Morgunblaðið - 15.06.2016, Page 13

Morgunblaðið - 15.06.2016, Page 13
Í hæstu hæðum Eiríkur Viljar Kúld ferðaðist í þrjá mánuði um Kína, Tíbet og Myanmar. Hér er hann klæddur í öll sín föt, í 3600 metra hæð í Jinghong Xishuangbanna í Yunnan héraði í Kína, skammt frá landamærum Tíbet. klukkutíma að finna þá aftur. En þetta er bara hluti af þessu.“ Eftir ferðina til Víetnam fór Ei- ríkur að finna fyrir enn meiri ástríðu en áður fyrir ferðalögum og mótor- hjólum. „Ég held að ég hafi orðið „hooked“ á þessu og um leið og ég kom heim byrjaði ég að plana lengri ferðir í kringum Ísland, ég fór til dæmis Vestfirðina og hringinn í kringum landið með tjald og var að undirbúa mig fyrir lengri ferðir og byrjaði að lesa mótorhjólabækur og blogg. Þetta var að verða ákveðin ástríða.“ Eiríkur fór í mikla rannsóknar- vinnu í eitt ár til að finna hvert ferð- inni yrði næst heitið. „Mig langaði að tvinna ferðina saman við kennara- námið og ég var búinn að lesa að Ís- lendingar væru að fara til Kína og fleiri staða að kenna ensku.“ Eiríkur lagði af stað í reisuna síðastliðið haust. Kennslan var ekki alveg eins og Eiríkur bjóst við og reyndist tölu- vert erfiðari þar sem kínverski að- stoðarkennarinn talaði enga ensku og nemendurnir eingöngu kínversku. „Ég rann svolítið blint í sjóinn með þetta, en svoleiðis var það bara.“ Kennsluævintýrið varð því styttra en upphafleg plön gerðu ráð fyrir og mótorhjólaævintýrið tók við. Skæruliðar í hengirúmum Eiríkur lagði af stað frá Kun- ming í Júnnanhéraði í Kína og hjólaði upp til Tíbet og aftur niður til Kun- ming. Þaðan fór hann yfir til Myan- mar (Búrma) og hjólaði þvert yfir landið frá austri til vesturs. „Þetta voru sirka þrír mánuðir allt í allt og algjört ævintýri, sérstaklega að vera einn, en ég hafði aldrei áður ferðast einn um á mótorhjóli. Hvaða leið ég fór og hversu langan tíma hún tók kom bara í ljós hverju sinni.“ Eiríkur á mörg minnisstæð augnablik úr ferðinni og ber þar hæst frumskógarævintýri frá Myan- mar. „Ég villtist af leið, vísvitandi. Ég ætlaði að stytta mér leið í gegn- um hérað sem er á valdi skæruliða og ég vissi að ég mætti í raun ekki fara þar í gegn, en þetta voru bara 180 kílómetrar, sem er ekki mikið, a.m.k. þegar maður hugsar um ís- lenska vegi. Ég hélt að þetta myndi taka svona þrjá til fjóra tíma.“ Á leið sinni um héraðið mætti Eiríkur mörgum skæruliðum, en þar sem þeir voru mjög óvanir umferð um héraðið voru þeir búnir að koma sér vel fyrir í hengirúmum og kipptu sér lítið upp við eitt mótorhjól sem þaut í gegn. „Ég passaði mig reyndar á að fela andlitið með klút svo það sæist minna að ég væri ferðamaður og þegar ég leit í baksýnisspegilinn sá ég að þeir kíktu alveg á eftir mér áð- ur en þeir sneru svo aftur í hengi- rúmið.“ Það sem Eiríkur vissi aftur á móti ekki var að hann var á leiðinni í gegnum frumskóg. „Að keyra í gegn- um frumskóg er ekkert eins og að keyra eftir suðurströndinni á Ís- landi. Eftir 12 tíma var ég búinn að keyra 70 kílómetra og þá var farið að dimma. Ég varð því að finna mér næturstað. Eiríkur komst í næsta þorp og þar ráku íbúar upp stór augu þegar þeir sáu hann, enda alls ekki vanir því að fá ferðalanga í frumskóginn. „Þar fékk ég þær upplýsingar að ég gæti ekki gist í þorpinu þar sem þau gætu ekki tekið ábyrgð á mér. Þau ættu í baráttu við herinn og ef eitthvað kæmi fyrir mig gæti það komið þeim illa í þeirra rétt- indabaráttu. Eini sénsinn fyrir mig var því að gista í munkaklaustri, en ég var búinn að lesa að ef maður lendir í vanda er alltaf hægt að banka upp á í munkaklaustri, þar sem þeir geta ekki sagt nei við fólk í vanda.“ Þorpsbúarnir bentu Eiríki á næsta klaustur þar sem hann fékk gistingu. „Þar fékk ég teppi og kodda og vaknaði eldsnemma næsta morgun og tók þátt í hugleiðslu og morgunmat.“ Ókostur að vera örvhentur Þó svo að nóttin í munka- klaustrinu hafi verið afar sérstök þá segir Eiríkur að hann hafi upplifað ansi margar sérstakar aðstæður á ferðalögum sínum. „Ég var til dæm- is staddur í litlum bæ í Myanmar, nálægt landamærum Indlands. Þar sem ég er mikill áhugamaður um indverska matargerð leiddist mér það ekki og á þeim veitingastöðum þar sem lítil enska er töluð er gott að benda á disk hjá öðrum og biðja um það, óháð því hvort þú vitir hvað það inniheldur.