Fréttablaðið - 25.01.2017, Síða 22

Fréttablaðið - 25.01.2017, Síða 22
Við vorum að prófa okkur áfram með samfélagsmiðlana eins og fleiri en með hjálp þeirra náði átakið mikilli útbreiðslu. Þorsteinn Kári Jónsson Vera Einarsdóttir vera@365.is Meistaramánuð má rekja til árs- ins 2008. Hin síðari ár hefur hann verið haldinn í október en verður framvegis í febrúar. „Þá vorum við Magnús Berg við nám í Kaup- mannahöfn og vorum orðnir svo- lítið þreyttir á langvarandi timbur- mönnum og öfugum sólarhring. Við tókum meðvitaða ákvörðun um að vekja hvor annan eldsnemma morg- uns, fara út að skokka, fá okkur kjarngóðan morgunverð og vera komnir á bókasafnið að lesa fyrir átta. Þetta gerðum við á hverjum degi í mánuð og fundum hvað okkur leið miklu betur. Fólk í kringum okkur tók líka fljótt eftir breyt- ingunni og á eftir töluðum við um þetta sem Meistaramánuð,“ segir Þorsteinn. Ári síðar endurtóku þeir félagar leikinn og fylgdu margir vinir og kunningjar fordæminu. Síðan hefur átakið vaxið ár frá ári. „Árið 2010 færðum við þetta meira yfir á netið. Við reyndum að aðstoða fólk með því að setja inn uppskriftir og ráð og báðum þátttakendur um að blogga til að gefa öðrum innblástur. Ári síðar var átakið komið á Facebook og þá varð alger sprenging í þátttök- unni,“ segir Þorsteinn en átakið þróaðist að miklu leyti samhliða samfélagsmiðlaþróuninni sem var hröð á þessum árum. „Við vorum að prófa okkur áfram með sam- félagsmiðlana eins og fleiri en með hjálp þeirra náði átakið mik- illi útbreiðslu. Árið 2012 fórum við að nota kassamerkið #meist- aram á Insta gram og við það jókst útbreiðslan enn frekar. Sama ár komum við upp dagatali og skrán- ingarkerfi þar sem fólk gat skráð sig í Meistaramánuðinn á netinu sem hvort tveggja veitti meira aðhald,“ lýsir Þorsteinn og segir að það hafi verið ákveðinn vendi- punktur. Árið 2013 ákváðu félag- arnir að gera sjónvarpsþætti í sam- starfi við Stöð 2 og sérblað í sam- starfi við Fréttablaðið. Var það svo endurtekið ári síðar. „Árið 2015 vorum við hins vegar komnir á fullt í önnur störf og farn- ir að stofna fjölskyldur,“ segir Þor- steinn. Hann starfar á samskipta- sviði Marel, Magnús hjá húsgagna- versluninni Norr 11 og Jökull Sólberg Auðunsson, sem kom inn í teymið á síðari stigum, hjá sprota- fyrirtækinu Takumi. „Við höfðum því minni tíma aflögu og ákváðum að láta átakið að mestu sjá um sig sjálft. Við settum dagatalið á netið og fjölmargir hlóðu því niður. Án miðlægs utanumhalds datt botn- inn hins vegar svolítið úr þessu sem okkur þótti miður enda mikil vinna að baki. Okkur fannst þetta líka eiga svo mikið inni.“ Þeir félagar höfðu lengi séð fyrir sér að gott væri að ganga til samstarfs við stóran aðila. Íslands- banki svaraði því kalli. „Það kom eins og himnasending og mun bank- inn fram- vegis halda um taumana. Við munum eftir sem áður vera virkir á eins mörgum vígstöðvum og við getum og veita alla mögulega ráðgjöf,“ útskýrir Þorsteinn. Meistaramánuður hefur hin síð- ari ár verið haldinn í október en verður nú hleypt af stokkunum 1. febrúar. Hvernig skyldi það leggj- ast í Þorstein og félaga? „Mér finnst það stórfínt. Tímasetningin er ekk- ert heilög og ég held að þetta sé frá- bær tími. Margir vinna áramóta- heit í upphafi árs en ná kannski ekki að halda út svona strax eftir jólasukkið. Með því að hafa Meist- aramánuð í febrúar er auðvelt að komast aftur á rétta sporið. Þeir sem ætla í Reykjavíkur maraþonið í ágúst geta líka litið á Meistaramán- uð sem ákveðinn upptakt að því þó hann sé alls ekki einskorðaður við heilsurækt.“ Þorsteinn segir Meistaramánuð hafa gagnast mörgum. „Við Íslend- ingar eigum það til að gera hlutina svolítið í skorpum og þetta fyrir- komulag hentar mörgum sem vilja taka sig á á einhverju sviði. Það má líkja þessu við að gera stórhrein- gerningu. Fæstir gera hana á hverj- um degi en það er nauðsynlegt að gera hana endrum og sinnum.“ Að sögn Þorsteins er Meistara- mánuður eins konar hópefli. „Þetta er fyrirbæri sem við eigum öll saman og virkar best ef við deil- um árangrinum og hvetjum hvert annað áfram. mEistaramánuður Kynningarblað 25. janúar 20174 Þorsteinn segir meistaramánuð hafa gagnast mörgum. „Við eigum það til að gera hlutina svolítið í skorpum og þetta fyrirkomulag hentar mörgum sem vilja taka sig á á einhverju sviði.“ mYnD/Ernir Hópefli fyrir alla sem vilja Meistaramánuður er nú haldinn í tíunda sinn en hann varð til fyrir hálfgerða tilviljun árið 2008 þegar félagarnir Þorsteinn Kári Jónsson og Magnús Berg Magnússon voru við nám í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Íslandsbanki hefur nú tekið við taumunum. ÍS L E N S K A S IA .I S S F G 4 20 40 0 4. 20 08 ALVÖRU Turmerik drykkur – Tvær bragðtegundir •Dregur úr bólgum í líkamanum • Öflug andoxun • Aukin virkni lifrar • Bætir hlutfallið á milli góða og vonda kólesterólsins í blóðinu Fæst í Hagkaup, Víði, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Iceland og 10-11 is ueeze Turmeric drykkurinn FÖSTUDAGA KL. 21:15 2 5 -0 1 -2 0 1 7 0 4 :1 8 F B 0 4 8 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 0 A -9 F A 0 1 C 0 A -9 E 6 4 1 C 0 A -9 D 2 8 1 C 0 A -9 B E C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 4 8 s _ 2 4 _ 1 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.