Fréttablaðið - 25.01.2017, Qupperneq 16
Þrír stjórnarmenn Glitnis HoldCo, ásamt nokkrum íslenskum lykilstarfsmönnum eignarhaldsfélags-ins hér á landi, hafa
nú þegar tryggt sér samanlagt á
bilinu um 875 til 1.525 milljónir
í bónus. Þetta varð ljóst eftir að
Glitnir innti af hendi tæplega 99
milljóna evra greiðslu til skulda-
bréfaeigenda þann 19. janúar
síðastliðinn sem varð til þess að
virkja umfangsmikið bónuskerfi
sem var samþykkt á hluthafa-
fundi í mars í fyrra. Fyrirséð er að
bónusgreiðslur til handa stjórnar-
mönnum og öðrum helstu stjórn-
endum Glitnis eiga hins vegar
eftir að verða enn meiri sam-
hliða því að frekari útgreiðslur til
skuldabréfaeigenda félagsins eru
væntanlegar síðar á árinu.
Samkomulag sem stjórn Glitnis
gerði fyrir skemmstu við fyrrver-
andi meðlimi slitastjórnar bank-
ans, þar sem 68 milljóna evra
skaðleysissjóður var lagður niður
gegn meðal annars 640 milljóna
eingreiðslu til Steinunnar Guð-
bjartsdóttur og Páls Eiríkssonar,
þýðir að örfáir stjórnendur félags-
ins eiga núna rétt á háum bónus-
greiðslum. Ef ekki hefði komið
til samkomulagsins hefðu þeir
þurft að bíða lengur eftir því að
fá greiddan bónus í sinn hlut –
og hann hefði sömuleiðis verið
umtalsvert lægri.
Þrír stjórnarmenn fá mest
Íslenskir stjórnendur Glitnis,
sem teljast vera í hópi lykilstarfs-
manna félagsins, eiga þannig til-
kall til þess að fá rúmlega 26 pró-
sent af bónuspottinum. Sú fjárhæð
nemur í dag að minnsta kosti á bil-
inu samtals um 230 til 400 millj-
Tryggt sér allt að 1.500 milljóna bónus
Einu ári eftir nauðasamning hafa örfáir stjórnendur Glitnis unnið sér inn bónus sem nemur á bilinu 875 til 1.525 milljónir. Nokkrir
íslenskir lykilstarfsmenn fá rúmlega fjórðung þeirrar fjárhæðar en bróðurpartinn fellur í skaut þremur útlendingum í stjórn félagsins.
Fyrirséð er að bónusar til handa stjórnarmönnum og öðrum helstu lykilstarfsmönnum Glitnis eiga eftir að verða enn meiri samhliða því að frekari útgreiðslur til skuldabréfaeigenda félagsins eru væntanlegar síðar á árinu. Fréttablaðið/GVa
✿ Bónuspotturinn er í dag
875-1.525 milljónir króna
fá stjórnarmenn samtals af
bónusgreiðslunum
75,9 %
fá íslenskir lykilstarfsmenn að
skipta á milli sín af bónuspottinum
26,1 %
Mike Wheeler
26,1%
229 til 398 milljónir
Steen Parsholt
23,9%
209 til 364 milljónir
Tom Grøndahl
23,9%
209 til 364 milljónir
Ingólfur
Hauksson
Snorri Arnar
Viðarsson
Ragnar
Björgvinsson
TCA Opportunity Investments S.A.R.L* 13,4%
Recovery Opportunities S.A.R.L** 10,0%
Deutsche Bank í London 10,0%
SOLA 8,5%
Barclays Bank 7,7%
Burlington Loan Management 6,5%
QPTF LLC*** 5,6%
North Atlantic Investors S.A.R.L 3,9%
Max Participations II, S.A.R.L. 3,6%
Indaba Capital Fund 3,0%
SC Lowy Investments 2,1%
TCA Event Investments S.A.R.L.* 1,9%
✿ Stærstu hluthafar Glitnis
*Sjóðir á vegum Taconic Capital **Sjóður í stýringu
Solus Alternative Asset Management ***Félag á vegum
Quantum Partners, vogunarsjóðs George Soros
7. mars ‘16 650,3
12. apríl ‘16 36,3
29. júní ‘16 26,9
22. sept. ‘16 376
27. okt. ‘16 64,9
19. jan. ‘17 98,9
Samtals 1.253
✿ Hvað er Glitnir
HoldCo búið að
greiða til kröfuhafa?
í milljónum evra
640
milljóna eingreiðsla til
fyrrverandi slitastjórnar
Glitnis opnaði á bónusa
til lykilstarfsmanna.
