Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.05.2003, Page 13

Víkurfréttir - 30.05.2003, Page 13
þætti sem tengjast ákveðnum framkvæmdum í viðkomandi hverfi. Viðbrögð bæjarbúa voru góð og fram komu margar góðar athugasemdir. ■ Þú sendir ákveðin skilaboð varðandi áhuga þinn á menntamálum þegar þú varðst formaður fræðsluráðs Reykja- nesbæjar. Hefur verið unnið markvisst að þessum málum síðasta ár, í ljósi slælegs árang- urs nemenda á Suðurnesjum í samræmdum prófum? Já, mér fannst ljóst að við yrðum að gera þetta að forgangsverkefhi hjá okkur og það er mikill áhugi innan fr æðsluráðsins að gera bet- ur. Ég finn sama áhuga hjá starfsfólki skólanna og ekki síst foreldrum. Við stöndum ffammi fyrir ákveðnum staðreyndum hér og þær staðreyndir eru að við erum ekki að ná sama árangri í samræmdum prófúm og flest önnur byggðarlög. Þessu verðum við að breyta. Nú er farið að gera auknar kröfur um inngöngu í ffamhaldsskólana, þar sem sam- ræmdu prófin eru mælikvarðinn, hvort sem okkur finnst það sann- gjamt eða ekki. Unga fólkið okk- ar á rétt á að eignast sömu tæki- færi. Til þess þurfum við að styrkja skólastarfið og viðhorf okkar til þess. ■ Þarf nýja kennara? Það eru margir þættir sem þama spila inn í. Ég vil fyrst nefha við- horf okkar foreldra og viðhorf samfélagsins til menntunar. Ég vil sjá þessi viðhorf álíka jákvæð og viðhorf okkar til íþrótta, en með því fer samfélagið af stað. Það er mikilvægast. Foreldrafé- lögin hér em mjög að sækja í sig veðrið og em til fyrirmyndar Önnur staðreynd er að hér er hærra hlutfall leiðbeinenda en í öðmm skólasamfélögum. Það hlýtur að hafa áhrif að það séu færri réttindakennarar til staðar hér. Þar sýnist mér við strax vera að ná árangri. Við verðum að styrkja skólastarfið og leggja mikla vinnu í að gera þetta vel. Þetta gerist ekki á nokkmm mán- uðum en við munum ná árangri, það er ég sannfærður um. ■ Sérðu fyrir þér háskóla á Suðurnesjum? Það eru háskólar hér á Suður- nesjum því hjá Vamariiðinu, á svæði Reykjanesbæjar, eru tveir bandariskir háskólar starfandi. Við höfum, í gegnum samninga við Vamarliðið, tryggt tíu sæti á ári fyrir íbúa Reykjanesbæjar í þessum háskólum. Þessir skólar starfa þannig að hingað koma prófessorar ffá Bandarikjunum með fyrirlestra og að hluta til er þetta fjarkennsla. Miðstöð sí- menntunar er svo að veita nem- endum af þessu svæði tækfæri til að stunda fjamám í íslenskum háskólum. Framundan hjá okkur er að tengja háskóladeíldir inn á svæðið. Þar veðja ég á orku- tengda starfsemi í gegnum Hita- veitu Suðumesja. Rannsóknir á jarðhita á Reykjanesi gæti verið sterkur gmnnur sem háskóla- starfsemi. Við emm tónlistarbær með góðan tónlistarskóla. Hve veit nema okkur tækist einnig að tengja slíka háskóladeild við bæ- inn okkar. ■ I haust voru Víkurfréttir með greinaflokk um ástand fíkniefnamála á Suðurnesjum þar sem rætt var við ungt fólk sem neytir og selur fikniefna hér á svæðinu. Hefur þú verið að vinna að forvarnarmálum eftir að þú tókst við sem bæjar- stjóri? Já. Allt okkar æskulýðsstarf er forvamarstarf og góð menntun er forvamarstarf. Þá höfum við stutt og fylgst vel með starfi lögregl- unnar í bænum og lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli. Þar hefúr verið um að ræða mjög sérstakt samstarfsverkefhi þeirra og ríkis- lögreglustjóra þar sem fastar var tekið á þeim sem