Fréttablaðið - 25.01.2017, Page 18

Fréttablaðið - 25.01.2017, Page 18
Lífshlaupið – landskeppni í hreyf- ingu verður ræst í tíunda sinn eftir viku, miðvikudaginn fyrsta febrúar. Lífshlaupið er heilsu- og hvatningarverkefni Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands sem höfðar til allra aldurshópa og geta allir landsmenn tekið þátt, hver á sínum forsendum. „Við hvetj- um vinnustaði, skóla og einstakl- inga til að taka þátt og nota þann- ig tækifærið til að efla líkama og sál með því að hreyfa sig dag- lega,“ segir Hrönn Guðmundsdótt- ir, sviðsstjóri almenningsíþrótta- sviðs hjá Íþróttasambandi Íslands, og bætir við að þátttakan skapi líka góðan anda á vinnustöðum og í skólum landsins. Mikill ávinningur Í Lífshlaupinu eru landsmenn allir hvattir til þess að huga að daglegri hreyfingu og auka hana eins og kostur er, það er í frítíma, vinnu, í skóla og við val á ferða- máta. Í ráðleggingum Embætt- is landlæknis um hreyfingu er börnum og unglingum ráðlagt að hreyfa sig í minnst sextíu mínútur á dag og fullorðnum í minnst þrjá- tíu mínútur á dag. „Ávinningur- inn af Lífshlaupinu er sá að starfs- fólk vinnustaða og skóla landsins keppist við að hreyfa sig við hvert tækifæri. Dæmi eru um að hópar myndist á vinnustöðum og nýti há- degið til göngu, hlaupa, hjólreiða eða annarrar hreyfingar. Víða eru settar upp keppnir innan vinnu- staða í til dæmis tröppuhlaupi eða armbeygjum, reiptogi og öðrum skemmtilegum leikjum. Eins hef ég heyrt að á meðan á átakstíma- bilinu stendur sé margt um mann- inn á kvöldgöngu eða -hlaupum í mörgum bæjarfélögum landsins til þess að ná sér í þrjátíu mínúturnar sínar,“ segir Hrönn brosandi. Allt betrA en ekkert Skrá má alla hreyfingu sem nær minnst þrjátíu mínútum sam- tals á dag hjá fullorðnum og minnst sextíu mínútum hjá börn- um og unglingum. „Hreyfing- in ætti að vera eins fjölbreytt og mögulegt er til að efla sem flesta þætti hreysti, þar á meðal afkastagetu hjarta og æðakerf- is, lungna, vöðvastyrk, liðleika, viðbragð og samhæfingu. Dag- leg hreyfing er börnum og ungl- ingum nauðsynleg fyrir eðlileg- an vöxt, þroska og andlega vellíð- an. Öll börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst klukkutíma á dag og er kröftug hreyfing sem reynir á beinin sérstaklega mikil- væg fyrir kynþroska og á kyn- þroskaskeiði fyrir beinmyndun og beinþéttni. Mikilvægast er að þau hafi tækifæri til að stunda fjölbreytta hreyfingu sem þeim finnst skemmtileg og er í sam- ræmi við færni þeirra og getu.“ Hrönn nefnir einnig að mikil- vægt sé að framlag hvers og eins skipti máli í anda almennings- íþrótta. „Ef starfsmaður skráir einn dag þá telst það með. Allt er betra en ekkert.“ Hvetur til dAglegrAr HreyfingAr Forsaga Lífshlaupsins er að árið 2005 skipaði þáverandi mennta- málaráðherra, Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, starfshóp til þess að fara yfir íþróttamál á Íslandi með það að markmiði að móta íþróttastefnu. Starfshópurinn setti fram hugmyndir um mótun íþróttastefnu Íslands í skýrslunni Íþróttavæðum Ísland, aukin þátt- taka, breyttur lífsstíll. „Í skýrsl- unni er að finna leiðir fyrir alla hópa þjóðfélagsins, óháð aldri, bú- setu, fjárhag eða öðrum þáttum til að stunda íþróttir og hreyfingu með einum eða öðrum hætti sér til heilsubótar. Á sama tíma setti vinnuhópurinn af stað vinnu að vef sem ÍSÍ var afhentur haust- ið 2006. Síðan þá hefur almenn- ingsíþróttasvið ÍSÍ, ásamt sam- starfsaðilum, mótað verkefnið Lífshlaupið með það að markmiði að hvetja alla landsmenn til að hreyfa sig daglega. Hreyfingin ætti að vera eins fjölbreytt og mögulegt er til að efla sem flesta þætti hreysti, þar á meðal afkastagetu hjarta og æðakerfis, lungna, vöðvastyrk, liðleika, viðbragð