Fréttablaðið


Fréttablaðið - 25.01.2017, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 25.01.2017, Qupperneq 8
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is markaðurinn: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Guðný Hrönn Antonsdóttir gudnyhronn@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Halldór Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is Reykjavík er heilsueflandi samfélag sem þýðir að við sem sitjum í borgarstjórn og í ráðum borgarinnar eigum stöðugt að vera að leita leiða til að bæta bæði hið manngerða og félagslega umhverfi íbúa, draga úr ójöfnuði og draga úr tíðni og afleiðingum langvinnra sjúkdóma eða langvinns atvinnuleysis með margvíslegu forvarna- og heilsu- eflingarstarfi. Einnig menningarkort Ein af fjölmörgum ráðstöfunum er að ráðgjafar á þjónustumiðstöðvum borgarinnar geta boðið fólki sem fær fjárhagsaðstoð til framfærslu, eða hefur verið án atvinnu í lengri tíma, upp á að fara í sund og að fá lánaðar bækur á bókasöfnum borgarinnar án þess að greiða fyrir það. Í ár mun menningar- kortið einnig standa þessum hópi fólks til boða sem inniber aðgengi að söfnum borgarinnar. Getur skipt sköpum Rannsóknir hafa sýnt að það að vera atvinnulaus til lengri tíma er hættulegt bæði andlegri og líkamlegri heilsu viðkomandi og jafnvel fjölskyldu hans. Það að koma sér upp rútínu og virkni getur skipt sköpum og því getur þessi tiltölulega ódýra leið borgarinnar skipt sköpum fyrir þessa einstaklinga. Öryrkjar, eldri en 67 ára og starfsmenn borgar- innar geta einnig farið í sund í Reykjavík án þess að greiða fyrir það þar sem við viljum auðvelda þessum hópum fólks að stunda þær heilsulindir sem sund- laugarnar okkar eru sannarlega. Til að stuðla að þeirra heilbrigði og um leið að góðu samfélagi. Samfélag fyrir alla Sjálfstæðismenn hafa verið á móti þessu og reyndar hafa þeir líka lagt til tuga prósenta lækkun fjár- hagsaðstoðar til framfærslu sem er um 180 þúsund í dag. Þarna má sjá skýran áherslumun í pólitík, við viljum byggja samfélag fyrir alla en ekki bara suma. Heilsueflandi sund og bókalán án endurgjalds Heiða Björg Hilmisdóttir borgarfulltrúi Þarna má sjá skýran áherslumun í pólitík, við viljum byggja samfélag fyrir alla en ekki bara suma.www.nordanfiskur.is | 430-1700 | pantanir@nordanfiskur.is Yfir 300 vörutegundir fyrir veitingastaði, mötuneyti og fyrir þig ! En með sífellt versnandi kjörum þeirra sem sinna tón- listarkennslu er hætt við að þetta breytist til hins verra og það getur gerst hratt og haft verulega slæmar afleiðingar fyrir íslenskt tónlistarlíf. Tónlistin er mikilvægur þáttur í lífi okkar allra. Í gleði jafnt sem í sorg þá er tón-listin aldrei langt undan fremur en í blessuðum hversdeginum enda býr hún yfir eiginleikum sem bæta lífsgæði okkar og meira til. Tónlistin er líka þroskandi, getur hjálpað okkur að skilja heiminn betur, gera lærdóm léttari og allt fallegra og betra. Vandinn er bara að við göngum allt of oft að henni sem gefinni. Sem sjálfsögðu og sjálfsprottnu fyrirbæri sem þarf ekkert endilega að leggja rækt við eða sinna í dagsins önn. En það er ekki þannig. Langt frá því. Tónlistarkennarar og stjórnendur í tónlistar- skólum hafa nú í meira en ár verið samningslausir og lítið sem ekkert virðist þokast til betri vegar. Kjör stéttarinnar hafa dregist verulega aftur úr kjörum samanburðarstétta frá því 2008, þegar ráðist var í stórfelldan niðurskurð á fjármagni til tónlistarskól- anna, og þrátt fyrir verkfallsaðgerðir 2014 ber stéttin enn skarðan hlut frá borði. Fyrir skömmu afhentu tónlistarkennarar, sem tilheyra grasrótarhópi innan Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum, Degi B. Eggertssyni ályktun þar sem vonbrigði yfir þessari döpru stöðu eru tíunduð. Að auki er þar skorað á borgarstjórn að ræða tvær grundvallarspurningar í málinu: „Hver er stefna borgarinnar gagnvart tónlistarkennslu og sambærilegri launasetningu tónlistarskólakennara miðað við aðra kennarahópa í kennarasamtökum landsins? Hvað vill borgin gera til að liðka fyrir því að hægt verði að ganga frá kjara- samningi sem sátt ríkir um?