Fréttablaðið - 25.01.2017, Síða 30
Af hverju viltu vakna fyrr? Er það
til að ná að borða morgunmat í ró
með fjölskyldunni? Ná að stunda
líkamsrækt fyrir vinnu? Þegar það
er á hreinu af hverju þú ætlar að
vakna fyrr skaltu láta aðra vita um
breyttar venjur. Það veitir aðhald.
Komdu skikki á morgunrútínuna,
fækkaðu til dæmis þeim athöfnum
sem þú hefur venjulega troðið inn
í morguninn. Lærðu á líkamsklukk
una. Til dæmis lækkar líkamshit
inn og melatónín streymir um æð
arnar u.þ.b. tveimur klukkutímum
fyrir svefn. Komið skikki á svefn
rútínuna. Farið í háttinn á svipuð
um tíma á kvöldin.
Venjið ykkur af því að horfa á
sjónvarp, símann eða tölvuskjá
stuttu fyrir svefninn þar sem það
örvar heilann. Komið ykkur upp
einhvers konar rólegheitavenjum
síðasta klukkutímann fyrir svefn.
Ekki búa þó til flókna dagskrá á
kvöldin, venjið ykkur til dæmis á að
setjast niður með bók á svipuðum
tíma eða drekka einn bolla af heitu
tei, koffínlausu.
Gerið mun á degi og nóttu.
Myrkvið svefnherbergið þegar þið
skríðið undir sæng og kveikið ljós
um leið og klukkan hringir.Hættið
að „snúsa“. Kaupið vekjaraklukku
án snústakka eða gerið snústakk
an óvirkan á einhvern hátt. Marg
ir staðsetja vekjaraklukkuna langt
frá rúminu svo þeir þurfi fram úr
rúminu til að slökkva.Haldið sömu
svefnrútínu um helgar.
Nokkur ráð til að
vakna betur
Bók
Meistaramánuður snýst ekki eingöngu um að hreyfa sig og borða hollt og
þarf í raun alls ekki að snúast um það. Margir velja sér hins vegar heilsu
tengd markmið sem er hið besta mál. Það er þó allt eins hægt að hafa þau
af öðrum toga eins og að eyða meiri tíma með fjölskyldunni, minnka sam
félagsmiðlanotkun, lesa fleiri bækur, fara fyrr að sofa, heimsækja gamla
frænku og þar fram eftir götunum.
Meistaramánuður snýst í raun um að verða betri útgáfa af sjálfum sér
og má meðal annars nota hann til að koma einhverju í verk sem lengi
hefur setið á hakanum. Ef vel tekst til er ekki aðeins um að ræða átak
heldur upphaf að breyttu og betra lífi.
Flestir kannast við að eyða of miklum tíma á samfélagsmiðlum. Hví ekki
að nota Meistaramánuð til að hefja lestrarátak og lesa að minnsta kosti
eina bók á mánuði út árið? Það sakar alveg örugglega ekki.
Gerðu átak í lestri
Sjálfsagt munu margir þátttak
endur í Meistaramánuði huga að
breyttu og hollara mataræði á
meðan áskorunin stendur yfir. Að
mörgu er að huga í þeim mála
flokki en vafalaust má minnka
neyslu á mörgum matvælum en
ekki síður bæta hollari hráefnum
inn á matseðil heimilisins.
Þeim fjölgar sífellt hér á landi
sem kjósa að gerast grænmetis
ætur eða aðhyllast vegan matar
gerð. Samfara þeim aukna áhuga
hafa sprottið upp fjölmörg íslensk
matarblogg sem fjalla um og birta
girnilegar uppskriftir úr þessum
flokkum.
Á vef Samtaka grænmetisæta
á Íslandi (http://www.graen
metisaetur.is) má t.d. finna nokk
ur íslensk matarblogg undir flip
anum Matur & vörur sem ein
blína á grænmetis og vegan rétti.
Úrval af hráefni til slíkrar matar
gerðar hefur líka aukist mjög mikið
undan farin ár, t.d. í stórmörkuðum
og ýmsum sérverslunum.
Það þarf ekki að umbylta matar
æðinu í febrúar en það er vissu
lega gaman að fikra sig áfram með
hollum, einföldum og spenn
andi uppskriftum og
setja sér jafnvel
það markmið að
taka 12 daga í
viku undir slíka
matargerð.
Hollari matur
MeistaraMáNuður Kynningarblað
25. janúar 201712
2
5
-0
1
-2
0
1
7
0
4
:1
8
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
0
A
-B
8
5
0
1
C
0
A
-B
7
1
4
1
C
0
A
-B
5
D
8
1
C
0
A
-B
4
9
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
2
4
_
1
_
2
0
1
7
C
M
Y
K