Morgunblaðið - 15.06.2016, Qupperneq 13
Í hæstu hæðum Eiríkur Viljar Kúld ferðaðist í þrjá mánuði um Kína, Tíbet og Myanmar. Hér er hann klæddur í öll
sín föt, í 3600 metra hæð í Jinghong Xishuangbanna í Yunnan héraði í Kína, skammt frá landamærum Tíbet.
klukkutíma að finna þá aftur. En
þetta er bara hluti af þessu.“
Eftir ferðina til Víetnam fór Ei-
ríkur að finna fyrir enn meiri ástríðu
en áður fyrir ferðalögum og mótor-
hjólum. „Ég held að ég hafi orðið
„hooked“ á þessu og um leið og ég
kom heim byrjaði ég að plana lengri
ferðir í kringum Ísland, ég fór til
dæmis Vestfirðina og hringinn í
kringum landið með tjald og var að
undirbúa mig fyrir lengri ferðir og
byrjaði að lesa mótorhjólabækur og
blogg. Þetta var að verða ákveðin
ástríða.“
Eiríkur fór í mikla rannsóknar-
vinnu í eitt ár til að finna hvert ferð-
inni yrði næst heitið. „Mig langaði að
tvinna ferðina saman við kennara-
námið og ég var búinn að lesa að Ís-
lendingar væru að fara til Kína og
fleiri staða að kenna ensku.“ Eiríkur
lagði af stað í reisuna síðastliðið
haust. Kennslan var ekki alveg eins
og Eiríkur bjóst við og reyndist tölu-
vert erfiðari þar sem kínverski að-
stoðarkennarinn talaði enga ensku
og nemendurnir eingöngu kínversku.
„Ég rann svolítið blint í sjóinn með
þetta, en svoleiðis var það bara.“
Kennsluævintýrið varð því styttra en
upphafleg plön gerðu ráð fyrir og
mótorhjólaævintýrið tók við.
Skæruliðar í hengirúmum
Eiríkur lagði af stað frá Kun-
ming í Júnnanhéraði í Kína og hjólaði
upp til Tíbet og aftur niður til Kun-
ming. Þaðan fór hann yfir til Myan-
mar (Búrma) og hjólaði þvert yfir
landið frá austri til vesturs. „Þetta
voru sirka þrír mánuðir allt í allt og
algjört ævintýri, sérstaklega að vera
einn, en ég hafði aldrei áður ferðast
einn um á mótorhjóli. Hvaða leið ég
fór og hversu langan tíma hún tók
kom bara í ljós hverju sinni.“
Eiríkur á mörg minnisstæð
augnablik úr ferðinni og ber þar
hæst frumskógarævintýri frá Myan-
mar. „Ég villtist af leið, vísvitandi.
Ég ætlaði að stytta mér leið í gegn-
um hérað sem er á valdi skæruliða
og ég vissi að ég mætti í raun ekki
fara þar í gegn, en þetta voru bara
180 kílómetrar, sem er ekki mikið,
a.m.k. þegar maður hugsar um ís-
lenska vegi. Ég hélt að þetta myndi
taka svona þrjá til fjóra tíma.“ Á leið
sinni um héraðið mætti Eiríkur
mörgum skæruliðum, en þar sem
þeir voru mjög óvanir umferð um
héraðið voru þeir búnir að koma sér
vel fyrir í hengirúmum og kipptu sér
lítið upp við eitt mótorhjól sem þaut í
gegn.
„Ég passaði mig reyndar á að
fela andlitið með klút svo það sæist
minna að ég væri ferðamaður og
þegar ég leit í baksýnisspegilinn sá
ég að þeir kíktu alveg á eftir mér áð-
ur en þeir sneru svo aftur í hengi-
rúmið.“ Það sem Eiríkur vissi aftur á
móti ekki var að hann var á leiðinni í
gegnum frumskóg. „Að keyra í gegn-
um frumskóg er ekkert eins og að
keyra eftir suðurströndinni á Ís-
landi. Eftir 12 tíma var ég búinn að
keyra 70 kílómetra og þá var farið að
dimma. Ég varð því að finna mér
næturstað.
