Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 17

Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 „Hundurinn minn var búinn að vera í meðferðum hjá dýralækni í heilt ár vegna húðvandamála og kláða, þessu fylgdi mikið hárlos. Hann var búinn að vera á sterum án árangus. Reynt var að skipta um fæði sem bar heldur ekki árangur. Eina sem hefur dugað er Polarolje fyrir hunda. Eftir að hann byrjaði að taka Polarolje fyrir hunda hefur heilsa hans tekið stakkaskiptum. Einkennin eru horfin og hann er laus við kláðann og feldurinn orðinn fallegur.“ Sigurlín Birgisdóttir, hundaeigandi Sími 698 7999 og 699 7887 Náttúruolía sem hundar elska Við Hárlosi Mýkir liðina Betri næringarupptaka Fyrirbyggir exem Betri og sterkari fætur NIKITA hundaolía Selolía fyrir hunda Reykjavíkurvegi 64, Hfj, s. 555 1515, enjo.is • Tímasparnaður • Engin kemísk efni • Ódýrara • Umhverfisvænt • 6 x hreinna - betri þrif • Vinnuvistvænt • Minni vatnsnotkun Nýja ENJO vörulínan er komin á markað Ferskari, líflegri og enn meiri gæði Komið í verslun okkar og sjáið úrvalið Opið kl. 11-18 alla virka daga Kristján H. Johannessen khj@mbl.is „Ég heyrði Mateen hlæja eftir að hann skaut manninn. Þetta er eitt- hvað sem ég mun aldrei gleyma því í hvert skipti sem ég loka augunum til að sofna heyri ég skothvelli, skot- hylki falla á gólfið og þennan hlátur – hann hló af ánægju,“ segir Norman Casiano í samtali við frétta- mann CNN. Hann var einn þeirra fjölmörgu sem voru inni á skemmtistaðnum Pulse í Orlando í Flórída þegar ódæð- ismaðurinn Omar Mateen hóf að skjóta þar fólk. Alls myrti hann 49 manns inni á skemmtistaðnum og særði yfir 50, suma hverja lífshættu- lega. Í viðtalinu lýsti Casiano því þegar hann faldi sig ásamt hópi fólks inni á salerni staðarins. Maðurinn sem Cas- iano vísar til í ummælum sínum var skotinn í bakið á hlaupum þegar hann gerði tilraun til að fela sig. „Þá byrjaði einhver að öskra – ekki skjóta okkur – og það var þá sem hann skaut í gegnum fyrsta básinn,“ segir Casiano en kúlan hæfði hann í kviðinn. Segir hann mikla skelfingu hafa gripið um sig í kjölfarið og að margir hafi grátbeðið um miskunn. Casiano segir það hins vegar einung- is hafa ýtt undir frekara ofbeldi, en Mateen teygði þá byssu sína yfir kló- setthurðina og skaut af handahófi niður á þá sem þar lágu bakvið. Oft sést á skemmtistaðnum Mateen var við árás sína vopnaður AR-15-árásarriffli, Glock-skamm- byssu og sprengiefni, en að sögn fjöl- miðla vestanhafs keypti hann skot- vopnin með löglegum hætti í skotvopnaverslun í Orlando. „Hann stóðst þá bakgrunnsskoðun sem hver einn og einasti sem kaupir skotvopn í Flórídaríki þarf að gangast undir,“ hefur CNN eftir eiganda verslunar- innar. Mateen er einnig sagður hafa klæðst skotheldum varnarbúnaði við árásina. Rannsókn lögreglu beinist nú með- al annars að því hvort Mateen hafi áð- ur sótt skemmtistaðinn heim en nokkur vitni segjast margsinnis hafa séð hann þar undanfarið. „Sjálfur hef ég séð hann nokkrum sinnum án þess þó að hafa talað eitt- hvað við hann af viti,“ segir Chris Callen í samtali við fréttamann CNN og heldur áfram: „Þegar við sáum hann fyrst, ég og öryggisvörður sem vann á Pulse, þá heilsuðum við hon- um og hann var mjög vinalegur og allt það. En hann hefur reglulega komið og það undanfarin þrjú ár.“ Fleiri hafa komið fram og sagt svipaða sögu, en að sögn sumra þeirra átti Mateen vingott við nokkra menn á staðnum. Hló að fórnarlömbunum  Ódæðismaðurinn Omar Mateen virtist einungis æsast upp þegar fólk grátbað hann um miskunn  Hann hló af ánægju, segir ungur maður sem komst lífs af AFP Sorg Fjölmargir hafa að undanförnu vottað hinum látnu virðingu sína og hafa m.a. lagt blóm á fjölfarna staði. Omar Mateen Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Tveir franskir lögreglumenn, karl- maður og sambýliskona hans, voru í fyrrakvöld myrt af íslamista við heimili þeirra í Magnanville, norður