Víkurfréttir - 21.08.2003, Blaðsíða 7
■pp—■
REYKJANESBÆR
Tjarnargötu 12 • Póstfang230 • S: 421 6700 • Fax: 421 4667 • reykjanesbaer@reykjanesbaer.is
UMHVERFISÁTAK
í REYKJANESBÆ 2003
Reykjanesbær, í samvinnu við Hringrás hf, Njarðtak hf, Sorpeyðingarstöð Suðurnesja,
Bláa herinn, fyrirtæki og íbúa Reykjanesbæjar, mun standa fyrir sérstöku umhverfisátaki
þar sem markmiðið er að hreinsa jaðra Reykjanesbæjar af öllum málmum og öðru rusli er gæti
hafa safnast upp. Þetta er annað skiptið sem slíkt átak fer af stað.
Þegar hafa verið tilgreind hreinsunarsvæði og sérstök verkefni í átakinu, en einnig
er óskað eftir ábendingum íbúa.
EFTIRTALIN HREINSUNARSVÆÐI ERU:
Svæði 1 Helguvík að Njarðvíkurhöfn
auk iðnaðarsvæða.
Svæði 2 Njarðvíkurhöfn að Stekkjarkoti
auk iðnaðarsvæða.
Svæði 3 Frá Stekkjarkoti að Vogastapa
og Hafnir auk iðnaðarsvæða.
Umhverfis- og skipulagssvið
reykjanesbaer. is
Átakið hófst formlega fimmtudaginn 21. ágúst kl. 18 en stefnt er að því að Ijúka
því fyrir 1. september.
íbúar og fyrirtækjaeigendur eru hvattir til að skrá sig í átakið hjá Þjónustumiðstöð
og taka þátt ýmist með því að taka til í sínu nánasta umhverfi eða mæta í hópátak, á
tilgreindum stöðum sem Þjónustumiðstöð bendir á. Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar
veitir allar nánari upplýsingar um staðsetningu gáma og fyrirkomulag átaksins.
F.h. Umhverfisátaks íReykjanesbæ,
Árni Sigfússon,
bæjarstjóri.
Þjónustumiðstöð Reykjanesbæjar sfmi 421 1552 mun taka á móti ábendingum um
hvar málma og annað rusl er að finna og kemur ábendingum til tengiliða verkefnisins.
Sérstakir gámar verða settir upp vegna átaksins sem ætlaðir eru undir járnarusl.
Því er mikilvægt að fyrirtæki nýti sér þá á þessum tíma, þeim að kostnaðarlausu.
VfKURFRÉTTIR I 34.TÖLUBLAD I FIMMTUDACURINN 21.ÁCÚST 2003 17