Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Suðurlandsbraut 20, Reykjavík, sími 588 0200, eirvik.is
Hönnun
fyrir lífið
Besta vörumerkið í Þýskalandi 2015
Lengri ending á vélum
Fullkominn hjólabúnaður
með 360° hreyfanleika
Allt að 99,9%filtrun með
notkun HEPA filters
P
P
P
Verð frá
25.990,-
Jón Birgir Eiríksson
jbe@mbl.is
Framkvæmdir við nýja íþrótta-
miðstöð Golfklúbbs Mosfellsbæjar
við Hlíðavöll ganga vel og er fleygun
í grunni nýs klúbbhúss nú lokið.
Áætlað er að húsið verði tekið í notk-
un næsta vor og standa fram-
kvæmdir yfir næsta vetur, en þó
einnig í sumar, á háannatíma.
Hannað með áhorfendur í huga
Að sögn Gunnars Inga Björns-
sonar, framkvæmdastjóra Golf-
klúbbs Mosfellsbæjar, mun nýja
húsnæðið umbylta aðstöðu þeirra
sem iðka golf í Mosfellsbæ. „Þetta er
íþróttamiðstöð á tveimur hæðum,
neðri hæðin verður nær alfarið undir
golfiðkun innanhúss með rétt tæp-
lega 300 fermetra metra innipútti,
aðstöðu til golflíkamsræktar og
kennslusal fyrir iðkendur. Á efri
hæðinni verður hefðbundin aðstaða
fyrir golfvöll og mótahald. Þar verða
skrifstofur, veitingasala, klósett,
golfbúð og eldhús,“ segir hann.
Að sögn Gunnars Inga er eldri að-
staða vel nýtt og nánast úr sér geng-
in, en auk þess að bjóða betri kosti
til golfiðkunar yfir vetrartímann,
stendur nýja húsið á nýjum stað.
„Lóðin er miðsvæðis á vellinum svo
framvegis verður hægt að spila tvær
níu holu lykkjur út frá húsinu en
ekki átján holur út frá og til baka.
Þetta er stórglæsileg lóð þar sem
hægt er að horfa út á Faxaflóa. Hús-
ið er ofarlega í landinu og það hafa
verið hannaðar rúmgóðar svalir til
að geta tekið á móti stórum áhorf-
endahópum í framtíðinni ásamt
því að lóðahönnun í kringum gerir
ráð fyrir stórum áhorfendahópum að
horfa á lokaholurnar, t.d. á Íslands-
mótinu, innan fárra ára,“ segir
Gunnar Ingi.
Áætlað er að efri hæð nýja húss-
ins verði tekin í notkun næsta vor,
en sú neðri eftir um þrjú til fjögur
ár. Kostnaður við bygginguna er
áætlaður 350 milljónir króna, en
húsið verður um 1.190 fermetrar.
Golfið verði heilsársíþrótt
Aðspurður segir Gunnar Ingi vel
hægt að setja nýjan húsa-kost í sam-
hengi við uppbyggingu knatt-
spyrnuhalla á síðustu árum. „Krakk-
ar sem stunda golf hafa í raun verið
tilneydd til að gera það aðeins í þrjá
til fjóra mánuði á ári. Að slá golfkúlu
í snjó og frosti er ekki heillandi fyrir
ungan kylfing og við höfum séð efni-
lega kylfinga flosna upp úr íþróttinni
vegna þess hve árstíðabundin hún
er. Við sjáum fyrir okkur að þessi
aðstaða muni breyta því og krakkar
geti æft golf sem heilsársíþrótt þeg-
ar aðstaðan er að fullu risin,“ segir
hann.
Ljósmynd/Golfklúbbur Mosfellsbæjar
Glæsihýsi Nýja húsið er hannað með áhorfendur í huga. Það fellur ofan í landið og er staðsett við enda brautarinnar. Þaðan er einnig útsýni yfir Faxaflóa.
Nýtt klúbbhús í Mosfellsbæ
Framkvæmdir við Hlíðavöll í Mosfellsbæ eru í fullum gangi Áætlað að
fyrsta áfanga ljúki næsta vor Nýr húsakostur bætir iðkun ungra kylfinga
Morgunblaðið/Björn Jóhann
Framkvæmdir Fleygun lauk fyrir skömmu í grunni nýja hússins, en fram-
kvæmdir standa yfir í sumar með lítilli truflun, að sögn Gunnars Inga.
