Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 K aren Inga Ólafsdóttir fæddist 15. júní 1976 í Vestmannaeyjum. Hún ólst þar upp, gekk í Hamarsskóla Vestmannaeyja og áfram upp í Framhaldsskóla Vestmannaeyja. Hún útskrifaðist þar á Félagsfræði- braut/sálfræðilínu ásamt fyrrihluta íþróttabrautar, „Ég fór sem au-pair til Svíþjóðar 19 ára og lengdist dvölin þar um hálft ár, en þar fór ég í áfanga í Há- skóla Dalarna, Idrott og Halsa, ásamt því að æfa og þjálfa fyrir Falu-IK í frjálsum.“ Karen hóf nám við ÍKÍ á Laugar- vatni og útskrifaðist þar á þriggja ára námsbraut Kennaraháskólans með Bsc. í íþróttafræðum. Karen bjó í Danmörku með fjölskyldunni í 3 1/2 ár, frá 2005-2008. Karen Inga Ólafsdóttir, íþróttafr. og eigandi Dedicated – 40 ára Fjölskyldan Karen Inga og Sæþór Orri ásamt Lúkasi Orra, Birtu Sól og Alex Inga. Starfað nær alla ævi sem frjálsíþróttaþjálfari Með foreldrum og bræðrum Árni Óli, Karen Inga, Árný, Ólafur og Guðjón. Guðmundur Svein-björn Ingimars-son fjallaleið- sögumaður er 39 ára í dag. Guðmundur fæddist í Reykjavík en ólst upp í Kópavogi. Hann býr nú í Hafnarfirði ásamt unn- ustu sinni, Andreu Stef- ánsdóttur leiðsögu- manni. Guðmundur er stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Garðabæ og útskrifast með BS í landfræði frá Háskóla Íslands í sumar. Hann var lengi neyð- arvörður hjá Neyðarlín- unni en útivist hefur alltaf verið hans helsta áhugamál og hann hefur nú gert hana að starfs- vettvangi sínum. Á sumrin er hann fjalla- leiðsögumaður fyrir Ís- lenska fjallaleið- sögumenn og Arctic Adventures en vinnur auk þess í Fjallakof- anum. „Það er mest að gera í leiðsögumennskunni frá páskum og fram á haust, það hefur aldrei verið meira að gera í þessu en núna,“ segir Guð- mundur. Hann segir mikla aðsókn á stóru fjöllin eins og Hvannadalshnjúk og Eyjafjallajökul. „Ég fór með tvo ferðamenn á hnjúkinn í síðustu viku en það er búið að loka fyrir ferðir á hann núna,“ segir hann. „Það er mikil aðsókn í fjalla- og jöklaferðir. Mikið er pantað af ferðum í gegnum ferða- skrifstofur og í gegnum vefsíður leiðsögufyrirtækjanna. Mest eru þetta erlendir ferðamenn.“ En hvað á að gera í tilefni af afmælisdeginum? „Ég ætla bara að eyða deginum með kærustunni og hafa það notalegt, þetta hef- ur alltaf verið mjög rólegur dagur hjá mér.“ Fjallamaður Guðmundur er nýkominn af Hvannadalshnjúki. Ætlar að hafa það notalegt í dag Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson 39 ára Aron Steinsen Jónsson safnaði 4.140 kr. með því að ganga í hús og kom upphæðinni til Rauða krossins. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Garðtraktorar með eða án safnkassa ÞÓR FH Akureyri: Lónsbakka 601 Akureyri Sími 568-1555 Opnunartími: Opið alla virka daga frá kl 8:00 - 18:00 Lokað um helgar Reykjavík: Krókháls 16 110 Reykjavík Sími 568-1500 Vefsíða og netverslun: www.thor.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.