Víkurfréttir - 30.05.2003, Qupperneq 14
SAMBW
Bringing down the house
Fimmtudag: 4,6,8,10:10
Föstudag: 6,8,10:10
Laugardag og sunnudag: 4,6,8,10:10
Mánudag til miðvikudags: 8, 10:10
The Matrix reloaded
Fimmtudag: 5 og 8
Föstudag: 8 og 11
Laugardag og sunnudag: 5 og 8
Mánudag til miðvikudags: 8
ÁLFABAKKI 'Q' 587 8900 AKUREYRI 'Q' 461 4666 KEFLAVÍK 'Q' 421 1170
lokað
Lokum mánudaginn 2. júní
vegna námskeiðs á Ítalíu.
Opnum aftur þriðjudaginn 10. júní kl. 13.
Arrivederci!
Kolla og Hjördís
1
frrrrrrrrrrrrrrrrrrrrwm
Atvinna
Óska eftir vönum lyftaramanni
Einnig vantar okkur vant fólk
í pökkun og snyrtingu.
Umsækjendur þurfa að geta hafið störf
sem fyrst.
Nánari upplýsingar gefur Ásdís
í síma 867 2437.
f SigHnganámskeiö\
Skráning í námskeið hjá Siglingaklúbbnum Knörr
verður í húsakynnum Siglingaklúbbsins að Grófinni 2,
Laugardaginn 31. maí milli 13 — 16 nk.
Námskeið sem eru í boði í sumar :
• Byrjendanámskeið (Börn fædd 1987 - 1995)
• Framhaldsnámskeið
(Fyrir þá sem hafa lokið byrjendanámskeiði)
• Klúbbur (Fyrir þá sem hafa lokið báðum
ofangreindum námskeiðum)
• Unglinga og fullorðinsnámskeið
(Kennt verður grunnur í kjölbáta og laser siglingum)(16+)
Skráning í námskeiðin og klúbbinn,
verður á laugardaginn 31. maí
einnig verður hægt að skrá sig í alit sumar
meðan á kennslu stendur
Nánari upplýsingar hjá :
Gustav — 894 6717
Ögmundi - 868 9087
82 nemendur útskrifaðir frá FS
Skólaslit vorannar og
brautskráning Fjöl-
brautaskóla Suöurnesja
fór fram laugardaginn 24. maí.
Aö þessu sinni útskrifuðust 82
nemendur; 58 stúdentar, 3
meistarar, 17 iðnnemar, 6 út-
skrifuðust af starfsnámsbraut-
um og tveir skiptincmar.
Nokkrir nemendur braut-
skráðust af tveimur eða fleiri
námsbrautum. Karlar voru 42
en konur 40. Alls komu 57 úr
Reykjanesbæ, 8 úr Garði, 6
komu úr Grindavík og 2 úr
Sandgerði og Vogum. Nemend-
ur úr sveitarfélögum utan Suð-
umesja voru 7 talsins.
Við athöfnina voru veittar viður-
kenningar fyrir góðan námsár-
angur. Hildigunnur Kiistinsdóttir
fékk viðurkenningar frá skólan-
um fyrir góðan árangur í frönsku,
félagsfræði, sögu og fyrir árangur
sinn i raungreinum og stærð-
fræði. Auk þess fékk Hildigunn-
ur viðurkenningu frá danska
sendiráðinu fyrir góðan árangur í
dönsku og frá Verkfræðistofu
Suðumesja fyrir árangur í stærð-
fræði. Harpa Gunnarsdóttir fékk
viðurkenningar fyrir góðan ár-
angur í spænsku og þýsku og
einnig viðurkenningu frá þýska
sendiráðinu fyrir árangur sirrn í
þýsku. Helga Auðunsdóttir hlaut
verðlaun fyrir árangur í stærð-
fræði og fyrir góðan árangur í líf-
fræði og efnafræði; hún fékk
einnig viðurkenningu frá Verk-
fræðistofu Suðurnesja fyrir ár-
angur í stærðfræði. Sigrún
Lovísa Brynjólfsdóttir fékk við-
urkenningu fyrir góðan námsár-
angur í þýsku og hún fékk einnig
gjöf frá þýska sendiráðinu fyrir
árangur sinn. Daði Pagan Hreins-
son fékk viðurkenningu frá skól-
anum fyrir góðan árangur i
myndmennt, Guðmundur Örn
Jóhannsson fyrir ensku og Vikt-
oría Róbertsdóttir fyrir félags-
fræði. María Elizabeth Balcik
fékk viðurkenningu fyrir mjög
góðan árangur í sérgreinum á
sjúkraliðabraut og Ingvar Valur
Gylfason fyrir árangur á neta-
gerðarbraut. Þá fékk Kristinn
Örn Agnarsson viðurkenningu
fyrir störf í þágu nemenda skól-
ans. Að lokum fengu skiptinem-
arnir Laure G.E. Courbois og
Maria Paula Riscali gjöf til
minningar um veru sína í skólan-
um í vetur.
