Fréttablaðið - 25.01.2017, Blaðsíða 22
Við vorum að
prófa okkur áfram
með samfélagsmiðlana
eins og fleiri en með
hjálp þeirra náði
átakið mikilli
útbreiðslu.
Þorsteinn Kári Jónsson
Vera
Einarsdóttir
vera@365.is
Meistaramánuð má rekja til árs-
ins 2008. Hin síðari ár hefur hann
verið haldinn í október en verður
framvegis í febrúar. „Þá vorum
við Magnús Berg við nám í Kaup-
mannahöfn og vorum orðnir svo-
lítið þreyttir á langvarandi timbur-
mönnum og öfugum sólarhring. Við
tókum meðvitaða ákvörðun um að
vekja hvor annan eldsnemma morg-
uns, fara út að skokka, fá okkur
kjarngóðan morgunverð og vera
komnir á bókasafnið að lesa fyrir
átta. Þetta gerðum við á hverjum
degi í mánuð og fundum hvað okkur
leið miklu betur. Fólk í kringum
okkur tók líka fljótt eftir breyt-
ingunni og á eftir töluðum við um
þetta sem Meistaramánuð,“ segir
Þorsteinn. Ári síðar endurtóku þeir
félagar leikinn og fylgdu margir
vinir og kunningjar fordæminu.
Síðan hefur átakið vaxið ár frá ári.
„Árið 2010 færðum við þetta
meira yfir á netið. Við reyndum
að aðstoða fólk með því að setja
inn uppskriftir og ráð og báðum
þátttakendur um að blogga til að
gefa öðrum innblástur. Ári síðar
var átakið komið á Facebook og
þá varð alger sprenging í þátttök-
unni,“ segir Þorsteinn en átakið
þróaðist að miklu leyti samhliða
samfélagsmiðlaþróuninni sem var
hröð á þessum árum. „Við vorum
að prófa okkur áfram með sam-
félagsmiðlana eins og fleiri en
með hjálp þeirra náði átakið mik-
illi útbreiðslu. Árið 2012 fórum
við að nota kassamerkið #meist-
aram á Insta gram og við það jókst
útbreiðslan enn frekar. Sama ár
komum við upp dagatali og skrán-
ingarkerfi þar sem fólk gat skráð
sig í Meistaramánuðinn á netinu
sem hvort tveggja veitti meira
aðhald,“ lýsir Þorsteinn og segir
að það hafi verið ákveðinn vendi-
punktur. Árið 2013 ákváðu félag-
arnir að gera sjónvarpsþætti í sam-
starfi við Stöð 2 og sérblað í sam-
starfi við Fréttablaðið. Var það svo
endurtekið ári síðar.
„Árið 2015 vorum við hins vegar
komnir á fullt í önnur störf og farn-
ir að stofna fjölskyldur,“ segir Þor-
steinn. Hann starfar á samskipta-
sviði Marel, Magnús hjá húsgagna-
versluninni Norr 11 og Jökull
Sólberg Auðunsson, sem kom inn í
teymið á síðari stigum, hjá sprota-
fyrirtækinu Takumi. „Við höfðum
því minni tíma aflögu og ákváðum
að láta átakið að mestu sjá um sig
sjálft. Við settum dagatalið á netið
og fjölmargir hlóðu því niður. Án
miðlægs utanumhalds datt botn-
inn hins vegar svolítið úr þessu
sem okkur þótti miður enda mikil
vinna að baki. Okkur fannst þetta
líka eiga svo mikið inni.“
Þeir félagar höfðu lengi
séð fyrir sér að gott væri
að ganga til samstarfs við
stóran aðila. Íslands-
banki svaraði því
kalli. „Það kom eins
og himnasending
og mun bank-
inn fram-
vegis halda
um taumana.
Við munum eftir sem áður vera
virkir á eins mörgum vígstöðvum
og við getum og veita alla mögulega
ráðgjöf,“ útskýrir Þorsteinn.
Meistaramánuður hefur hin síð-
ari ár verið haldinn í október en
verður nú hleypt af stokkunum 1.
febrúar. Hvernig skyldi það leggj-
ast í Þorstein og félaga? „Mér finnst
það stórfínt. Tímasetningin er ekk-
ert heilög og ég held að þetta sé frá-
bær tími. Margir vinna áramóta-
heit í upphafi árs en ná kannski
ekki að halda út svona strax eftir
jólasukkið. Með því að hafa Meist-
aramánuð í febrúar er auðvelt að
komast aftur á rétta sporið. Þeir
sem ætla í Reykjavíkur maraþonið í
ágúst geta líka litið á Meistaramán-
uð sem ákveðinn upptakt að því þó
hann sé alls ekki einskorðaður við
heilsurækt.“
Þorsteinn segir Meistaramánuð
hafa gagnast mörgum. „Við Íslend-
ingar eigum það til að gera hlutina
svolítið í skorpum og þetta fyrir-
komulag hentar mörgum sem vilja
taka sig á á einhverju sviði. Það má
líkja þessu við að gera stórhrein-
gerningu. Fæstir gera hana á hverj-
um degi en það er nauðsynlegt að
gera hana endrum og sinnum.“
Að sögn Þorsteins er Meistara-
mánuður eins konar hópefli. „Þetta
er fyrirbæri sem við eigum öll
saman og virkar best ef við deil-
um árangrinum og hvetjum hvert
annað áfram.
mEistaramánuður Kynningarblað
25. janúar 20174
Þorsteinn segir meistaramánuð hafa gagnast mörgum. „Við eigum það til að gera hlutina svolítið í skorpum og þetta fyrirkomulag hentar mörgum sem vilja taka sig á
á einhverju sviði.“ mYnD/Ernir
Hópefli fyrir alla sem vilja
Meistaramánuður er nú haldinn í tíunda sinn en hann varð til fyrir hálfgerða tilviljun árið 2008 þegar félagarnir Þorsteinn Kári Jónsson og
Magnús Berg Magnússon voru við nám í Viðskiptaháskólanum í Kaupmannahöfn. Íslandsbanki hefur nú tekið við taumunum.
ÍS
L
E
N
S
K
A
S
IA
.I
S
S
F
G
4
20
40
0
4.
20
08
ALVÖRU Turmerik drykkur
– Tvær bragðtegundir
•Dregur úr bólgum í líkamanum
• Öflug andoxun
• Aukin virkni lifrar
• Bætir hlutfallið á milli góða og
vonda kólesterólsins í blóðinu
Fæst í Hagkaup, Víði, Fjarðarkaup, Melabúðinni, Iceland og 10-11
is ueeze
Turmeric drykkurinn
FÖSTUDAGA KL. 21:15
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
0
A
-9
F
A
0
1
C
0
A
-9
E
6
4
1
C
0
A
-9
D
2
8
1
C
0
A
-9
B
E
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K