Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.03.2003, Síða 14

Víkurfréttir - 13.03.2003, Síða 14
VF BÍLAR ORYGGIIFYRIRRUMI í NYJUM MEGANE Ahstunsítróttafélag Suðurnesja stækkar hratt • • ryggisþættir nýja Renault Mégane bílsins cru í háveg- um haföir. I bílnum cru 6 líknarbclgir, tveir fram í ásamt tveimur hliöarpúöum og tveir gardínupúöar í hiiöum, auk skriöpúöa í sætum sem koma í veg fyrir að farþegar kastist til við haröan árekstur. Renault Megane hlaut 5 stjörnur í árekstrarprófunum Evrópsku eftirlitsstofnunarinnar (EuroNCAP) cn að stofnuninni standa m.a. hcildarsamtök neyt- enda og bifreiðaeigenda í Evr- ópu. Undirritaður prófaði beinskiptan Megane og það verður að segjast eins og er að bíllinn er mjög góður í akstri. Hann er með rafstýri og er mjög léttur í keyrslu. Hinir hefð- bundnu lyklar heyra sögunni til því til að ræsa bílinn stingur maður tölvukorti í sérstaka rauf í mæla- borðinu og ýtir á hnapp. Ný hönnun á fjöðrunarkerfi gerir bílinn rásfastan og breytilegt raf- stýri gefur þér góða tilfinningu fyr- ir veginum, þar sem átak þess lagar sig sjálfkrafa að aksturshraðanum. Þá er nýr gírkassinn þéttur og stutt er á milli gíra svo að þú skiptir fyr- irhafnarlaust á milli. Nýtt bremsukerfi er óvenju öflugt, en bremsudiskar ABS hemlakerfis- ins eru stærri en venjulega. Hinn nýi Mégane er búinn ABS hemla- kerfi með EBD bremsujöfnunar- búnaði og EBA neyðarhemlum. Fyrir vikið er nýr Mégane með stystu bremsuvegalengdina í sínum flokki. Renault Megane línan er með úrval afkraftmiklum 1,6 lóventlavél- um, sem búnar eru út með breyti- legum ventlatíma. Einstaklega hijóðlátar og viðbragðsfljótar vélar en samt spameytnar, en sem dæmi má nefiia að 1,6 WT vélin eyðir aðeins 6,8 ltr/100 km í blönduðum akstri. Undirritaður var mjög ánægður með bílinn í akstri og útliti. Bíllinn er rúmgóður sem íjölskyldubíll og öryggisþættimir skipta miklu máli. Jóhannes Kr. Kristjánsson Nánari upplýsingar er hægt að nálgast á vef Bifreiða og Landbún- aðarvéla: www.bl.is Akstursíþróttafélag Suð- urncsja var stofnað 11. nóvember 1982. Klúbb- urinn var í mörg ár rekinn af örfáum einstaklingum sem í gríni kölluðu sig 5 manna nefndina. Við áttum það sam- eiginlegt aö hafa mikinn áhuga á mótorsporti og með góðri að- stoð margra kunningja höfum við frá árinu 1982 haldið hið árlega Suóurnesjarall við góð- an orðstír. A árinu 1999 urðu talsverðar breytingar þar sem ákveðið var að AÍFS tæki að sér að halda eina torfærukeppni i Stapafelli, þetta átti síðan eftir að vinda ótrúlega upp á sig og endaði með því að AIFS félagar aðstoðuðu við allmargar keppnir á árinu og héldu einnig torfærukeppni í Grindavík og toppuðu svo árið með árshátíð Landssambands Is- lenskra akstursfélaga í Stapa. Um veturinn gerðist það síðan að nokkrir klúbbar sögðu skilið við LÍA og AÍFS var beðið um að taka að sér nokkrar keppnir á ár- inu 2000. Ekki leist öllum á það og þótti fullmikil keyrsla á liðinu. Síðan kom vorið og AIFS fór í gang og hvern hefði órað fyrir öðru eins. Fyrst kom Rally- sprettur síðan Stapafelltorfæra, Suðumesjarall og svo skrapp um það