Víkurfréttir - 10.04.2003, Side 2
Aðalsafnaðarfundur Keflavíkurkirkju verður
haldinn sunnudaginn 27. apríl að lokinni
messu kl. 11.
Boðið er upp á léttan hádegisverð kl. 12
og fundur mun hefjast rétt fyrir kl. 13.
Dagskrá samkvæmt starfsreglum um sóknarnefndir.
Við hvetjum sem flesta safnaðarmeðlimi til að taka þátt
í störfum kirkjunnar og mæta á aðalsafnaðarfund.
Kjósa á í stjórn safnaðarins 4 aðalmenn til fjögurra
ára og varamenn þeirra.
Peir safnaðarmeðlimir sem vilja taka þátt í
stjórnunarstörfum eru vinsamlega beðnir um að hafa
samband við umjónarmann kirkju og kirkjugarða í
Kirkjulundi fyrir 20. apríl, sem veitir allar nánari
upplýsingar.
Sóknarnefnd Keflavíkurkirkju
Tillögur um lausn á vanda
Heilbrigðisstofnunarinnar
Itillögum yfirlækna heilsu-
gæslustöðvanna í Reykjavík
er gert ráð fyrir því að
heilsugæsluiæknar í Reykjavík
aðstoði við að leysa vandamál
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja með því að Heilsugæslan
í Reykjavík taki að sér stjórn
heilsugæslunnar. Þannig yrði
stjórn hennar ekki stjórn nú-
verandi framkvæmdastjóra
Heilbrigðisstofnunar Suður-
nesja.
Gert er ráð týrir að heilsugæslan
lúti í öllu reglum og skipuriti
heilsugæslunnar í Reykjavík og
að læknar af höfuðborgarsvæð-
inu sjái um að manna stöðumar í
Reykjanesbæ á meðan rekstrin-
um er komið í lag. Tillögumar er
til umfjöllunar í heilbrigðisráðu-
neytinu.
LANCOME
Glæsilegir kaupaukar!
Velkomin á LANCÖME kynningu
í dag og á morgun föstudag.
Láttu snyrtifræðing hjálpa þér að velja vörur sem henta
þinni húð og þínum stíl fullkomlega.
Margar skemmtilegar nýjungar:
T.d. Résolution, nýtt undrakrem gegn hrukkum og
Magicils, ótrúlegur maskari í frábærum litum -
augnskuggar í sömu tónum!
Le Gift árlegu, glæsilegu kaupaukarnir eru komnir (sjá mynd).
Verið velkomin,
MÆKá Apótek Keflavíkur
Snyrtivörudeild
.W..iSuðurgötu 2 - Keflavík
Leki kom að Arna
Óla KE á landleið
Leki kom að netabátnum
Árna Óla KE er hann
var á landleið úr róðri
sl. fóstudag og óskuðu skip-
verjar eftir aðstoð Slökkviliðs
Sandgerðis. Sjór var bæði í
vélarrúmi og lest er báturinn
iagðist að bryggju en þá var
strax hafist handa við að
dæla upp úr honum.
Reynir Sveinsson slökkviliðs-
stjóri sagði í samtali við
Víkurfréttir að Ámi Óla hefði
átt eftir um 20 mínútna sigl-
ingu til lands er beiðni um að-
stoð hefði borist rétt fyrir
klukkan þrjú á föstudag.
„Það fór hosa á röri í vélarhús-
inu, líklega við kælivatnsinn-
tak. Það var kominn talsverður
sjór í bátinn en engin hætta þó
á ferðum, hann hefði þolað
mun meiri sjó. Við fórum með
lausa dælu um borð strax og
báturinn lagðist að og dældum
bæði úr vélarhúsinu og lestinni.
Þeir eru nú búnir að gera við
þetta,“ sagði Reynir.
Skúli Þ. Skúlason afhendir Víðismönnum styrkinn.
Samkaup styrkir
unglingastarf Víðis
Samkaup hf. afhenti Ung-
lingadeild Víðis í Garði
300.000.- krónur í styrk á
dögunum. Sigurjón Kristins-
son forystumaður í unglinga-
starfi Víðis tók við peningun-
um fyrir hönd félagsins úr
hendi Skúla Þ. Skúlasonar
starfsmannastjóra Samkaupa
á æfingu hjá yngstu knatt-
spyrnuiðkendunum. Skúii
sagði við þetta tilefni að umtal-
að væri á Suðurnesjum hve
gott unglingastarf Víðis væri
og vildu Samkaupsmenn
stuðla að því að það héldi
áfram.
Siguijón Kristinsson sagðist vera
mjög ánægður með þessa gjöf og
hún myndi koma að góðum not-
um. Þakkaði hann Samkaup fyrir
gjöfina og sagði hann fyriitækið
eiga hrós skilið.
2
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!