Morgunblaðið - 15.06.2016, Side 19

Morgunblaðið - 15.06.2016, Side 19
19 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Hjólakraftur Í gær lögðu 15 lið frá samtökunum Hjólakrafti af stað hringinn um landið í WOW Cyclothon-hjólreiðakeppninni. Í liðunum eru hátt í 100 börn ásamt foreldrum og fylgdarmönnum en nær allir hjálpast að við að hjóla kílómetrana 1.358. Þórður Fyrirfram mátti reikna með því að lín- urnar fyrir alþingis- kosningar, sem hafa verið boðaðar í haust, færu að skýrast eftir stofnfund, aðalfund og landsfund þriggja stjórnmálaflokka. Svo er ekki nema að litlu leyti – og þó. Samfylkingin hélt landsfund í byrjun mánaðarins í skugga upplausnar, innanmeina og minna fylgis en nokkru sinni. Oddný Harðardóttir var kjörin formaður þrátt fyrir að minnihluti þeirra flokksmanna sem tók þátt í kosn- ingum, teldi hana besta kostinn af þeim sem í boði voru. Eina málið út af borðinu Um leið og skipt var um formann ákvað landsfundurinn að henda mál- inu eina – aðild Íslands að Evrópu- sambandinu – út af borðinu. Í álykt- un fundarins er ekki minnst einu orði á Evrópusambandið – ekki einu orði. Nýr formaður forðaðist, líkt og heitan eldinn, að ræða Evrópusam- bandið í stefnuræðu sinni. En þótt Evrópusambandið sé orðið feimn- ismál eru samfylkingar byrjaðir kinnroðalausir að gefa út kosn- ingavíxla. Öllum er lofað einhverju; börnum, námsmönnum, eldri borg- urum, öryrkjum, launafólki, náttúru- verndarsinnum og listamönnum. „Við í Samfylkingunni erum tals- menn alvöru lýðræðis,“ sagði ný- kjörinn formaður í stefnuræðunni. Einhverjir gætu haldið því fram að yfirlýsingin sé merki um pólitíska kokhreysti í ljósi sögunnar. Formað- urinn kom, ásamt félögum sínum, í veg fyrir að „alvöru lýðræði“ næði fram að ganga sumarið 2009, þegar tillaga um þjóð- aratkvæðagreiðslu um aðildarumsókn að Evr- ópusambandinu var felld. Reynt var að end- urtaka leikinn í Ice- save-deilunni. Þá vildu samfylkingar ekki „al- vöru lýðræði“. Nýjar umbúðir Evrópusinna Evrópusinnarnir í Viðreisn eru ekki búnir að sópa ESB-aðild undir teppið með öllu. En á stofnfundi flokksins í liðnum mánuði pökkuðu þeir stefnunni inn í huggulegri um- búðir. Nú vilja þeir sem harðast hafa barist með Samfylkingunni fyrir því að „ganga inn í brennandi hús“ Evr- ópusambandsins að efnt verði til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi aðildarviðræðum áfram! Enginn þeirra tók undir kröfuna um að spyrja þjóðina 2009 um hvort óska ætti eftir aðild eða ekki. Og áfram er haldið og reynt að villa um fyrir landsmönnum með því að gefa í skyn að í boði sé sérstakur aðildar- samningur – sérsniðinn fyrir Ísland. Fyrir borgarasinnað fólk er stefna Viðreisnar í mörgu öðru geðsleg – hugguleg væri ef til vill nær að segja. Engu er líkara en að hug- myndafræðingar flokksins hafi ákveðið að safna saman og setja nið- ur á blað flest það sem gæti hljómað vel í eyrum kjósenda sem aðhyllast borgaralegt samfélag. Þess vegna er búið að pakka Evrópusambandinu inn í umbúðir og auðvitað eru margir þeirra sem valist hafa til forystu fyr- ir hinum nýja flokki búnir að gleyma þegar þeir gerðust liðsmenn „nor- rænu velferðarstjórnarinnar“ og börðust fyrir samþykkt Icesave- samninganna allt