Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 24

Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Í dag er kvaddur Arnfinnur Jónsson. Fyrir hönd Skáta- sambands Reykja- víkur vil ég minnast hans með nokkrum orðum. Arnfinnur gekk ungur til liðs við skáta- hreyfinguna og starfaði með Landnemadeild Skátafélags Reykjavíkur. Hann kom ungur maður við sögu í merkilegum kafla íslensku skátasögunnar, þ.e. þegar verkefni hófust við að sameina starfsemi kvenskáta og drengjaskáta í Reykjavík. Slíkur gjörningur þótti ekki sjálfsagður í þá daga og var bæði viðkvæm- ur og umdeildur en þróun sam- félagsins og stækkun borgar- lands Reykjavíkur þótti kalla á skipulagsbreytingar í skátastarf- inu. Niðurstaða þeirrar vinnu var að stofnuð voru átta sjálf- stæð skátafélög hvert í sínu hverfi og voru þau fyrir stúlkur jafnt sem drengi. Arnfinnur Jónsson var í forystusveit við þessa vinnu. Hann sat í stjórn Skátafélags Reykjavíkur (S.F.R.) þegar fé- lagið var lagt niður hinn 26. mars 1969 og var kjörinn í stjórn Skátasambands Reykja- víkur sama dag þar sem hann starfaði um árabil. Arnfinnur Jónsson hefur alla tíð verið mik- ilvægur liðsmaður í starfi Reykjavíkurskáta auk þess að starfa í áratugi fyrir sitt gamla skátafélag Landnema. Þá var hann mjög ötull í starfi hjálpar- og björgunarsveita skáta og sat einnig í stjórn Bandalags ís- lenskra skáta. Í skátahreyfing- unni starfa ekki aðeins börn og unglingar því að baki ungliða- starfinu fer fram mikið og fórn- fúst starf þar sem fjöldi fólks kemur að. Þar lá Arnfinnur Jónsson ekki á liði sínu. Reykjavíkurskátar kveðja Arnfinn Jónsson með virðingu og þakklæti í huga. Hrönn Þormóðsdóttir, formaður Skátasambands Reykjavíkur. Skátafélagið Landnemar í Reykjavík kveður nú öflugan liðsmann og góðan dreng. Arn- finnur Unnar Jónsson gerðist skáti 1953 í Landnemasveit, inn- Arnfinnur Jónsson ✝ Arnfinnurfæddist 16. mars 1942. Hann andaðist 3. júní 2016. Jarðarför Arn- finns fór fram 13. júní 2016. an Skátafélags Reykjavíkur en hafði áður starfað sem ylfingur í Jómsvíkingum. Hann og fimm jafn- aldrar hans stofn- uðu fljótlega skáta- flokkinn Fálka, flugu fljótt út í skátaævintýrið og drifu sig til fjalla. Hellisheiðin var oft vettvangurinn en síðan var hald- ið lengra. Fálkar voru kröftugir skátar sem urðu með auknum þroska burðarásar í starfi Land- nemadeildar. Arnfinnur Jónsson vann öll foringjastörf í Land- nemadeild á árunum 1956-1964, frá flokksforingja til deildarfor- ingja. Hann var kjörinn fyrsti fé- lagsforingi skátafélagsins Land- nema 1969 og sat sem slíkur til 1972. Arnfinnur var í mótsstjórn fyrsta Landnemamótsins á Þing- völlum 1959. Var eftir það valinn í fjölda mótsstjórna, Landnema- móta sem landsmóta skáta, oft sem mótsstjóri. Arnfinnur sat jafnframt í stjórn Skátafélags Reykjavíkur 1964-1968 og Skátasambands Reykjavíkur 1968-1972. Hann var einnig kjörinn í stjórn BÍS 1971-1981 og var aðstoðarskáta- höfðingi frá 1977. Auk þess gegndi hann formennsku í Úlf- ljótsvatnsráði og alþjóðaráði BÍS og var erlendur bréfritari 1988- 1998. Hann sótti sitt fyrsta skátamót erlendis í Blair Athol í Skotlandi 1956 og var síðar far- arstjóri íslenskra skátahópa á fjölda skátamóta erlendis, m.a. á 50 ára afmælismót BSA í Valley Forge í Bandaríkjunum árið 1964 og á þrjú alheimsmót, Jamboree. Hér eru ótalin afar drjúg störf Arnfinns í starfi hjálparsveita skáta allt frá boð- unarflokki Landnema innan Hjálparsveitar skáta í Reykjavík 1958, til stjórnarstarfa í HSSR, Landssambandi hjálparsveita skáta LHS og Landsbjörgu, landssambandi björgunarsveita til 1999. Þá var Arnfinnur mjög virkur í undirbúningi og fram- kvæmd að Friðarráðstefnu skáta sem haldin var í Hörpu 2014 