“ Þetta eru góðar og gildar spurningar sem borgar- stjórn mun vonandi ekki láta nægja að taka til vandaðrar umræðu heldur svara með skýrum og skil- merkilegum hætti. Vegna þess að málið snýst ekki einvörðungu um kaup og kjör viðkomandi stéttar heldur viðhorf viðkomandi stjórnvalds til tónlistar- menntunar í landinu til lengri tíma litið. Íslenskir tónlistarmenn hafa löngum, ekki síst sökum smæðar markaðarins, haft þann háttinn á að hafa kennslu að hlutastarfi til þess að geta framfleytt sér af tónlistinni. Þessu hafa í raun bæði nemendurnir og tónlistarlífið í heild sinni notið góðs af vegna þess að tónlistarmenn í fremstu röð miðla innan tónlistarskólanna þekkingu sinni og færni. Og þetta hefur óneitanlega átt stóran þátt í að skila okkur ótrúlegum fjölda tónlistarfólks í fremstu röð á undangengnum árum. En með sífellt versnandi kjörum þeirra sem sinna tónlistarkennslu er hætt við að þetta breytist til hins verra og það getur gerst hratt og haft verulega slæmar afleiðingar fyrir íslenskt tónlistarlíf. Ungt og vel menntað tónlistarfólk sækir sér síður kennslu- réttindi í sínu námi vegna þess að það sér lítinn sem engan hag af fyrirkomulaginu og leitar annarra ráða til þess að framfleyta sér og sínum. Haldi þessi þróun áfram getur það jafnvel leitt til skorts á hæfu tónlistar fólki með kennsluréttindi og það veit ekki á gott, þvert á móti. Þess vegna bíða ekki aðeins samningslausir tónlistarkennarar í fremstu röð eftir svörum frá borginni heldur allir þeir sem láta sig tón- listina í landinu einhverju varða. Í fremstu röð Ágætis verk Snemma á ráðherraferlinum réð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson nýjan upplýsingafulltrúa fyrir ríkisstjórnina. Sá var Sigurður Már Jónsson. Sem upplýsinga- fulltrúi ríkisstjórnarinnar sendi hann tilkynningar til fjölmiðla og reyndi að tukta þá blaðamenn til sem ráðherranum þótti ekki skrifa um sig af tilhlýðilegri virð- ingu. Bjarni Benediktsson hefur oftar en einu sinni kvartað undan skrifum um sig í fjölmiðlum. Sú staðreynd að eitt fyrsta verk hans í starfi ráðherra var að endurráða Sigurð Má bendir kannski til þess að honum þyki sá síðarnefndi hafa skilað ágætu verki. Senuþjófurinn Talandi um Sigmund Davíð, þá klóruðu margir sér í kollinum í gær þegar þingmaðurinn birti mynd af hráu hakki á tekexi sem hann sagði ágætis máltíð. Það breytir ýmsu að hverfa úr stóli ráðherra og verða óbreyttur þingmaður. Eitt er að þá þurfa menn ekki lengur að verjast ágangi fjölmiðlamanna með aðstoð launaðra starfsmanna. Og sumir þingmenn grípa hvert tækifæri sem gefst til þess að stela athygli almennings. Senni- legast er Sigmundi Davíð þetta ljóst. Og kannski má búast við því að ráðherrann nýti hug- myndaflugið vel til að minna á sig. Það væri þá bara byrjunin að sýna matseðilinn. jonhakon@frettabladid.is 2 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r8 s K o Ð U n ∙ F r É T T a B L a Ð I Ð SKOÐUN 2 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 A -A 9 8 0 1 C 0 A -A 8 4 4 1 C 0 A -A 7 0 8 1 C 0 A -A 5 C C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.