Að venju veitti Sparisjóðurinn í
Keflavik nemendum skólans við-
urkenningar fyrir góðan námsár-
angur. Að þessu sinni hlaut
Hildigunnur Kristinsdóttir viður-
kenningu fyrir hæstu einkunn á
stúdentsprófi og hún fékk auk
þess viðurkenningar fyrir góðan
árangur í stærðfræði og raun-
greinum og í samfélagsgreinum.
Harpa Gunnarsdóttir hlaut viður-
kenningu fyrir góðan árangur í
erlendum tungumálum og Ingvar
Valur Gylfason fyrir góðan ár-
angur í tæknigreinum. Frétt af
vef skólans.
HILDIGUNNUR KRISTINSD0TTI R
Dúx á leið í sólina á Mallorca
Að venju veitti Sparisjóð-
urinn í Keflavík nem-
endum skólans viður-
kenningar fyrir góðan námsár-
angur. Að þessu sinni hlaut
Hildigunnur Kristinsdóttir við-
urkenningu fyrir hæstu ein-
kunn á stúdentsprófi og hún
fékk auk þess viöurkenningar
fyrir góðan árangur í stærð-
fræði og raungreinum og í
samfélagsgreinum. Harpa
Gunnarsdóttir hlaut viður-
kenningu fyrir góðan árangur í
erlendum tungumálum og
Ingvar Valur Gylfason fyrir
góðan árangur í tæknigrein-
um.
Hildigunnur Kristinsdóttir sem
eins og áður sagði fékk viður-
kenningu fyrir hæstu einkunn á
stúdentsprófum sagði í samtali
við Víkuriféttir vera mjög ánægð
með að vera útskrifuð úr fjöl-
brautaskólanum. „Eg er alveg í
skýjunum og það er gaman að
vera búin. Maður á nú samt eftir
að sakna skólans”, sagði
Hildigunnur. Hún sagði að síð-
asta önnin hefði verið langt frá
því að vera erfið. „Ég var í
tveimur áfongum og alltaf búin
fyrir hádegi. Samt var alveg nóg
að gera hjá mér við að safha pen-
ingum fyrir útskriftarferðinni og
vinna með skólanum”. Aðspurð
að því hvað sé það eftirminnileg-
asta við FS ef hún lýti yfir skóla-
árin segir hún busavígslan og út-
skriftin séu eflaust eftirminnileg-
ustu dagarnir. Þessir dagar hafi
verið byrjunin og endirinn á
þessu öllu saman.
Nú fékkst þú viðurkenningar
fyrir frábæran árangur í skól-
anum, var þetta eitthvað sem
þú hafðir stefnt að eða kom
þetta þér þægilega á óvart?
„Ég stefndi ekkert endilega á
verðlaun heldur hafði ég bara sett
mér þau markmið að gera alltaf
mitt besta og að vera sátt við
mína frammistöðu. Að fá viður-
kenningu var svo bara mjög
skemmtilegur bónus. Ég hef nú
ekkert ákveðið hvað ég geri við
peninginn sem ég fékk frá Spari-
sjóðnum en ég veit þó að hann
mun koma að góðum noturn, það
er ekki spuming”.
Hvað er næst á dagskrá hjá
dúxinum?
„Það er útskriftarferð til Mall-
orca tveimur dögum eftir út-
skriftina. Síðan ætla ég að taka
mér svona árs frí áður en ég fer í
háskólanám og halda áfram að
vinna á Garðaseli”.
14
VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!