og átti ríkan þátt í hve vel tókst til. Þótt ábyrgðarstörfum innan hreyfingarinnar fækkaði, þá var hann ætíð til taks og reiðubúinn til verka. Arnfinnur var góður skáti og einstakur maður. Hann var öfl- ugur liðsmaður í starfi Land- nema og skátahreyfingarinnar alla tíð og eru sporin hans víða. Vinnulag hans var einstakt og lærdómsríkt; – skipulag, virkni, vinnugleði og vinátta. Landnemar kveðja félaga sinn með virktum og þökk. Skátafélagið Landnemar, Arnlaugur Guðmundsson, félagsforingi. Kveðja frá íslenskum skátum Arnfinnur U. Jónsson er far- inn heim, farinn heim til skapara síns. Hann gekk ungur til liðs við skátahreyfinguna og var virkur í starfi hennar allt til síð- asta dags. Arnfinnur var öflugur liðsmaður, yfirvegaður, mjög vandvirkur og nákvæmur í öllu því sem hann tók að sér. Hann gegndi margvíslegum og fjöl- breyttum trúnaðarstörfum fyrir Bandalag íslenskra skáta. Sat m.a. í stjórn BÍS á árunum 1971- 1981, þar af sem aðstoðarskáta- höfðingi 1977-1981. Þá var hann formaður alþjóðaráðs BÍS á ár- unum 1988-1998. Sem slíkur leiddi hann formennsku Íslands í Samstarfsnefnd norrænu skáta- bandalaganna á árunum 1994- 1997 og stýrði undirbúningi Norræna Skátaþingsins á Ís- landi 1997. Undanfarna mánuði vann Arnfinnur af kappi að und- irbúningi Heimsmóts róversk- áta, World Scout Moot, sem haldið verður á Íslandi sumarið 2017. Íslenskir skátar sakna vinar í stað og vil ég fyrir hönd stjórnar Bandalags íslenskra skáta þakka Arnfinni samfylgdina og óeigin- gjörn störf í þágu skáta. Ástvin- um færi ég innilegar samúðar- kveðjur. Þú ert skáti horfinn heim, himinn, jörð, ber sorgarkeim. Vinar saknar vinafjöld, varðar þökkin ævikvöld. Sérhver hefur minning mál, við munum tjöld og varðeldsbál, bjartan hug og brosin þín, þau bera ljósið inn til mín. Kveðjustundin helg og hlý, hugum okkar ríkir í. Skátaminning, skátaspor, skilja eftir sól og vor. (Hörður Zóphaníasson.) Bragi Björnsson, skátahöfðingi. Það er stundum talað um ís- lenskt björgunarsveitafólk sem hetjur og orð eins og „hvar vær- um við án þeirra“ og „þetta er hinn íslenski her“ heyrast oft. Vissulega geta Íslendingar allir verið stoltir af björgunarsveit- unum og því mikla starfi sem þær vinna. Þó er það þannig að í daglegri hraðferð nútímans vill það stundum gleymast að allt hefur sinn aðdraganda og sitt upphaf. Björgunarsveitirnar okkar, eins og við þekkjum þær í dag, urðu ekki til svona allt í einu heldur með þrotlausri hug- sjón og sjálfboðastarfi þeirra sem á undan fóru. Hugsjón sem hefur skilað Slysavarnafélaginu Landsbjörg á þann stað sem það er í dag. Einn þeirra sem gjörva hönd lögðu á plóg í þeirri vegferð var Arnfinnur Jónsson. Hans saga í hjálparsveitarstarfinu nær aftur til ársins 1958 þegar hann hafði hlutverk í svokölluðum „boðun- arflokki landnema“. Á næstu ár- um sinnti hann mörgum trún- aðarstörfum fyrir Hjálparsveit skáta í Reykjavík, Landssam- band Hjálparsveita skáta og síð- ar fyrir Landsbjörg, landssam- band björgunarsveita, sem varð til með sameiningu Landssam- bands hjálparsveita skáta og landssambands flugbjörgunar- sveita. Arnfinnur átti sæti í und- irbúningsnefnd að stofnun sam- einaðra samtaka og sat svo í stjórn þeirra til ársins 1995. Landsbjörg sameinaðist svo Slysavarnafélagi Íslands árið 1999 og til varð Slysavarnafélag- ið Landsbjörg. Uppbygging slysavarna- og björgunarstarf á sér nær 90 ára sögu og þeirri vegferð hafa margar vörður verið hlaðnar. Ekki verður litið hjá því að oft hljóp mönnum kapp í kinn og stundum urðu björgunaraðgerð- ir kapphlaup á milli þeirra sam- taka sem þá sinntu leit og björg- un. Það var því mikið gæfuspor þegar til urðu ein heildarsamtök með stofnun Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Til