Fréttablaðið - 25.01.2017, Page 28
Það má ekki alveg
sprengja skalann í metn-
aðinum því þá klúðrast
þetta í fyrstu vikunni.
Jón Benediktsson
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
HAMLAR KVÍÐI ÞÉR Í DAGLEGA LÍFINU?
Ef svarið er „já“ gæti þriggja kvölda fræðsla
Geðhjálpar um kvíða hjálpað þér að byrja að
takast á við vandann.
Fræðslan skiptist í þrennt:
• Eðli, ástæður og afleiðingar kvíða
Hugræn atferðlismeðferð
Hjálplegt lesefni
• Hvað heldur vítahring kvíða gangandi?
• Hvaða leiðir eru færar til að leysa upp
vítahringinn?
Fræðslan fer fram í húsakynnum Geðhjálpar við
Borgartún 30, 2. hæð, 8.,15. og 22. febrúar kl. 19.30 til 21.30.
Skráning fer fram í gegnum
verkefnisstjori@gedhjalp.is fyrir 1. febrúar.
Jón Benediktsson forritari hefur
alltaf tekið á einhvern hátt þátt í
Meistaramánuði þegar hann hefur
verið formlega á dagskrá. Hann
líkir markmiðasetningu Meist
aramánaðar við nýársheitin, þau
verði að vera framkvæmanleg.
„Það má ekki alveg sprengja skal
ann í metnaðinum því þá klúð
rast þetta í fyrstu vikunni. Þetta
eru einföld markmið sem ég hef
verið að setja mér eins og að fara
snemma að sofa og reyna að borða
vegan mat tvisvar í viku,“ segir
hann og samþykkir tillögu blaða
manns um að hægt sé að segja að
hann sé einfaldlega að reyna að
verða betri maður.
„Það er alltaf gaman að taka þátt
í Meistaramánuði og markmiðin
þurfa ekki alltaf að vera heilsu
tengd. Eitt árið setti ég mér mark
mið um að heimsækja ömmu einu
sinni í viku og einhvern tíma var
það bara að bjóða alltaf góðan dag
inn, þetta snýst bara um að reyna
aðeins að hrista upp í rútínunni.“
Jón ætlar að vera með í komandi
Meistaramánuði nú í febrúar og
er hann búinn að setja sér ákveðið
markmið. „Ég ætla að ganga á fjall
einu sinni í viku. Það er kannski
ekki mjög sniðugt í febrúar en ég
ætla að vona að veðrið verði í lagi
og svo er alltaf hægt að velja sér
réttu fjöllin,“ segir hann í léttum
dúr.
Spurður að því hvort hann sé
vanur því að ganga á fjöll segir Jón
að hann hafi gert það þegar hann
var yngri. „Ég hef ekki gengið á
fjöll eftir að ég varð fullorðinn en
er alveg til í að endurnýja kynni
mín við fjöllin.“
Segja má að hjónaband Júlíönu
Sólar Sigurbjörnsdóttur sé til
komið vegna Meistaramánaðar
en hún er gift öðrum upphafs
manni hugmyndarinnar, Magn
úsi Berg Magnússyni. Magnús
heillaðist af Júlíönu þegar hann
sá hversu áköf hún var í því að
ná markmiðum sínum í Meist
aramánuði þegar hún tók þátt í
fyrsta skipti árið 2011. Blaða
maður bað hana um að segja frá
ástarsögunni. „Ég bjó úti í New
York þegar strákarnir voru að
gera þetta, og við áttum mikið
af sameiginlegum vinum. Ég sá
þetta sem fullkomið tækifæri til
að byrja veturinn vel í skólanum
og í leiðinni fanga athygli Magga.
Það var mjög auðvelt því hann
var farinn að „læka“ allar færsl
ur hjá mér um leið og ég byrjaði
að merkja þær með kassamerk
inu Meistaramánuður. Síðan hitt
umst við þegar ég var í jólafríi á
Íslandi tveimur mánuðum síðar
og nú erum við gift og eigum
barn og hund. Þannig að mark
miðinu er náð.“
Júlíana hefur tekið þátt í
Meistaramánuði að einhverju
leyti frá því hún tók þátt í fyrsta
skipti. Til að byrja með setti hún
sér mörg markmið og flest þeirra
sneru að náminu og heilsu. Júlí
ana segist oftast ná þeim mark
miðum sem hún hefur sett sér þó
það séu alltaf einhver sem hún
hefur ekki tíma fyrir. „Eftir því
sem ég hef gert þetta oftar hef
ég haft þetta hnitmiðaðra, hef
haft færri en skýrari markmið.
Einu sinni setti ég mér það mark
mið að læra alla leikmenn Man
chester United utan að til þess
að geta rætt um þá við mann
inn minn, það var reyndar algjör
skellur að komast að því hversu
oft þeir skipta um leikmenn. En
ég get rætt mjög mikið um Man
chester United 2013 árganginn,“
segir hún og hlær.
Hjónin setja sér alltaf nokkur
sameiginleg markmið í Meistara
mánuði en eru síðan oftast með
sín eigin markmið líka sem þau
einbeita sér að. „Það er gott að
hafa þau uppi á vegg og peppa
hvort annað.“
Þegar Júlíana er spurð að
því hvort hún sé metnaðargjörn
stendur ekki á svörum: „Já, auð
vitað, mig langar alltaf að gera
allt eins vel og ég get. Ég er samt
ekkert á botninum ef ég næ ekki
markmiði sem ég set mér í Meist
aramánuði en maður þarf samt að
vera agaður.“
Júlíana tekur að sjálfsögðu þátt
í Meistaramánuði að þessu sinni
og segir að sér finnist frábært að
hann sé í febrúar núna því október
sé alltof langur. „Ég er ekki alveg
búin að ákveða öll markmiðin sem
ég ætla að setja mér en eitt af
þeim er að nota Duolingoþýsku
appið mitt á hverjum degi.“
meistaramánuður Kynningarblað
25. janúar 201710
Júlíana hefur tekið þátt í meistaramánuði að einhverju leyti frá því hún tók þátt í
fyrsta skipti árið 2011. mYnD/antOn BrinK
Júlíana hefur tekið þátt í meistaramánuði að einhverju leyti frá því hún tók þátt í
fyrsta skipti árið 2011. mYnD/antOn BrinK
ástin blómstraði í meistaramánuði
Júlíana Sól Sigurbjörnsdóttir og eiginmaður hennar, Magnús Berg Magnússon, hafa yfirleitt tekið þátt í Meistaramánuði. Þau setja sér
alltaf sameiginleg markmið auk þess að vera með sín eigin markmið. Ástarsaga þeirra hjóna hófst í tengslum við Meistaramánuð.
Jón Benediktsson hefur sett sér það markmið að ganga á eitt fjall í hverri viku
meistaramánaðar. mYnD/antOn BrinK
Hrist upp í rútínunni
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
A
-A
4
9
0
1
C
0
A
-A
3
5
4
1
C
0
A
-A
2
1
8
1
C
0
A
-A
0
D
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K