Víkurfréttir - 30.04.2003, Page 14
Nýtt glerbræðslunámskeið
hefst eftir helgi.
ÁRSÓL
Heifiarbraut 2c, Garði,
Sírni 422 7935
og896 1586
Útvega
gróðurmold
og skrautmöl.
Vörubíll meS krana
Bjarni Magnús Jóhannesson
Akstur - efnissala - hífingar
Símar 868 3274 og 421 6558
SKYGGNILYSINGAFUNDUR
Þórhallur Guðmundsson miðill verður með
skyggnilýsingafund í húsi félagsins að
víkurbraut 13, Keflavík sunnudaginn_
4. maí kl. 20.30. v
Húsið verður opnað kl. 20. VI/
Aðgangseyrir við innganginn.Æ^V
mi tt
Allir velkomnir.
Stjórnin.
I I
VIÐ, ÞESSI SKRYTNU
Margir hafa gaman af
því að bregða sér út
fyrir bæja|~^iörk án^á
finna við að sigra fjall, bara af
því að það er þarna. Ég hef
einu sinni á ævinni fengið þá
undarlegu flugu í höfuðið að
ganga á fjall, en þá ákváðum
við, ég og tíkin Tyrra að ganga
á Ingólfsfjall. Ekki veit ég hvor
okkar var þreyttari að þeirri
göngu lokinni en þessi undar-
lega fluga hefur aldrei ásótt
mig aftur. Mér finnst gaman að
horfa á fallegt Iandslag, en ég
finn enga löngun til að leggja
það undir fætur mér.
Aftur á móti hef ég gaman af
fólki og alls konar ummerkjum
um fólk og þá þyngist róðurinn,
hvar leita ég. Reyndar eru mörg
skemmtileg söfh og minnismerki
um fók víða um landið en fleira
mætti vera. En hefðbundin
byggðasöfn og minjasöfn eru
víðast til fyrirmyndar, en eru ekki
viðfangsefni þessa pistils.
Sjóbúðina á Stokkseyri hef ég oft
kíkt í og reynt að ímynda mer
hvemig lífið þar hefur verið. Eg
hef líka stundum látið mig drey-
rna hvaó gæti verið garnan þar
eða á sambærilegum stöðum að
hafa vaxmyndir sem sýndu líf og
störf þessa fólks. Að hafa meiri
upplýsingar um fólkið sem þama
bjó, um daglegt líf þess, um alla
þessa litlu hversdaglegu hluti
sem þó skipta svo miklu máli.
Sem gera fólkið hluta af lifandi
sögu okkar. Slíka hluti er hægt að
gera viða, merkja vel markverða
staði og hafa vel aðgengilegar
upplýsingar um fólkið og líf
þess.
Þó ljótt sé frá að segja þá eru
flestir bæir á Islandi að verða
undarlega keimlíkir, ný einbýlis-
húsahverfi gætu verið hvar sem
er. Utilistaverk mættu að skað-
lausu vera miklu fleiri og hvað
með alla gaflana til dæmis á op-
inberum byggingum, af hverju
ekki setja graffiti eða önnur verk
á þá. Það má ímynda sér hversu
gaman gæti verið að fara um
Reykjanesbæ ef Reykjaneshöllin
og Skipasmíðastöðin væru
skreyttar stórum og fallegum
verkum. Það er töluvert af stór-
um og tómlegum veggflötum í
bænum, af hverju ekki skreyta
þá?
Eg er ekki frá því að mörgum
ungum listamönnum og listrænu
áhugafólki þætti gaman að fá
stóra fleti til að útfæra hugmynd-
ir sínar og/eða annarra, jafnvel þó
kaupið væri ekki hátt. En mikið
ótrúlega gæti verið gaman að
koma inn í bæ, þar sem mikið
væri að sjá og skoða af slíkum
verkum.
Maður er nú einu sinni manns
gaman og fleiri en ég fara þangað
sem von er annarra, það er ekki
tilviljun hversu vinsæl Eden í
Hveragerði er, margt að sjá og
skoða, gróður, söluvarningur,
listasýningar, og síðast en ekki
síst fólk.
Og við, þessi skrýtnu færum
sennilega oftar og eyddum meira
í bæjum landsins ef fleira drægi
okkur á staðinn, skemmtilegar
myndir utanhúss, listaverk,
óvenjuleg hús, skemmtileg og
kannski dálítið undarleg söfn,
staðir þar sem hægt er setjast nið-
ur og skoða fólk.
Þórunn Friðriksdóttir,
kennari og frambjóðandi VG í
2. sæti í Suðurkjördæmi.
REYKJAN ESBÆR
Alþingiskosningar 10. maí 2003
Auglýsing um kjörfund vegna kosninga til alþingis
laugardaginn 10. maí 2003.
Kjördeildir eru:
• í Holtaskóla fyrir íbúa í Keflavík.
• í Njarðvíkurskóla fyrir íbúa í Njarðvík og Höfnum.
Kjósendur eru minntir á að hafa með sér
persónuskilríki.
Kjörstaðir opna kl. 09 og loka kl. 22.
Á kjördag mun yfirkjörstjórn hafa aðsetur í
Holtaskóla og er símanúmer yfirkjörstjórnar
þar 421 7592.
Kjörskrá fyrir Reykjanesbæ.
Kjörskrá fyrir Reykjanesbæ vegna alþingiskosninga
sem fram fara þann 10. maí 2003 liggur frammi
á skrifstofum Reykjanesbæjar Tjarnargötu 12,
2. hæð.
Kjörskráin er þar almenningi til sýnis frá kl. 9 til
15 hvern virkan dag fram að kjördegi.
Kjósendur eru hvattir til að kynna sér hvort nöfn
þeirra séu á kjörskránni.
Athugasemdum við kjörskrá skal beina til
bæjarstjórnar.
Reykjanesbæ 28. apríl 2003.
Yfirkjörstjórn Reykjanesbæjar.
14
VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!