þess að svo gæti farið þurfti öfluga braut- ryðjendur, eins og Arnfinn, sem höfðu fulla trú á verkefninu og höfðu þá sýn að sameinuð stæð- um við stærri og sterkari og bet- ur undir það búin að takast á við óblíð náttúruöflin með það að markmiði að allir kæmust heilir heim. Arnfinnur var alltaf boðinn og búinn að leggja sitt af mörkum þegar kom að félagsstarfinu og taldi ekkert eftir sér í því. Að leiðarlokum er vert að þakka sérstaklega fyrir áratuga langt og óeigingjarnt starf hans í þágu björgunarsveitanna. Það eru ekki margir sem staðið hafa vaktina í félagsmálum okkar eins lengi og dyggilega. Slysavarnafélagið Landsbjörg kveður Arnfinn Jónsson með virðingu og þökk og vottar fjöl- skyldu og vinum öllum dýpstu samúð. Smári Sigurðsson formaður. Kveðja frá hjálparsveitarfélögum Vinur og félagi í meira en hálfa öld er fallinn frá – farinn heim. Því fylgir hvoru tveggja söknuður og hryggð. Arnfinnur Unnar Jónsson var óvenju heil- steyptur og traustur maður. Til hans var ávallt hægt að leita kæmu upp vafa- eða vandamál. Hann var reiðubúinn til hjálpar hvar og hvenær sem var. Það var mikill fengur í því fyrir Hjálparsveit skáta að fá Arnfinn til starfa. Reynsla hans, ein- lægni og dugnaður voru ómet- anleg. Í útköllum hjálparsveit- arinnar var hann ávallt meðal fyrstu manna á vettvang. Segja má að ævistarf Arn- finns hafi falist í því að stjórna, skipuleggja og fylgja eftir mál- um. Í því var hann býsna góður. Nánast aldrei sá ég hann bregða skapi og hann hafði einstakt lag á því að tala við fólk. Ef honum mislíkaði gat hann verið ákveð- inn og hann var snillingur í að tala fólk til án þess að niður- lægja viðkomandi eða gera illt verra. Ég varð sjálfur fyrir því að fá tiltal hjá honum í fáein skipti þegar honum fannst of langt gengið. Fyrir það var ég ávallt þakklátur. Starfsferill Arnfinns innan Hjálparsveitar skáta í Reykjavík og síðar Landssambands hjálp- arsveita skáta var einstakur. Þar gegndi hann flestum trúnaðar- störfum. Hann var oft fulltrúi samtakanna í samskiptum við önnur félög og stofnanir, svo sem Almannavarnir ríkisins. Um árabil var hann vaktstjóri í framkvæmdastjórn stjórnstöðv- ar almannavarna. Arnfinnur hafði einlægan áhuga á sam- starfi björgunarsamtakanna. Hann átti góðan þátt í samein- ingu þeirra í eitt félag, Lands- björg, þar sem hann sat í stjórn um árabil. Þótt Arnfinnur virtist alvöru- gefinn og formlegur við fyrstu kynni bjó að baki ágæt kímni og góður húmor. Hann var einstak- lega þægilegur og skemmtilegur í viðmóti, góður ferðafélagi og einstakur vinur. Að kynnast Arnfinni voru mikil forréttindi. Þó að allir viti að dauðinn sé það eina sem öruggt er í lífinu, var erfitt að sætta sig við að Arn- finnur væri að fara. Við hefðum öll viljað njóta samskipta við hann miklu lengur. Tryggvi P. Friðriksson. Góður vinur og samstarfs- maður, Arnfinnur Unnar Jóns- son, er látinn. Ég kynntist Arn- finni árið 2002 þegar ég hóf störf hjá Reykjavíkurborg en Arn- finnur var þá skólastjóri Vinnu- skóla Reykjavíkur. Ég man að Arnfinnur var aðeins var um sig gagnvart þessari konu sem birt- ist þarna skyndilega eftir langa dvöl í Bandaríkjunum og átti nú að stýra nýrri stofnun á vegum borgarinnar, Umhverfis- og heil- brigðisstofu Reykjavíkurborgar, þar sem Vinnuskólinn átti meðal annars að falla undir. Við Arn- finnur náðum þó fljótt mjög vel saman enda lögðum við bæði mikinn metnað okkar við Vinnu- skólann og það mikilvæga starf sem þar fór fram. Arnfinnur átti líka eftir að njóta þess að vinna á stærri vinnustað enda mikil fé- lagsvera og naut þess að vera innan um fólk og vinna með fólki. Arnfinnur naut mikils trausts á vinnustaðnum og sam- starfsmenn