frá fyrsta degi. Tökin hert Píratar héldu aðalfund um liðna helgi. Þar virðist lítið annað hafa gerst en að kosið var nýtt fram- kvæmdaráð og boðað til framhalds- aðalfundar. Kjósendur eru litlu nær fyrir hvað flokkurinn, sem nú mælist stærri en aðrir flokkar í skoðana- könnunum, stendur. Eitt er að minnsta kosti ljóst: Flokkseigendafélagið undir stjórn Birgittu Jónsdóttur, er að herða tök- in og Helgi Hrafn Gunnarsson á í vök að verjast. Sannfærðir vinstri- sinnar og sósíalistar eru byrjaðir að hreinsa til og hrekja í burtu þá sem töldu að innan Pírata væri rúm fyrir hugsjónir frelsis. Það er á margan hátt skiljanlegt að Samfylkingin sé búin að setja málið eina niður í skúffu, að Viðreisn reyni að pakka Evrópudraumnum í huggulegri og seljanlegri umbúðir og að Píratar hafi lítinn áhuga á að leggja fram heildstæða stefnu í helstu málum. Fyrir þjóð sem nýtur meiri hagsældar en þekkist í flestum vestrænum löndum er ekki eft- irsóknarvert að ganga til liðs við ríkjasamband sem jafnvel hörðustu Evrópusinnar líkja við brennandi hús. Og hvers vegna ættu Píratar að setja fram skýra stefnu, þegar ann- að hefur gefist jafn vel og raun ber vitni? Kaupmáttur aldrei hærri Íslendingar hafa notið þess á síð- ustu árum að standa utan við Evr- ópusambandið og að komið var í veg fyrir að skuldir einkabanka væru þjóðnýttar, eins og ítrekað var reynt. Neyðarlögin, sem undirbúin voru í Seðlabankanum haustið 2008, tryggðu að Ísland hélt fjárhagslegu sjálfstæði ólíkt Grikkjum sem nú eru ofurseldir erlendum kröfuhöfum. Þó var skipulega reynt að fara á svig við neyðarlögin í tíð ríkisstjórnar nor- rænnar velferðar. Á síðasta ári voru regluleg laun hér á landi 7,2% hærri en 2014. Kaupmáttur jókst um 5,5% á milli ára. Samkvæmt mati hagfræðideild- ar Landsbankans má búast við að kaupmáttur aukist um 8,1% á þessu ári. „Kaupmáttur launa er nú hærri en hann hefur verið nokkurn tíma áður,“ sagði í Hagsjá hagfræðideild- arinnar 8. júní. Þrátt fyrir aukinn kaupmátt hefur verðbólga haldist lág. Á aðeins sex árum hafa skuldir heimilanna lækkað um sem nemur 41% af landsframleiðslu, annars veg- ar vegna hagvaxtar og hins vegar lækkunar nafnvirðis skulda. Sem hlutfall af landsframleiðslu eru skuldir heimilanna svipaðar og 1999, samkvæmt Hagsjánni. Hækkun eignaverðs og lægri skuldir hafa leitt til þess að auður heimilanna hefur aukist verulega. Á síðustu tveimur árum auðurinn aukist um meira en 10% á ári. Allar hagspár benda til þess að framtíðin sé björt hér á landi. Hag- vöxtur verður góður og kaupmáttur getur haldið áfram að vaxta. Lífs- kjör geta því haldið áfram að batna. Möguleikar til að bæta hag þeirra sem lakast standa verða betri. Allt er þó undir því komið að rétt sé hald- ið á spilunum, sem flest hver eru góð. Erfið staða stjórnarflokkanna Staða Íslands er í flestu öfunds- verð og við slíkar aðstæður ætti staða ríkisstjórnarflokkanna að vera sterk. Þeir ættu í aðdraganda kosn- inga að vera líkt og óvinnandi vígi. Skoðanakannanir benda til annars. Framsóknarflokkurinn hefur misst meira en helming kjósenda sinna og samkvæmt nýjustu könnun Félagsvísindastofnunar HÍ fyrir Morgunblaðið er fylgi Sjálfstæðis- flokksins á niðurleið. Á einum mán- uði hefur