Morgunblaðið - 15.06.2016, Page 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016
Gengisskráning 14. júní 2016
Kaup Sala Mið
DOLLARI 123,4 123,98 123,69
STERLINGSPUND 174,8 175,64 175,22
KANADADOLLARI 96,03 96,59 96,31
DÖNSK KRÓNA 18,615 18,723 18,669
NORSK KRÓNA 14,772 14,858 14,815
SÆNSK KRÓNA 14,849 14,935 14,892
SVISSN. FRANKI 127,69 128,41 128,05
JAPANSKT JEN 1,1646 1,1714 1,168
SDR 173,41 174,45 173,93
EVRA 138,41 139,19 138,8
MEÐALGENGI/VIÐSKIPTAVOG ÞRÖNG 172,4042
Heimild: Seðlabanki Íslands
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Matsfyrirtækið Moody‘s hefur til-
kynnt að það muni taka lánshæfi Orku-
veitu Reykjavíkur til endurskoðunar
með mögulega hækkun fyrir augum.
Tilkynningin kemur í kjölfar þess að
matsfyrirtækið greindi frá því í lok síð-
ustu viku að það hygðist endurskoða
lánshæfiseinkunn ríkissjóðs Íslands.
Í tilkynningu frá Moody’s kemur fram
að í endurskoðuninni verði lagt mat á
hvort bætt lánshæfi Íslands muni leiða
til aukinnar getu og vilja til þess að
veita OR fjárhagslegan stuðning ef þörf
krefur, beint eða óbeint í gegnum hlut-
hafa fyrirtækisins. OR er 93,5% í eigu
Reykjavíkurborgar.
Lánshæfismat OR hjá
Moody’s endurskoðað
● Skráð atvinnuleysi var 2,2% í maí, en
að meðaltali voru 4.018 atvinnulausir í
mánuðinum samkvæmt tölum Vinnu-
málastofnunar. Atvinnuleysi var 1,8%
meðal karla og 2,6% meðal kvenna.
Alls voru 4.272 atvinnulausir í lok
maí. Voru 877 erlendir ríkisborgarar án
atvinnu um mánaðamótin eða um 21%
atvinnulausra. Þar af eru 511 pólskir
ríkisborgarar, eða um 58% erlendra
ríkisborgara sem voru á skrá í lok mán-
aðarins.
Skráð atvinnuleysi
2,2% í síðasta mánuði
STUTTAR FRÉTTIR ...
BAKSVIÐ
Jón Þórisson
jonth@mbl.is
Mikil uppkaup fjárfesta og leiga
íbúða til ferðamanna hefur dregið
úr hefðbundinni veltu með íbúðar-
húsnæði í Reykjavík. Þetta kemur
fram í nýrri
Hagsjá Lands-
bankans um fast-
eignamarkaðinn.
Viðskipti með
fasteignir í maí
voru mun minni
en síðustu þrjá
mánuði þar á
undan. Voru við-
skiptin í maí 30%
minni en þau
voru í september 2015 og hefur þró-
unin verið niður á við.
Í Hagsjánni er sleginn sá varnagli
að niðurstaða einstakra mánaða gefi
ef til vill ekki rétta mynd. Tölurnar
bendi hins vegar til að viðskipti með
íbúðarhúsnæði séu að dragast sam-
an á höfuðborgarsvæðinu.
„Það er of snemmt að fullyrða en
þetta virðist samt vera orðin ákveð-
in leitni niður á við,“ segir Ari
Skúlason, hagfræðingur hjá Lands-
bankanum. „Séu tölur Hagstofunn-
ar hins vegar skoðaðar þá hófust
mun fleiri íbúðabyggingar í fyrra en
fyrri ár. Það eru því líkur á að þessi
mynd breytist þegar þær íbúðir eru
fullgerðar og koma á markaðinn.“
Lóðaskortur ekki útilokaður
Ari segir að ekki sé hægt að
ganga út frá að lóðaskortur hafi
ekki áhrif á þessa stöðu. „Að jafnaði
hefur verið gert ráð fyrir að þörf
fyrir nýjar íbúðir sé 1.800 til 2.000 á
ári. Það er að auki uppsöfnuð þörf
frá fyrri árum sem ekki hefur verið
mætt.“ Ari bendir á að nýjar íbúðir
sem komi til sölu séu feykidýrar og
þær draga upp verðið, sem bætist
svo við eftirspurnarþrýstinginn sem
sömuleiðis veldur því að íbúðaverð
hækkar. „Það eru engar hagstæðar
lausnir í sjónmáli,“ segir hann. „Á
hinn bóginn er samhengi í þróun
íbúðaverðs og þeirrar kaupmáttar-
aukningar sem hefur átt sér stað.