gmnaðir vom um flkniefhasölu. Við ákváðum að fara ekki hátt með þetta, en niðurstöðumar hafa verið að birt- ast og þær sýna að það er hægt að stemma stigu við sölu fíkni- efna með hertum aðgerðum. Ég vil leyfa lögregluyfirvöldum að skýra betur frá þeim niðurstöðum en við áttum þátt í upphafi þess verkefhis. Armars tel ég besta ráðið gegn ölli'tn fíkniefnum vera að hafa nóg fyrir stafhi þannig að ungt fólk hugleiði aldrei að leita til fíkniefha til að eitra framtíð sína. ■ Hvernig er vinnudagurinn hjá þér? Þetta er vinnusólarhringur, um helgar jafnt sem virka daga. Ef ég er ekki á staðnum þá er það bakvakt. Annars er mjög hæft samstarfsfólk með mér svo ég þarf ekkert að óttast. Þó ég hafi átt erfítt með að aðskilja heimili og vinnu þetta ár brýni ég fyrir samstarfsfólki mínu að gera það. Ég itreka við mitt starfsfólk að það taki sér fri og legg mikla áherslu á að það eigi sér sitt líf fyrir utan vinnuna. Ég lofa minni fjölskyldu að það muni líka gilda hjá sjálfúm mér, hún verði bara að sýna aðeins meiri þolinmæði svo ég fúllvissi mig um að öll hjól snúist áður en ég dreg and- ann utan vinnu. Mitt áhugamál fyrir utan vinnuna er fjölskyldan. Ég hef ekki enn talið mig hafa tíma fyrir neinar hálfsdagsíþróttir og ég er ekki sá áhugamaður um kappleiki að ég sitji yfir sjón- varpinu öllum stundum. Ég geri ráð fyrir að ég eyði meiri tíma með bömunum mínum og fjöl- skyldunni heldur en margur þó hann hætti mun fyrr í vinnunni. ■ Einhvern tíma sagðirðu í léttu tómi að þú værir umboðs- maður fyrir Védísi dóttur þína. Hvernig hefur það starf geng- ið? Ætli ég hafí ekki bara alltaf átt þann heitasta draum að verða umbi frægra tónlistarmanna! Þegar ég hafði tök á um tíma þá hjálpaði ég henni að komast af stað og fékk að heita „umbi”. Annars er hún kröftugust við það sjálf. Það gengur ágætlega hjá henni. Hún er mest úti í London í upptökum og nú síðast í samn- ingaviðræðum við erlent fyrir- tæki um verkefhi. Ég er því hræddur um að ég fari að missa umbatitilinn! ■ Hvernig leist þér úrslit al- þingiskosninganna? Mér leist bara nokkuð vel á þau. Númer eitt er að mér fannst mjög mikilvægt að ríkisstjómin héldi velli og ekki síst með hagsmuni þessa svæðis í huga. Ég tel að minn flokkur, Sjálfstæðisflokkur- inn, hafi haft gott af því að fá að- eins mótbyr og tel að flokkurinn geti nýtt þá aðstöðu til að fara yfir málin og hugsa hluti upp á nýtt. Ég tel að við getum unnið mjög vel úr því. ■ Nú hafa verið sögusagnir meðal fólks um að þú hyggir á þingmennsku. Hyggurðu á þingframboð í næstu alþingis- kosningum? Ég hef sagt að ef ég hygði á þingmennsku þá væri ég löngu kominn á þing. Það hafa verið mörg tækifæri til þess í Reykja- vík í gegnum minn pólitíska feril. Hér er ég að vinna að verkefhi sem mér þykir mjög vænt um og finnst vera það mikilvægasta sem ég get verið að gera. Ég hef hugsað mér að vinna það vel og lengi ef bæjarbúar veita mér stuðning til. ■ Þannig að þú ferð ekki í þingframboð? Það eru engar hugleiðingar í þá átt hjá mér. r Lyfja í Keflavík Beinþéttnimælingar Boðiö verður upp á beinþéttnimælingar í versluninni fyrsta föstudag hvers mánaðar. Tímapantanir í síma 421 7575. Cl LYFJA - fyrir tieilsuna www.lyfja.is Lyfja Keflavík • Hringbraut 99 * s. 421 7575 VÍKURFRÉTTIR 22.TÖLUBLAÐ FÖSTUDAGUR 30. MAÍ 2003 13

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.