Morgunblaðið - 15.06.2016, Side 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
James K. Galbraith hagfræðipró-fessor, sem staddur er hér á
landi, ræddi við Morgunblaðið um
aðgerðir Íslands og Grikklands í
kjölfar falls bankanna.
Galbraith sagðiað ekki mætti
gera lítið úr því „að
geta aðlagað gengi
gjaldmiðils“. Það
skipti sem sagt
miklu fyrir Ísland
að hafa gjaldmiðil
sem gat hreyfst með hagkerfinu, en
Grikkland sat uppi með evruna.
En fleira kom til: „Íslendingarhöfðu getu og vilja til að tak-
ast á við erfiðleikana og taka
ákvarðanir um til dæmis forgangs-
röðun krafna í þrotabú föllnu bank-
anna, þannig að stór hluti vandans
lenti á kröfuhöfum. Í Grikklandi
var staðan hins vegar allt önnur.
Þar féllu skuldbindingarnar allar á
grísku þjóðina. Undan því gátu þeir
ekki vikist,“ sagði hann.
Á Íslandi var það Seðlabankinnsem hafði forgöngu um að
fara þá leið sem Galbraith lýsir.
Þess vegna varð Ísland ekki að ný-
lendu, sem er lýsingin sem Galbra-
ith notar um Grikkland.
Ísland hefur haldið fullu sjálf-stæði, en það var þó ekki sjálf-
gefið. Baráttan um Ísland stóð sem
hæst frá falli bankanna og þar til
þjóðinni hafði tekist, þvert á ráð
margra stjórnmálamanna, mennta-
manna og talsmanna erlendra
hagsmuna, að hrinda Icesave-
atlögunni.
Og baráttan stendur enn vegnastuðnings margra við aðild að
ESB, líka þeirra sem segjast ekki
styðja aðild „nú“, eins og sumir
stjórnmálamenn og nokkrir for-
setaframbjóðendur orða það.
James K.
Galbraith
Krónan hjálpaði,
en fleira kom til
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 14.6., kl. 18.00
Reykjavík 12 léttskýjað
Bolungarvík 9 léttskýjað
Akureyri 15 léttskýjað
Nuuk 11 heiðskírt
Þórshöfn 9 alskýjað
Ósló 25 heiðskírt
Kaupmannahöfn 10 rigning
Stokkhólmur 20 heiðskírt
Helsinki 21 heiðskírt
Lúxemborg 21 rigning
Brussel 11 alskýjað
Dublin 13 rigning
Glasgow 15 rigning
London 17 rigning
París 18 alskýjað
Amsterdam 17 rigning
Hamborg 17 rigning
Berlín 24 rigning
Vín 23 léttskýjað
Moskva 20 léttskýjað
Algarve 29 heiðskírt
Madríd 27 heiðskírt
Barcelona 27 heiðskírt
Mallorca 25 heiðskírt
Róm 22 rigning
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 22 skýjað
Montreal 15 heiðskírt
New York 22 heiðskírt
Chicago 22 rigning
Orlando 33 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
15. júní Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 2:57 24:01
ÍSAFJÖRÐUR 1:34 25:34
SIGLUFJÖRÐUR 1:17 25:17
DJÚPIVOGUR 2:12 23:45
Skúli Halldórsson
sh@mbl.is
Deilt hefur verið um gjaldtöku við
Geysi í Haukadal undanfarin misseri
og í október síðastliðnum staðfesti
Hæstiréttur dóm Héraðsdóms Suð-
urlands, um að meirihluta landeig-
enda Geysissvæðisins hefði verið
óheimilt að hefja gjaldtöku af ferða-
mönnum um landið.
Svo virðist hins vegar sem margir
ferðamenn vilji ólmir skilja þar eftir
fé sitt, ef marka má fjölda smápen-
inga á botni hversins Blésa.
Lárus Kjartansson, sérfræðingur
hjá Umhverfisstofnun og landvörður
á Geysissvæðinu, segir í samtali við
Morgunblaðið að þetta hafi verið
hvimleitt vandamál undanfarin ár.
„Við höfum kannski ekki verið
með nógu góðar merkingar og þann-
ig gæti þetta hafa farið framhjá
fólki,“ segir Lárus.
„En þetta er víðar, fólk byrjaði að
kasta peningum í Flosagjá á Þing-
völlum og svo í Öxará og á fleiri stöð-
um. Við þurfum bara að auka
fræðslu til að benda fólki á þetta en
annars höfum við tínt þetta upp eins
og við getum.“
Nýtt skilti í burðarliðnum
Að sögn Lárusar er um þessar
mundir unnið að því að hanna nýtt
skilti í stað þess sem nú stendur við
hverinn. Á það að verða stærra og
um leið skilmerkilegra.
„Þá á þetta ekki að fara framhjá
neinum og þar með verður þetta
vandamál vonandi úr sögunni.“
Spurður af hverju ferðamenn
hendi frekar peningum í Blésa en
aðra hveri, segir Lárus það skýrast
af nálægð hans við göngustíginn.
„Þú kemst alveg að hvernum og
sérð því vel ofan í hann, og pening-
urinn er því vel sjáanlegur eftir að
honum er hent ofan í. Þetta er ekki
eins og að henda peningunum sínum
í Strokk eða Geysi, þar er engin leið
að sjá þá.“
Fleygja smámynt í hverinn
Ferðamenn hunsa merkingar við
hverinn Blésa á Geysissvæðinu
Morgunblaðið/BJB
Blési Greina má fjölda smápeninga undir yfirborði hversins, sem liggur við
stíginn. Svæðið er heimsótt af fjölmörgum ferðamönnum á degi hverjum.
ÚRVALS SÓSUR
ÍSLENSK FRAMLEIÐSLA