Þetta tvennt helst nokkuð vel í
hendur. Íbúðaverð hefur því ekki
hækkað meira en kjörin okkar.“
Mesta aukningin í Hafnarfirði
Fram kemur að viðskipti með
íbúðarhúsnæði hafi frá fyrri árs-
helmingi 2011 aukist mest í Hafnar-
firði, og Kópavogur og Mosfellsbær
fylgi fast á eftir. Á þessum sama
tíma hafi viðskiptin aukist minnst í
Reykjavík og á Seltjarnarnesi.
Sé hlutfall nýrra íbúða af heildar-
íbúðaviðskiptum árið 2015 skoðað,
kemur í ljós að það hlutfall er hæst í
Kópavogi eða 17%. Á Seltjarnarnesi
var hlutfallið 14%. Reykjavík rekur
lestina, en aðeins 4% seldra íbúða
voru nýjar í Reykjavík. „Taka verð-
ur tillit til munar á íbúafjölda milli
sveitarfélaga en reyndin er samt sú
að fleiri nýjar íbúðir seldust í Kópa-
vogi en í Reykjavík,“ segir Ari.
Í Hagsjánni segir að tölur um
íbúðafjárfestingu í þjóðhagsreikn-
ingum komi á óvart og hún hafi
staðið nánast í stað árið 2015. Sú
skýring hafi verið gefin að áform-
uðum framkvæmdum hafi verið
slegið á frest og að verktakar ein-
beiti sér að annars konar bygging-
um en íbúðabyggingum, ekki síst
hótelbyggingum.
Samdráttur í sölu íbúða
á höfuðborgarsvæðinu
Morgunblaðið/Ómar
Skuggahverfið Á árinu 2015 var hlutfall seldra nýrra íbúða af heildarviðskiptum með íbúðir lægst í höfuðborginni.
Íbúðamarkaður
» Mun fleiri nýjar íbúðir seldar
í Kópavogi en Reykjavík í fyrra.
» Íbúðafjárfesting stóð nær í
stað árið 2015.
» Verktakar sjá sér frekar hag
í að byggja hótel en íbúðir.
» Íbúðaviðskipti hafa aukist
mest í Hafnarfirði.
Landsbankinn segir mikil uppkaup fjárfesta á leiguhúsnæði dragi úr veltu
Ari Skúlason
Seðlabanki Íslands hefur öðru sinni
á fimm sólarhringum tilkynnt um
breytingar á útboðsskilmálum
vegna fyrirhugaðs aflandskrónu-
útboðs sem bankinn hyggst standa
fyrir fimmtudaginn 16. júní. Í út-
boðinu býðst bankinn til að kaupa
eignir, sem skráðar eru íslenskum
krónum, og skilgreindar eru sam
aflandskrónueignir, í skiptum fyrir
reiðufé í evrum.
Síðari breytingin sem bankinn
hefur tilkynnt um felur í sér árétt-
ingu á því að samsetning svokall-
aðar magntilboða og gildra verð-
tilboða komi til með að mynda
lægsta mögulega kaupverð á krón-
um í skiptum fyrir evrur í útboðinu.
Samkvæmt útboðsskilmálum fá
aflandskrónueigendur hærra verð
fyrir eignir sínar, í evrum talið,
eftir því sem þátttaka í útboðinu
eykst. Þá er einnig gerð sú breyt-
ing að ekki er gerður áskilnaður
um að tilboðum undir ákveðnu lág-
marksgengi, 190 krónur á evru,
verði hafnað að fullu. Í fyrri útboðs-
skilmálum var sett gólf á hvað
Seðlabankinn var tilbúinn til að
selja hverja evru á. Þannig hafði í
útboðsskilmálunum verið kveðið
skýrt á um að ef aflandskrónu-
eigendur byðu 175 milljarða króna
eða meira til sölu gætu þeir minnst
látið af hendi 190 krónur fyrir
hverja evru.
Á fimmtudag í síðustu viku, hafði
bankinn einnig tilkynnt um breyt-
ingar á útboðinu. Þá var tilboðs-
frestur sem aflandskrónueigendum
var boðið upp á lengdur. Nú geta
eigendur krónanna sent tilboð til
Seðlabankans í gegnum Bloomberg
til klukkan 15:00 á fimmtudaginn.
Áður hafði frestur verið gefinn til
kl. 14:00. ses@mbl.is
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skeifan Fasteignagjöld hafa hækk-
að mikið með hærra fasteignamati.
Útboðsskilmálum
breytt öðru sinni
Seðlabankinn
opnar á að taka
lægra útboðsgengi