bil 50 manna hópur Suður- nesjamanna til Englands (Swindon) og hélt torfærukeppni með stæl fyrir um það bil 10.000. manns. (Efhi og myndir úr þeirri ferð gæti fyllt heilt blað, margar sérstakar uppákomur urðu þar á vegi saklausra Suöurnesja- drengja). Þegar heim var komið tók við sleitulaust keppnishald sem end- aði með því að við höfðuni lagt að baki 14 keppnir og litli klúbb- urinn var orðinn stærsti keppnis- haldari landsins í mótorsporti, og svo var endað með 300 manna árshátíð LIA á Ránni í Keflavtk, hvar annarstaðar. Undanfarin ár hefiir klúbburinn tekið út nokkra vaxtarverki vegna stækkunarinn- ar en þó dafhað ágætlega og nú eru skráðir tæplega 100 félags- menn í AÍFS. Núverandi stjórn gerir sér grein fyrir því að nú er korninn tími tii þess að taka ákvörðun um það hvort AÍFS sem nú er orðið 20 ára eigi að sækja um inngöngu í íþrótta- hreyfinguna og verða fullgilt íþróttafélag með öll réttindi og skyldur sem því fylgja. Búió er að útbúa umsókn þar að lútandi og vonumst við til þess að vera orðnir viðurkenndir innan ÍSÍ á næsta ári. Akstursíþróttafélag Suðurnesja vill í lokin þakka fjölmörgum velunnurum félags- ins sem hafa mörg hver stutt fé- lagið allt frá stofnun. Fyrir liönd stjórnar, Garðar Gunnarsson, Stjórn hins tvítuga akstursíþróttafélags. Fonnaður: Þórarinn Karlsson Varaform.: Garðar Gunnarsson Gjaldkeri: Ragnar Magnússon Ritari: HalldórVilberg Stjórnarmaður: Halla Vilbergs- dóttir 0% VEXTÍR BJODUM TAKMARKAÐ MAGN AF UPPITÖKUBILUM A EINSTÖKUM VILDARKJÖRUM í ALLT AD 48 MÁNUÐI. ENGIR VEXTIR - ENGIN VERÐTRYGGING HYUNÐAIACCENT 01/2000 Ekinn 56 þús. 5 dyra. Beinskipt. Slagrými 1495cc, Verðkr. 690.000,- Mánaöarl.gr. um. kr. 15.000,- T0Y0TAC0R0LLA 01/2001 Ekinn 46 þús. 5 dyra. Beinskipt. Slagrými 1898cc, Verðkr. 1.190.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 25.900,- RENAULT MEGANE 3/2000 Ekinn 72 þús. 4 dyra. Sjálfskipt. Slagrými 1598cc. Verðkr. 1.150.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 25.900,- RENAULT CLI0 9/1999 Ekinn 56 þús. 3 dyra. Slagrými 1390cc. Verð kr. 730.000,- Mánaðarl.gr. um. kr 15.900,- HYUNDAIACCENT 5/2000 Ekinn 39 þús. 3 dyra. Slagrými 1495rr Verðkr. 640.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 18.300,- HYUNDAIS0NATA 07/1999 Ekinn 89 þús. 4 dyra. Slagrými 1997cc. Verðkr. 1.090.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 23.800,- RENAULT KANG00 7/1999 Ekinn 43 þús. 5 dyra. Beinsk. Slagrými 1390cc. Verð kr. 950.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 20.700,- RENAULT LAGUNA 7/1999 Ekinn 66 þús. 5 dyra. Beinsk. Slagrými 1698cc. Verð kr. 1.180.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 25.700,- DAEW00LAN0S 6/1998 Ekinn 51 þús. 5 dyra. Beinskipt. Slagrými 1598cc, Verð kr. 690.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 15.000,- RENAULT CLI0 10/2000 Ekinn 36 þús. 5 dyra. Sjálfsk. Slagrými 1390cc, Verðkr. 990.000,- Mánaðarl.gr. um. kr. 21.600,- BILASALA KEFLAVIKUR Sími 421 4444 Bolafæti 1 v/Njarðarbraut Opið virka daga kl. 9-18 • laugardaga 12-16 • 14 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.