“ Eiríkur nýtti sér það einmitt á einum veitingastaðn- um í bænum. „Ég fékk ilmandi disk með ýmsu á, en engin hnífapör. Ég sá að allir borðuðu bara með hönd- unum og ég gerði það sama. Ég hef ekki hugmynd um hvað ég borðaði en það var hrikalega gott.“ Eiríkur tók á hinn bóginn eftir því að gestir staðarins horfðu á hann með undrunarsvip. „Ég var orðinn frekar vanur því eftir dvölina í Kína og kippti mér lítið upp við það. Eftir smá áttaði ég mig á því að eitthvað var öðruvísi við þetta augnaráð. Það virkaði frekar sem hneykslun og fyrirlitning. Ég hugsaði með mér að ég hlyti að vera að gera eitthvað rangt. Í mörgum löndum eru ýmsir siðir sem tíðkast ekki og hef ég ætíð verið duglegur að kynna mér þá svo ég lendi ekki í því að verða fyrir aðkasti eða fá einmitt þetta augnaráð sem ég fékk á þessu augnabliki. En ég áttaði mig bara ekki á því hvað það væri sem ég væri að gera rangt. Fingurnir mín- ir voru löðrandi í olíu og karrí eftir matinn og ég tók eftir því að gestir staðarins sleiktu einfaldlega putt- ana. Ég gerði að sjálfsögðu slíkt hið sama. Þjónninn var fljótur að hlaupa til mín með bréf og hristi hausinn og las yfir mér pistilinn. Ég skildi auðvitað ekkert sem maðurinn sagði. Eftir matinn þakkaði ég fyrir, gekk heim á leið og reyndi að átta mig á því hvað í ósköpunum ég hefði verið að gera rangt. Þá rann það upp fyrir mér. Á stöðum þar sem salernin eru tyrkneskar holur og klósettpappír tíðkast ekki skeinir fólk sér með vinstri hendi og borðar með hægri. Og ég er bullandi örvhentur.“ Miðlar ferðareynslunni Eiríkur var að vísu dauðfeg- inn að hafa uppgötvað ástæðu augnagotanna eftir að hann hafði yfirgefið staðinn. „Ég vissi alveg um þessa hefð en það er mér svo eðlislægt að borða með vinstri, ég var ekkert að pæla í þessu. En ég reyni alltaf eftir bestu getu að kynna mér hefðir í hverju landi, mér finnst það eiginlega skylda þar sem ég vinn sjálfur í ferða- mannaiðnaðinum. Mér finnst mik- ilvægt að fólk sé meðvitað um fjöl- breytileika mismunandi menn- ingar og geti lesið í aðstæður. Það munu koma upp hlutir sem þú get- ur ekki undirbúið þig fyrir.“ Eirík- ur er nú reynslunni ríkari og hyggst nota hana til að fræða ferðaþyrsta Íslendinga um töfra Víetnam og jafnvel fleiri landa í Asíu í framtíðinni. Einn á flakki Eiríkur ferðaðist einn um löndin þrjú og segir það dýrmæta reynslu í ferðabankann. Hér er hann á ferð um Kína, nálægt Tíbet. DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 • Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16 Mercedes-Benz Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir Kíktu á úrvalið á www.notadir.is www.notadir.is GL 350 4MATIC Árgerð 2012, ekinn 26 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 211 hö. Búnaður: Nálgunarvarar, LED innilýsing, On/Off Road pakki með lágu drifi, 19“ álfelgur, skrautlistar o.fl. Verð 11.990.000 kr. Afb./mán. 101.200 kr.* B 220 CDI Árgerð 2014, ekinn 33 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Búnaður: Leðuráklæði, ljósapakki,hiti í framsætum, 16“álfelgur, bakkmyndavél o.fl. Verð 4.490.000 kr. Afb./mán. 37.500 kr.* E 220 CDI Árgerð 2014, ekinn 12 þús. km, sjálfskiptur, dísil, 170 hö. Búnaður: LED dagljósabúnaður, Metallic lakk, Artico leður, nálgunarvarar, Avantgarde útfærsla o.fl. Verð 7.650.000 kr. Afb./mán. 64.500 kr.* *Mánaðargreiðsla m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði. Vextir 9,25%, árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,9–10,98% Fljótlega eftir að Eiríkur kom heim úr Asíureisunni í vetur hafði eig- andi ferðafélagsins Farvel sam- band við hann og hafði áhuga á að setja saman ógleymanlega ferð um svipaðar slóðir. „Ég kannaðist aðeins við hann og hann hafði heyrt af ferðum mínum, klikkaða Íslendingsins sem ferðaðist einn um á mótorhjóli um Asíu.“ Eiríkur hefur því skipulagt 10 daga mót- orhjólaferð um Norður-Víetnam í samstarfi við Farvel, en Víetnam og þá sérstaklega norðurhluti landsins er kjörinn fyrir ferð af þessu tagi, að mati Eiríks. „Í norðri má sjá hrísgrjónaakra með fjöll í bakgrunni og landslagið þarna er eiginlega bara lyginni líkast. Þetta er ótrúlega spennandi ferð og að- eins öðruvísi en ferðir en boðið hefur verið upp á þar sem verið er að sameina mótorhjól og framandi menningu.“ Ásamt Eiríki verður víetnamskur leiðsögumaður með í ferðinni. Langar þig að upplifa Víetnam á mótorhjóli? LEIÐSÖGUMAÐURINN EIRÍKUR VILJAR Víetnam Eiríkur mun leiða hóp mótor- hjólafólks um Víetnam í haust.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.