leituðu til hans um ráðgjöf og leiðbeiningar í fjöl- breyttum málum. Árið 2005 urðu aftur breytingar á starfsum- hverfi okkar þannig að við þurft- um að svipast um eftir starfs- mannastjóra. Við þurftum þó ekki að leita langt yfir skammt því í okkar röðum reyndist vera fyrirmyndarstjórnandi sem var reiðubúinn að taka að sér nýtt verkefni. Það var Arnfinnur sem tók þá við starfi starfsmanna- stjóra Umhverfissviðs Reykja- víkurborgar, þá 63 ára gamall. Arnfinnur gegndi því starfi far- sællega í 5 ár uns hann lét af störfum árið 2010. Arnfinnur var fagmaður fram í fingurgóma. Hann lagði metn- að í öll verkefni bæði stór sem smá og þegar hann tók að sér verkefni var óhætt að treysta því að það væri í góðum farvegi; yrði skoðað frá öllum hliðum og engir lausir endar skildir eftir. Arnfinnur hafði líka sérstakt auga með þeim sem minna máttu sín og þurftu aukinn stuðning við vinnu sína. Hann lagði sig fram um að nemendur Vinnuskólans gætu allir fengið verkefni við sitt hæfi. Fyrir skömmu boðaði Arn- finnur mig á sinn fund. Ég vissi að hann var orðinn veikburða og fannst mér heiður sýndur að fá slíkt heimboð. Ég heimsótti hann hinn 25. maí síðastliðinn, staldraði við hjá honum í um tvær klukkustundir þar sem okkur gafst færi á að rifja upp góðar stundir og kveðjast. Andlát Arnfinns, hinn 3. júní síðastliðinn, kom mér því ekki á óvart og mér fannst dánardagur hans vera mjög í þeim anda sem hann gæti hafa óskað sér; að kveðja á einstaklega fallegum sólríkum sumardegi og hverfa inn í birtuna – allt frágengið, engir lausir endar. Ég er þakklát Arnfinni fyrir afskaplega góða og og gefandi samvinnu og samveru á liðnum árum og þakka honum sérstak- lega fyrir þá umhyggju og alúð sem hann lagði í öll sín verk. Ég votta fjölskyldu Arnfinns og vinum, sem hafa staðið þétt við bakið á honum í veikindum hans, einlæga samúð mína. Blessuð sé minning Arnfinns Unnars Jónssonar. Ellý Katrín Guðmundsdóttir. Smáauglýsingar Bækur Bækur til sölu Dalamenn 1-3, Strandamenn, Vestur-Skaftafellingar 1-4, Svarfdælingar 1-2, Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, Saga Hraunhverfis á Eyrarbakka, Stokkseyringasaga 1-2, Ættir Austfirðinga 1-9, Jarða- og búendatal í Skagafjarðarsýslu 1781-1958, Fremrahálsætt 1-2, MA stúdentar 1-5, Kollsvíkurætt, Krossaætt 1-2. Allt góð eintök. Upplýsingar í síma 898 9475. Íslensk bygging Íslensk bygging brautryðjenda- starf Guðjóns Samúelssonar. Jónas Jónasson og Benedikt Gröndal 1957, sem ný. Tilboð. Upplýsingar í síma 898 9475. Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Iðnaðarmenn Verslun YRSA, VEGLEGT OG MJÖG VANDAÐ ARMBANDSÚR YRSA Reykjavík er sjálfvinda með 2ja ára ábyrgð, á frábæru verði, 48.700 kr. Frí áletrun í júní. Póstsendum. ERNA, Skipholti 3, sími 552 0775, nánar á: www.erna.is - með morgunkaffinu Ástkær eiginkona mín, móðir og tengdamóðir, FREYDÍS FANNBERGSDÓTTIR, Vestmannaeyjum, lést 13. júní á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja. . Júlíus Sveinsson, Sverrir Júlíusson, Steinunn Friðriksdóttir. Elskulegur faðir minn, afi og bróðir, JÓN HÓLM PÁLSSON, Norðurgötu 5, Siglufirði, lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Siglufirði, 10. júní. Útför hans fer fram laugardaginn 18. júní klukkan 11 í Siglufjarðarkirkju. . Páll Ágúst Jónsson, Johanna Brahe, Jón Hólm Pálsson, Veigar Jóhann Pálsson og systkini. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stuttnefni undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviá- gripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent er ráð- legt að senda myndina á netfang- ið minning@mbl.is og láta um- sjónarmenn minningargreina vita. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.