Eiríkur komst í næsta þorp og
þar ráku íbúar upp stór augu þegar
þeir sáu hann, enda alls ekki vanir
því að fá ferðalanga í frumskóginn.
„Þar fékk ég þær upplýsingar
að ég gæti ekki gist í þorpinu þar
sem þau gætu ekki tekið ábyrgð á
mér. Þau ættu í baráttu við herinn
og ef eitthvað kæmi fyrir mig gæti
það komið þeim illa í þeirra rétt-
indabaráttu. Eini sénsinn fyrir mig
var því að gista í munkaklaustri, en
ég var búinn að lesa að ef maður
lendir í vanda er alltaf hægt að
banka upp á í munkaklaustri, þar
sem þeir geta ekki sagt nei við fólk í
vanda.“ Þorpsbúarnir bentu Eiríki á
næsta klaustur þar sem hann fékk
gistingu. „Þar fékk ég teppi og
kodda og vaknaði eldsnemma næsta
morgun og tók þátt í hugleiðslu og
morgunmat.“
Ókostur að vera örvhentur
Þó svo að nóttin í munka-
klaustrinu hafi verið afar sérstök þá
segir Eiríkur að hann hafi upplifað
ansi margar sérstakar aðstæður á
ferðalögum sínum. „Ég var til dæm-
is staddur í litlum bæ í Myanmar,
nálægt landamærum Indlands. Þar
sem ég er mikill áhugamaður um
indverska matargerð leiddist mér
það ekki og á þeim veitingastöðum
þar sem lítil enska er töluð er gott
að benda á disk hjá öðrum og biðja
um það, óháð því hvort þú vitir hvað
það inniheldur.“ Eiríkur nýtti sér
það einmitt á einum veitingastaðn-
um í bænum. „Ég fékk ilmandi disk
með ýmsu á, en engin hnífapör. Ég
sá að allir borðuðu bara með hönd-
unum og ég gerði það sama. Ég hef
ekki hugmynd um hvað ég borðaði
en það var hrikalega gott.“
Eiríkur tók á hinn bóginn eftir
því að gestir staðarins horfðu á hann
með undrunarsvip. „Ég var orðinn
frekar vanur því eftir dvölina í Kína
og kippti mér lítið upp við það. Eftir
smá áttaði ég mig á því að eitthvað
var öðruvísi við þetta augnaráð. Það
virkaði frekar sem hneykslun og
fyrirlitning. Ég hugsaði með mér að
ég hlyti að vera að gera eitthvað
rangt. Í mörgum löndum eru ýmsir
siðir sem tíðkast ekki og hef ég
ætíð verið duglegur að kynna mér
þá svo ég lendi ekki í því að verða
fyrir aðkasti eða fá einmitt þetta
augnaráð sem ég fékk á þessu
augnabliki. En ég áttaði mig bara
ekki á því hvað það væri sem ég
væri að gera rangt. Fingurnir mín-
ir voru löðrandi í olíu og karrí eftir
matinn og ég tók eftir því að gestir
staðarins sleiktu einfaldlega putt-
ana. Ég gerði að sjálfsögðu slíkt
hið sama. Þjónninn var fljótur að
hlaupa til mín með bréf og hristi
hausinn og las yfir mér pistilinn.
Ég skildi auðvitað ekkert sem
maðurinn sagði. Eftir matinn
þakkaði ég fyrir, gekk heim á leið
og reyndi að átta mig á því hvað í
ósköpunum ég hefði verið að gera
rangt. Þá rann það upp fyrir mér.
Á stöðum þar sem salernin eru
tyrkneskar holur og klósettpappír
tíðkast ekki skeinir fólk sér með
vinstri hendi og borðar með hægri.
