyjar Sizemore er til fyrirmyndar og skapar skýran ramma utan um leikinn. María Dalberg er afar trúverðug sem músin Nína sem reynir að gera öllum til hæfis. Líkamsmál hennar undirstrikaði skýrt óöryggi persón- unnar í samspili við aðra. Gaman hefði samt verið að sjá hana ögn ákveðnari í byrjun í samskiptum sín- um við símaeigandann þannig að andlát hans hefði getað sett hana meira úr jafnvægi en raunin varð. Kolbeinn Arnbjörnsson gerði mjög skýran greinarmun á bræðrunum Hirti og Bolla. Hjörtur var töffarinn uppmálaður meðan Bolli var afar óöruggur og jaðraði við að verða þreytandi í taugaveiklun sinni. Sú nálgunarleið að draga upp svo mikl- ar andstæður er skiljanleg, ekki síst þegar sami leikarinn þarf að leika þá báða, en var á stundum aðeins of ýkt. Elva Ósk Ólafsdóttir átti skemmtilega takta í hlutverki frú Gottlieb, móður bræðranna. Enn og aftur sýndi hún hversu gott vald hún hefur á kómískum tímasetningum. Halldóra Rut Baldursdóttir túlkaði tálkvendið Karlottu, hjákonu Hjart- ar, af góðu öryggi og dró upp fína mynd af hinni óhamingjusömu eig- inkonu, Hermíu. Þýðing Ingólfs Eiríkssonar og Matthíasar Tryggva Haraldssonar hljómaði þjál og skemmtilegar voru vísanir í íslenska bókmenntaarfinn, þó staðfærslan hafi ekki alltaf geng- ið alveg upp. Uppfærsla Blink á Sími látins manns er vönduð og á köflum býsna skemmtileg, en leikritið sjálft er langt frá því að vera gallalaust og býður ekki upp á mikil tilþrif. Ljósmynd/Óli Magg Samspil María Dalberg og Kolbeinn Arnbjörnsson í hlutverkum sínum. „Verð að ná sambandi“ Tjarnarbíó Sími látins manns bbbnn Eftir Söruh Ruhl. Íslensk þýðing: Ing- ólfur Eiríksson og Matthías Tryggvi Har- aldsson. Leikstjórn: Charlotte Bøving. Tónlist: Ragnhildur Gísladóttir. Leik- mynd, búningar og grafík: Fanney Size- more. Lýsing: Arnar Ingvarsson. Leik- arar: María Dalberg, Kolbeinn Arn- björnsson, Elva Ósk Ólafsdóttir og Halldóra Rut Baldursdóttir. Leikhóp- urinn Blink setur upp í samstarfi við Listahátíð í Reykjavík. Frumsýning í Tjarnarbíói 23. maí 2016. SILJA BJÖRK HULDUDÓTTIR LEIKLIST

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.