Sjálfstæðisflokkurinn misst 5,5%-stig og er með aðeins 22,7%, sem er minna en í kosning- unum 2009 sem eru þær verstu í sögu flokksins. Ríkisstjórnarflokkarnir, hvor með sínum hætti, standa því frammi fyrir miklum áskorunum. Uppgangur í efnahagslífinu og betri lífskjör eru ekki vatn á myllu þeirra. Þegar 3-4 mánuðir eru til kosninga standa þeir báðir verr að vígi en í upphafi kjör- tímabilsins og einnig ef miðað er við kosningarnar 2009. Skýringarnar eru margar og efniviður í sérstaka blaðagrein. Mikið vatn rennur til sjávar áður en kjördagur rennur upp. Flokk- arnir eiga eftir að skipa framboðs- lista, móta helstu stefnumál og eiga samtal við kjósendur. Staðan getur því breyst og það þrátt fyrir að flest- ir fjölmiðlar landsins – ríkisreknir sem aðrir – leggist á sveif með göml- um og nýjum Evrópusinnuðum Ice- save-flokkum og sjóræningjum und- ir hentifána. Eftir Óla Björn Kárason » Staða Íslands er íflestu öfundsverð og við slíkar aðstæður ætti staða ríkisstjórnar- flokkanna að vera sterk. Skoðanakannanir benda til annars. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Pólitískar áskoranir í góðæri Ég ætla að kjósa vin minn Davíð Oddsson sem forseta. Það kemur ekki á óvart. Við vorum saman í ríkisstjórn í átta ár og síðan unnum við vel saman, meðan ég var forseti Alþingis og hann forsætisráðherra. Ég hef verið spurður að því, hvernig það hafi verið að vinna undir hans stjórn í ríkisstjórn. Svarið er skýrt og einfalt. Hann var góður verkstjóri, setti sig inn í mál og vann vel með ein- stökum ráðherrum. Á þetta reyndi, sérstaklega í fyrstu rík- isstjórn hans með Alþýðu- flokknum. Jóhanna Sigurð- ardóttir átti þá í átökum við samráðherra sína og flokks- systkin, sem að lokum leiddi til þess að hún hvarf úr ríkisstjórn 1994 og stofnaði Þjóðvaka en Rannveig Guðmundsdóttir varð félagsmálaráðherra. Lagni Davíðs olli því, að þessi átök höfðu ekki áhrif á samstarf flokkanna né spillti fyrir ár- angri ríkisstjórnarinnar. Ég varð ekki var við annað en fullt traust væri milli Jóhönnu og Davíðs. Ég fór með embætti landbúnaðar- og samgöngu- ráðherra. Það voru auðvitað átök milli okkar Jóns Bald- vins Hannibalssonar í landbúnaðarmálum en við gáfum okkur hvergi og héldum okkar strik og ég átti traust Dav- íðs. Sömuleiðis var mikill áherslumunur í samgöngu- málum milli kjördæma. Eftir á er broslegt að rifja upp, hverjir voru á móti Hvalfjarðargöngum og göngum um Héðinsfjörð til Siglufjarðar. Eins og hinir gömlu borgarstjórar Sjálfstæðisflokksins var Davíð landsbyggðarmaður í þeim skilningi að hann leit á Reykjavík sem höfuðborg alls landsins og átti að rækja skyldur sínar samkvæmt því. Hugmyndir um að leggja niður Reykjavíkurflugvöll komu auðvitað ekki til greina. Það má lengi velta því fyrir sér hvaða eiginleikum for- seti Íslands eigi að vera gæddur. Ég er ekki í vafa um að Davíð Oddsson muni sóma sér vel á Bessastöðum og þau Ástríður bæði. Þau búa yfir mikilli reynslu og eru lítillát í eðli sínu. Hugsað til Davíðs Oddssonar Eftir Halldór Blöndal Halldór Blöndal »Eins og hinir gömlu borg- arstjórar Sjálf- stæðisflokksins var Davíð lands- byggðarmaður. Höfundur er fv. ráðherra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.