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í
gær, að tillögu forsætisráðherra,
sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra og utanríkisráðherra, að
veita 10 milljónum króna af ráð-
stöfunarfé sínu til Sjávarútvegs-
skóla Háskóla Sameinuðu þjóð-
anna. Á að verja styrknum til
verkefna í tengslum við lítil eyþró-
unarríki (Small Islands Developing
States).
,,Megin tilgangur þessa framtaks
er að undirstrika mikilvægi hafsins
fyrir afkomu þjóða en jafnframt er
tækifærið notað til þess að hvetja til
aukins fjármagns og nýrra verk-
efna í tengslum við verndun hafs-
ins. Við Íslendingar höfum stutt
þetta framtak enda ljóst að fáar
þjóðir eiga eins mikið undir lífríki
hafsins,“ segir Sigurður Ingi Jó-
hannsson forsætisráðherra. Þess er
vænst að þetta verkefni Sjávar-
útvegsskólans geti hafist í júlí.
Tíu milljónir til
Sjávarútvegsskóla
Háskóla SÞ
Á fundi ríkisstjórnarinnar í gær-
morgun var ákveðið að veita 2,5
milljónir króna af ráðstöfunarfé
hennar til útgáfu sönglaga Svein-
björns Sveinbjörnssonar tónskálds.
Jón Kristinn Cortes hefur umsjón
með útgáfunni.
Þá var samþykkt að veita 2 millj-
ónir króna til útgáfu Sögu íslenskr-
ar utanríkisverslunar 900-2010 sem
Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands
gefur út. Nokkrir sagnfræðingar
og prófessorar við Háskólann eru
höfundar efnis.
Styrkja útgáfu
sögurits og laga
Kjaraviðræður flugumferðarstjóra
og ISAVIA eru eina málið sem nú
er á borði ríkissáttasemjara, sam-
kvæmt upplýsingum Elísabetar
S.Ólafsdóttur, skrifstofustjóra emb-
ættisins. Viðræður grunnskóla-
kennara og sveitarfélaganna fara
fram í húsakynnum ríkissáttasemj-
ara, en þeim hefur ekki verið vísað
til embættisins.
Aðeins eitt mál á
borði sáttasemjara
Ritstjóri og höfundar Kirkna Ís-
lands hafa notað sér þekkingu
starfsmanna ORG ættfræðiþjónustu
og ættfræðigrunn. Þorsteinn Gunn-
arsson, ritstjóri Kirkna Íslands,
Kristín Huld Sigurðardóttir, for-
stöðumaður Minjastofnunar Íslands
og Pétur H. Ármannsson arkitekt
fóru á dögunum í „opinbera“ heim-
sókn til Odds Helgasonar í húsnæði
ORG.
Ritnefnd Kirkna Íslands er nú að
vinna að bindi 26.-28. sem verða þrjú
síðustu bindi ritverksins. „Við þetta
verk koma upp ógrynni af manna-
nöfnum, ekki aðeins klerka heldur
einnig handverksmanna sem komið
hafa að smíði kirknanna og lista-
manna og hannyrðakvenna sem gert
hafa muni kirknanna. Það er eitt af
markmiðum útgáfunnar að varpa
ljósi á allt þetta fólk enda hætt við að
sum þeirra lendi annars í glatkist-
unni. Það höfum við gert í góðri
samvinnu við Odd og hans mikla
ættfræðigrunn,“ segir Þorsteinn.
Hann bætir því við að í lokakafla
um hverja kirkju sé farið út í kirkju-
garðinn, honum lýst og minninga-
mörkum. Þar geti verið persónur úr
viðkomandi byggðarlagi sem höf-
undar þurfi að vita deili á.
Ættfræðigrunn-
urinn nýtist vel
Ljósmynd/Pétur H. Ármannsson
Við stýrið Þorsteinn Gunnarsson, Oddur Helgason og Kristín Huld
Sigurðardóttir hjá ORG ættfræðiþjónustunni við Skeljanes.