af París. Þriggja ára sonur þeirra komst lífs af úr ódæðinu. Árásarmaðurinn hét Larossi Abb- alla, 25 ára, og féll hann fyrir skot- um sérsveitar á vettvangi, en þrír einstaklingar, sem sagðir eru tengjast árásar- manninum, voru í gær handteknir af lögreglu. Fréttaveita AFP greinir frá því að árásin sé rann- sökuð sem hryðjuverk. Abballa er sagður hafa tengsl við vígahóp íslamista í Pakistan og bjó hann skammt frá heimili fórnar- lamba sinna. Er hann sagður hafa stungið annan lögreglumanninn, sem er 42 ára karlmaður, margsinnis með eggvopni fyrir utan heimilið. Maðurinn lést fljótt af sárum sínum, en vitni segja ódæðismanninn hafa öskrað orðin „Allahu Akbar“ eða „Guð er almáttugur“ á meðan á þessu stóð. Gekk hann því næst inn á heimilið þar sem konan, 36 ára, var ein inni ásamt ungum syni þeirra. Sérsveitarmenn fundu lík konunn- ar þegar þeir brutu sér leið inn á heimilið. Var hún þá með fjölmörg stungusár á hálsi. Drengurinn slapp hins vegar ómeiddur. Fréttaveita AFP hefur heimildir fyrir því og vitnar til eins af rannsak- endum árásarinnar að Abballa hafi verið yfirlýstur liðsmaður Ríkis ísl- ams. Þá hefur miðillinn Amaq News, sem er rekinn af Ríki íslams, greint frá morðunum og er Abballa þar kallaður „stríðsmaður“ samtakanna. Sýndi líkin í beinni á Facebook og boðaði árás á EM 2016 Þegar morðin voru yfirstaðin sett- ist Abballa í sófa inni í stofu, hafði drenginn sér við hlið, og hóf beina útsendingu á Facebook þar sem hann sagði frá drápunum. „Ég veit ekki hvað ég á að gera við hann,“ sagði Abballa og átti við drenginn. Beina útsendingin stóð yfir í um 13 mínútur og sýndi Abballa þá einn- ig myndir af blóðugum líkum fórn- arlamba sinna auk þess sem hann sór Abu Bakr al-Baghdadi, kalífa Ríkis íslams, hollustu sína. Búið er að fjarlægja myndefnið af síðunni. Í útsendingunni vék Abballa einn- ig að Evrópumóti karla í knatt- spyrnu (EM 2016) sem nú fer fram víðsvegar í Frakklandi. „Við munum breyta Evrópu- mótinu í kirkjugarð,“ sagði hann í út- sendingunni og hvatti um leið trú- bræður sína og fylgismenn á Facebook til að gera árásir á hina ýmsu lögreglumenn, fréttamenn, þjóðþekkta einstaklinga, fangaverði og söngvara. AFP greinir frá því að Abballa hafi verið með lista yfir nafngreinda einstaklinga sem hann hvatti til að yrðu drepnir. Saksóknari í París staðfestir áð- urnefndan lista við AFP og segir lög- reglu einnig hafa fundið við leit á heimili hinna látnu þrjá hnífa og þrjá farsíma sem tilheyrðu Abballa. Hóf beina útsendingu frá morðvettvangnum  Íslamisti myrti sambýlisfólk á heimili þeirra í Frakklandi AFP Hryllingur Franskir lögreglumenn standa vörð við heimili hinna látnu en vettvangsrannsókn stóð þar yfir í gær. Margir settu blóm þar skammt frá. Larossi Abballa Réttarhöld eru hafin yfir Silvio Schulz, 33 ára gömlum öryggis- verði, sem sak- aður er um að hafa myrt tvo unga drengi í Þýskalandi. Fréttaveita AFP greinir einnig frá því að Schulz hafi misnotað drengina kynferðis- lega áður en þeir voru myrtir. Drengirnir hétu Mohamed, fjög- urra ára frá Bosníu, og Elías, sex ára frá Þýskalandi. Réttarhöldin fara fram í Pots- dam skammt frá Berlín, en verði Schulz fundinn sekur gæti hann átt yfir höfði sér lífstíðardóm. Hann var handtekinn í október á síðasta ári eftir að móðir annars drengj- anna bar kennsl á hann. ÞÝSKALAND Nauðgaði og myrti tvo unga drengi Silvio Schulz Til óeirða kom í miðborg Parísar í gær þegar hundruð grímuklæddra mótmælenda köstuðu öllu lauslegu í átt að lögreglumönnum, en verið var að mótmæla umdeildum breyt- ingum á vinnulöggjöf þar í landi. Fréttaveita AFP segir minnst sex hafa verið handtekna og tvo hið minnsta hafa særst í átökunum. Mótmæli hafa verið tíð í Frakklandi að undanförnu og segist Francois Hollande Frakklandsforseti vonast til að þeim fari brátt að linna. FRAKKLAND Átök milli lögreglu og mótmælenda

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.