ónum króna. Í skilmálum bónus-
kerfisins (e. Long Term Incentive
Plan, LTIP), sem Markaðurinn
hefur undir höndum, er ekki til-
greint sérstaklega hvaða starfs-
menn þar er um að ræða. Sam-
kvæmt heimildum Markaðarins
nær þessi hluti bónuskerfisins hins
vegar fyrst og fremst til Ingólfs
Haukssonar, framkvæmdastjóra
Glitnis, Snorra Arnars Viðarsson-
ar, forstöðumanns eignastýringar
félagsins, og Ragnars Björgvins-
sonar, aðallögfræðings Glitnis.
Þeir hafa allir starfað hjá Glitni frá
því að slitameðferð gamla bank-
ans hófst formlega í apríl 2009. Ef
gengið er út frá því að fyrirhugað-
ar bónusgreiðslur skiptist bróður-
lega á milli þessara helstu stjórn-
enda félagsins á Íslandi þá hafa
þeir nú þegar hver um sig tryggt
sér að meðaltali á bilinu um 76 til
132 milljónir á mann í bónus.
Bónusgreiðslur Glitnis munu
aftur á móti að stærstum hluta,
eða sem nemur 75,9 prósentum af
heildarfjárhæðinni, fara til þriggja
manna stjórnar félagsins en hún
er alfarið skipuð erlendum ríkis-
borgurum. Þeir sem sitja í stjórn-
inni eru Bretinn Mike Wheeler,
sem er jafnframt stjórnarformað-
ur, Daninn Steen Parsholt og Norð-
maðurinn Tom Grøndahl. Sam-
kvæmt skilmálum bónuskerfisins
skiptast bónusgreiðslur sem falla
í skaut stjórnarmanna Glitnis nán-
ast jafnt á milli þeirra – stjórnar-
formaðurinn fær lítillega meira í
sinn hlut – sem þýðir að þeir hafa
núna að meðaltali áunnið sér á bil-
inu 216 til 376 milljónir á mann í
bónus. Þær greiðslur koma til við-
bótar við rífleg stjórnarlaun en
stjórnarformaður Glitnis fær 500
þúsund evrur, jafnvirði 60 millj-
óna króna, í þóknun á ári fyrir þau
störf á meðan aðrir stjórnarmenn
fá 350 þúsund evrur.
Opnaði á bónusgreiðslur
Stjórnarmenn og helstu stjórnend-
ur Glitnis hafa áunnið sér þessar
bónusgreiðslur aðeins innan við ári
eftir að ný stjórn var kjörin til að
stýra eignarhaldsfélaginu í kjölfar
þess að slitabú bankans lauk nauða-
samningum í árslok 2015. Það hefði
hins vegar ekki verið raunin sem
fyrr segir ef ekki hefði komið til
samkomulags sem stjórn Glitnis
hafði frumkvæði að því að gera
við Steinunni og Pál, sem skipuðu
slitastjórn bankans fram að nauða-
samningum, og var samþykkt á
hluthafafundi félagsins 19. des-
ember í fyrra. Samkvæmt sam-
komulaginu fengu þau Steinunn
og Páll eingreiðslu upp á samtals
5,3 milljónir evra, jafnvirði um 640
milljóna króna, gegn því að sér-
stakur sjóður að fjárhæð 68 millj-
ónir evra, sem var settur á fót fyrir
um ári og átti að tryggja skaðleysi
þeirra gagnvart mögulegum mál-
sóknum kröfuhafa til ársins 2025,
var lagður niður.
Með þessu móti gat stjórn félags-
ins hraðað endurheimtum með því
að losa um stærstan hluta þeirra
fjármuna sem voru bundnir í skað-
leysissjóðnum, eða um 60 milljón-
ir evra, og greitt þá út til skulda-
bréfaeigenda Glitnis. Auk þess að
fá greiðslu í peningum, sem nemur
um 320 milljónum á mann, þá gerir
samkomulagið jafnframt ráð fyrir
að Glitnir útvegi þeim Steinunni
og Páli tíu milljóna evra trygg-
ingu sem gildir til næstu tíu ára.
Sú trygging á að standa straum
af ýmsum kostnaði sem gæti að
öðrum kosti fallið á þau, með sam-
bærilegum hætti og skaðleysissjóð-
urinn hefði gert, vegna mögulegra
Hörður
Ægisson
hordur@frettabladid.is
2 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r4 MARkAðuRInn
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
A
-A
4
9
0
1
C
0
A
-A
3
5
4
1
C
0
A
-A
2
1
8
1
C
0
A
-A
0
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K