Morgunblaðið - 15.06.2016, Page 4

Morgunblaðið - 15.06.2016, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Thealoz inniheldur trehalósa sem er náttúrulegt efni sem finnst í mörgum jurtum og dýrum sem lifa í mjög þurru umhverfi. Trehalósi eykur viðnám þekjufrumna hornhimnunnar gegn þurrki. Droparnir eru án rotvarnarefna og má nota með linsum. Þurrkur í augum? Thealozaugndropar Fæst í öllum helstu apótekum. Ég var mjög slæm af augnþurrki án þess að gera mér grein fyrir því. Þar sem ég var með nóg af tárum datt mér ekki í hug að tengja það við aunþurrk. Alltaf með lekandi tár í kulda, og smá vind. Systir mín ráðlagi mér að prufa Thealoz því hún hafði mjög góða reynslu af þeim. Eiginlega bara strax varð ég allt önnur og er hætt að vera með táraflóð og finna fyrir þessari sandtilfinningu. Erla Óskarsdóttir Í SAINT-ÉTIENNE Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Íslendingum mun héðan í frá án efa þykja afar vænt um Saint-Étienne, rólega og fallega borg um miðbik Frakklands. Nafn hennar verður skráð stóru letri í sögu íslenskrar knattspyrnu, jafnvel í næsta hefti Íslandssögunnar. Fyrsti leikur landsliðs karla í úr- slitakeppni stórmóts; fyrsta markið, sem Birkir Bjarnason skoraði, fyrsta stigið. Borgin var máluð blá af skemmtilegum stuðningsmönnum í gær fyrir leik, Portúgalar voru ekki síður áberandi í sínum rauðu búningum og best var að allir voru vinir. Ekkert rugl hér á ferð eins og því miður hefur borið á annars stað- ar. Hér voru allir mættir til að skemmta sér, hvort sem þeir voru bláir eða rauðir. Spámannlega vaxnir Margir Íslendingar sem ég hitti á förnum vegi í gær voru býsna bjart- sýnir. Sumir spáðu sínum mönnum sigri alveg gallharðir; annað kom bara ekki til greina að þeirra mati. Alveg sama þótt mótherjinn væri eitt besta lið heims með sjálfan Cris- tiano Ronaldo innanborðs. Skilaboðin: Allt er hægt. Mundu baráttu Davíðs og Golíats. Gestur Geirsson sem var í hópi stórfjölskyldunnar fyrir utan leik- vanginn, sagði mér (í viðtali sem birtist á mbl.is) að hann hefði spáð 1:1 og fjölskyldan hótað að henda honum út úr bílnum á leiðinni til Sa- int-Étienne. Hann þótti nefnilega of svartsýnn fyrir smekk samferða- mannanna! Annar íslenskur stuðningsmaður sem ég hitti fyrir utan leikvanginn skömmu fyrir leik kvaðst hafa spáð rétt fyrir um úrslita allra leikja nema eins á mótinu til þessa og gaukaði að mér spá fyrir leikinn hér í Saint-Étienne. Hún hljóðaði svo: Þetta fer 1:1. Aron Einar skorar á 34. mínútu og Ronaldo jafnar á þeirri 87. eftir mjög þunga sókn. Varla hægt að kvarta undan svona spámanni. Ekki hægt að biðja um allt; markaskorararnir voru ekki þeir sem hann spáði en eftir á að hyggja skiptir það ekki mestu máli. Stigið er í höfn! Vonandi kaupir hann sér miða í getraunum það sem eftir er keppninnar, þessi getspaki maður. Ekki vannst tími til að skrifa viðtal við hann og samferðamennina fyrir leik en aldrei að vita nema ég noti það í næsta pistil. Stemningin á vellinum var rökrétt framhald af því sem átti sér stað á opinberum stuðningsmannasvæð- unum niðri í borg í gær, þar sem fjöldi fólks safnaðist saman. Gleðin var áfram við völd á vellinum. Ís- lenskir áhorfendur létu gríðarlega vel í sér heyra; tóku vel undir í þjóð- söngnum, sungu svo hinn þjóðsögn landsliðsins (ef mér leyfist að taka þannig til orða), Ég er kominn heim, af miklum móð og ýmsa stuðnings- söngva allan leikinn. Þótt ámóti blési, Portúgal skoraði fyrst og Ís- lendingar þyrftu að verjast af mikl- um móð langtímum saman gáfust Ís- lendingarnir utan vallar ekki upp frekar en hetjurnar inni á grasinu. Sameinaðir stóðu þeir, þessir tveir flokkar þó hvor í sínu lagi væru. Og gleðin þegar flautað var til leiksloka, maður minn! Þvílík, ósvik- in gleði. Það lá við að maður heyrði gæsahúðina spretta fram á fólki! Margir áttu að halda heim á leið strax í nótt en einhverjir væntan- lega velt fyrir sér möguleikanum á að vera áfram og sjá til! Eða bara koma aftur á síðasta leiki riðilsins í París! Þar sem gleðin var við völd  Frábær stemning í Saint-Étienne, vinalegri og kyrrlátri borg  Íslendingar máluðu borgina bláa og Portúgalar rauða  Fyrsti kafli í stórmótasögu karlalandsliðsins merkilegur á alla mælikvarða Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Sögulegt Trylltur fögnuður braust út á meðal stuðningsmanna íslenska liðsins þegar Birkir Bjarnason skoraði. Fólk skynjaði að stefndi í söguleg úrslit! Jess! Fögnuður þessara ungu stuðningsmanna Íslands var sannarlega ósvikinn að leik loknum. Gleði Eldri kynslóðin fagnaði ekki síður innilega. Enginn Íslendingur réð sér í raun fyrir kæti! Stoltir Aron Einar Gunnarsson og Ragnar Sigurðsson leyndu ekki gleði sinnni en fögnuðu þó með hófstilltum hætti eins og félagar þeirra. EM Í FÓTBOLTA KARLA

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.