og samhæfingu. Hrönn Guðmundsdóttir fólk er kynningArblAð sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. Útgefandi: 365 miðlar | Ábyrgðarmaður: Svanur Valgeirsson umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 sölumenn: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 lilja björk Hauksdóttir liljabjork@365.is Frumkvöðullinn Max Tomlinson og kona hans eru upphafsmenn GoFigure. Max er með þrjátíu ára reynslu sem heilsu- og næringarþe- rapisti og hefur unnið með stór- stjörnum á borð við Annie Lenn ox, Kylie Minogue, Richard Gere og Rowan Atkinson. Markmiðið hjá Max hefur ávallt verið að hjálpa fólki að losna við aukakílóin með heilsusamlegum og sjálfbærum hætti. Því er GoFigure afrakstur mikillar reynslu og með frábært markmið að baki. Max hefur gefið út tvær vinsælar heilsubækur og hefur önnur þeirra verið þýdd á níu tungumál. Bækurnar heita „Clean Up Your Diet“ og „Target Your Fat Spots“. gofigure í Morgun- og HádegisMAt Hver skammtur af GoFigure inni- heldur prótein, vítamín, steinefni, góðgerla og omega-3 fitusýrur sam- kvæmt upplýsingum frá Heilsu ehf. sem flytur vörurnar inn. Virku efnin í GoFigure eru MCT-olía og glucomannan, úr hinni japönsku konjac-rót, sem veitir einstaka fyll- ingu. Glucomannan hjálpar til við að koma í veg fyrir svengdartil- finningu og getur að auki stuðlað að jafnvægi í blóðsykri ásamt því að hafa áhrif á viðhald eðlilegs kól- esterólmagns í blóði. Þessi einstaka blanda í GoFigure heitir Slimpi- come og er einkaleyfisformúla. Fyrir fullt átak í þrjár vikur, þá er mælt með GoFigure í morgun- mat og hádegismat (duftinu er hrært út í vatn/safa eða mjólk) ásamt GoFigure hráfæðisbörum á milli mála. Mikilvægt er að fá sér góðan og hollan kvöldmat. Max Tomlinson er staddur hér á landi til að fræða landann um þess- ar frábæru vörur sem fást í öllum verslunum Lyfju og í Apótekinu. max tomlinson verður með kynn- ingu og fræðslu í dag, miðvikudag, á eftirtöldum stöðum: l lyfju lágmúla frá kl. 13.00 til 15.00. l lyfju smáratorgi frá kl. 16.00 til kl. 18.00 og á morgun, fimmtudag: l lyfju smáralind frá kl. 12.00 til kl. 14.00 l 10% afsláttur í lyfju á meðan á kynningum stendur! GOFIGURE, GÓÐ LAUSN VIÐ AUKAKÍLÓUM öll börn og unglingar ættu að hreyfa sig í minnst klukkutíma á dag og er mikilvægt að þau hafi tækifæri til að stunda fjöl- breytta hreyfingu sem þeim finnst skemmtileg og er í samræmi við færni þeirra og getu. Hrönn guðmundsdóttir, sviðsstjóri almenningsíþróttasviðs hjá ÍsÍ. Öll Hreyfing skiptir Máli Markmiðið með Lífshlaupinu er að hvetja alla landsmenn til að hreyfa sig daglega. Öll hreyfing sem nær minnst þrjátíu mínútum telst með og er allt betra en ekkert. Lífshlaupið hefst í tíunda skiptið í næstu viku og geta allir tekið þátt. Max Tomlinson, upphafsmaður GoFigure, er staddur hér á landi og verður með fræðslu í völdum verslunum Lyfju í dag og á morgun, fimmtudag. lífsHlAups- keppnin l Grunnskólakeppni fyrir 15 ára og yngri í tvær vikur í febrúar. l Framhaldsskólakeppni fyrir 16  ára og eldri í tvær vikur í febrúar. l Vinnustaðakeppni í þrjár vikur í febrúar. l Einstaklingskeppni þar sem allir geta tekið þátt og skráð niður sína daglegu hreyfingu allt árið. Virku efnin í gofigure eru mCt-olía og glucomannan úr hinni japönsku konjac-rót, sem veitir einstaka fylllingu. max hefur starfað sem heilsu- og nær- ingarþerapisti í 30 ár. 2 5 . j a n ú a r 2 0 1 7 M I Ð V I K U D a G U r2 F ó l K ∙ K y n n I n G a r b l a Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G a r b l a Ð V I Ð b U r Ð I r 2 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 A -B 8 5 0 1 C 0 A -B 7 1 4 1 C 0 A -B 5 D 8 1 C 0 A -B 4 9 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.