Víkurfréttir - 10.04.2003, Page 20
Jói Helga og Helga Möller skemmta
Stúlkumar koma þrisvar íram um kvöldið. Fyrst í opnunaratriði frá
fataversluninni Persónu, þá í Speedo sundbolaatriði frá K-sport og að
lokum koma þær ffarn í sínum eigin kvöldkjólum. Þótt að stúlkumar
séu í aðalhlutverki um kvöldið þá verður margt annað gert til skemmt-
unar. Hinn heimsfrægi dúett „Þú og ég“ sem skartar þeim Jóhanni
Helgasyni og Helgu Möller mun skemmta gestum auk þess sem Apó-
tek Keflavíkur býður upp á undirfatasýningu frá Omblu. Þá mun hinn
skemmtilegi dúett „Amor“ frá Keflavík koma fram.
Panoramaskvísan kynnir
Kynnir kvöldsins verður Panoramaskvísan Vígdís Jóhannsdóttir. í
dómnefndina skipa Elín Gestsdóttir, ffamkvæmdastjóri Fegurðarsam-
keppni Islands, Ins Björk Amadóttir fegurðardrottning, Magnea Guð-
mundsdóttir ffamkvæmdastjóri Bláa lónsins, Brynja Björk Harðardótt-
ir, tannlæknanemi og fyrrverandi fegurðardrottning og Karl Finnboga-
son hagffæðingur.
Kosið verður um titilinn Fegurð-
ardrottning Suðumesja, 2. og 3
sætið, Bláa lóns stúlkan, Ljós-
myndafyrirsætu Suðumesja, K-
sport stúlkuna og þá verður vin-
sælasta stúlkan valin úr hópnum.
Margar hendur
hafa lagt hönd
á plóginn
Það em margir sem hafa komið
að undirbúningi keppninnar til
að gera kvöldið sem glæsilegast.
Má þar m.a. nefha Sigriði Krist-
jánsdóttur sem hefur séð til þess
að stúlkurnar séu í sínu besta
formi en þær hafa æft undir dyg-
gri handleiðslu hennar í Perlunni.
Oddný Nanna Stefánsdóttir heflir
annast ffamkomu og annan und-
irbúning stúlknanna auk þess
sem hún stíliserar keppnina
ásamt Lovísu Aðalheiði Guð-
mundsdóttur sem er einnig ffam-
kvæmdastjóri keppninnar. Stúlk-
urnar á Nýja klippótek og
Capelló sjá um hár stúlknanna í
keppninni og Apótek Keflavíkur
sér um forðun þeirra. Oddgeir
Karlsson og Tóbías Sveinbjöms-
son sáu um myndatökur af stúlk-
unum. Þá hafa Víkurfréttir og
TVF séð um að kynna stúlkumar
með glæsibrag. Þá mun Omar í
Blómavali sjá um allar blóma-
skreytingar og blómavendi um
kvöldið. Aðstandendur Fegurðar-
samkeppni Suðurnesja vilja
þakka öllum þeim sem koma að
keppninni kærlega fyrir en án
þeirra væri illmögulegt að halda
svona glæsilega keppni eins og
Fegurðarsamkeppni Suðurnesja
er ár hvert.
Miðasala
í fullum gangi
Miðasala á Fegurðarsamkeppni
Suðumesja er hafin. Hægt er að
panta miða í síma 697-4030.
Stórglæsi-
legt kvöld
framundan
Fegurðarsamkeppni Suður-
nesja vcrður haldin í Bláa
lóninu laugardaginn 12.
apríl. Tólf glæsilegar stúlkur af
Suðurnesjum taka þátt í Feg-
urðarsamkeppni Suðurnesja.
Fegurðarsamkeppni Suður-
nesja er ávallt ein glæsilegasta
undankeppni sem haldin er ár
hvert og verður engin breyting
þar á í ár. Húsið opnar kl.
19:30 með fordrykk. Síðan
verður boöið upp á þriggja
rétta sælkeramáltíð, en í for-
rétt verður ^rafið lamb á
grænu beði. I aðalrétt verða
kalkúnabringur með villi-
sveppasósu, grænmeti og fond-
ant kartöflum og í eftirrétt
verður súkkulaði og hnetuka-
ka með vanillusósu. Veitinga-
stjóri er Sveinn Sveinsson.
Stúlkurnar tólf sem taka þátt í
Fegurðarsamkeppni Suð-
urnesja 2003 voru Ijósmynd-
aðar á kvöldkjólum í síðustu
viku. Myndirnar birtast í
Tímariti Víkurfrétta sem kemur
í verslanir á föstudagsmorgun.
með Bubba Morlhens í
Safnaðarheimilinu
í Sandgerði
þriðjudagskvöldið
15. apríl kl. 21.
20
VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!