Og ég er bullandi örvhentur.“
Miðlar ferðareynslunni
Eiríkur var að vísu dauðfeg-
inn að hafa uppgötvað ástæðu
augnagotanna eftir að hann hafði
yfirgefið staðinn. „Ég vissi alveg
um þessa hefð en það er mér svo
eðlislægt að borða með vinstri, ég
var ekkert að pæla í þessu. En ég
reyni alltaf eftir bestu getu að
kynna mér hefðir í hverju landi,
mér finnst það eiginlega skylda
þar sem ég vinn sjálfur í ferða-
mannaiðnaðinum. Mér finnst mik-
ilvægt að fólk sé meðvitað um fjöl-
breytileika mismunandi menn-
ingar og geti lesið í aðstæður. Það
munu koma upp hlutir sem þú get-
ur ekki undirbúið þig fyrir.“ Eirík-
ur er nú reynslunni ríkari og
hyggst nota hana til að fræða
ferðaþyrsta Íslendinga um töfra
Víetnam og jafnvel fleiri landa í
Asíu í framtíðinni.
Einn á flakki Eiríkur ferðaðist einn um löndin þrjú og segir það dýrmæta
reynslu í ferðabankann. Hér er hann á ferð um Kína, nálægt Tíbet.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Kletthálsi 2 • 110 Reykjavík • Sími 590 2160 •
Opið virka daga kl. 10–18 og laugardaga kl. 12–16
Mercedes-Benz
Ljúfir gæðabílar – en smá notaðir
Kíktu á úrvalið á www.notadir.is
www.notadir.is
GL 350 4MATIC
Árgerð 2012, ekinn 26 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
211 hö.
Búnaður:
Nálgunarvarar, LED
innilýsing, On/Off Road
pakki með lágu drifi, 19“
álfelgur, skrautlistar o.fl.
Verð 11.990.000 kr.
Afb./mán. 101.200 kr.*
B 220 CDI
Árgerð 2014, ekinn 33 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
170 hö.
Búnaður:
Leðuráklæði, ljósapakki,hiti
í framsætum, 16“álfelgur,
bakkmyndavél o.fl.
Verð 4.490.000 kr.
Afb./mán. 37.500 kr.*
E 220 CDI
Árgerð 2014, ekinn 12 þús.
km, sjálfskiptur, dísil,
170 hö.
Búnaður:
LED dagljósabúnaður,
Metallic lakk, Artico leður,
nálgunarvarar, Avantgarde
útfærsla o.fl.
Verð 7.650.000 kr.
Afb./mán. 64.500 kr.*
*Mánaðargreiðsla m.v. 50% útborgun og lán í 84 mánuði. Vextir 9,25%, árleg hlutfallstala kostnaðar er 10,9–10,98%
Fljótlega eftir að Eiríkur kom heim
úr Asíureisunni í vetur hafði eig-
andi ferðafélagsins Farvel sam-
band við hann og hafði áhuga á að
setja saman ógleymanlega ferð
um svipaðar slóðir. „Ég kannaðist
aðeins við hann og hann hafði
heyrt af ferðum mínum, klikkaða
Íslendingsins sem ferðaðist einn
um á mótorhjóli um Asíu.“ Eiríkur
hefur því skipulagt 10 daga mót-
orhjólaferð um Norður-Víetnam í
samstarfi við Farvel, en Víetnam
og þá sérstaklega norðurhluti
landsins er kjörinn fyrir ferð af
þessu tagi, að mati Eiríks. „Í norðri
má sjá hrísgrjónaakra með fjöll í
bakgrunni og landslagið þarna er
eiginlega bara lyginni líkast. Þetta
er ótrúlega spennandi ferð og að-
eins öðruvísi en ferðir en boðið
hefur verið upp á þar sem verið er
að sameina mótorhjól og framandi
menningu.“ Ásamt Eiríki verður
víetnamskur leiðsögumaður með í
ferðinni.
Langar þig að upplifa
Víetnam á mótorhjóli?
LEIÐSÖGUMAÐURINN EIRÍKUR VILJAR
Víetnam Eiríkur mun leiða hóp mótor-
hjólafólks um Víetnam í haust.